Fréttablaðið - 24.03.2018, Blaðsíða 2
Veður
Í dag verður víðast hvar hæglætis
veður á landinu, en vestast á
landinu verður þó norðvestan kaldi
og stöku él á stangli. Það kólnar
smám saman og hiti verður víðast
hvar um frostmark. sjá síðu 60
Sverrir Hermannsson jarðsunginn
Útför Sverris Hermannssonar, fyrrverandi ráðherra og þingmanns Sjálfstæðisflokksins og Frjálslynda flokksins, var gerð frá Dómkirkjunni í gær.
Sverrir fæddist á Svalbarða í Ögurvík við Ísafjarðardjúp 26. febrúar 1930. Hann lést á Hjúkrunarheimilinu Mörk 12. mars. Fréttablaðið/anton
samfélag Í Fréttablaðinu plús í dag,
sem eingöngu er aðgengilegt á staf-
rænu formi, er að finna myndasyrpu
frá því að fremstu CrossFit-konur
heims öttu kappi í Reykjavík.
Þá er spjallað við Braga Þór Hin-
riksson kvikmyndaleikstjóra um
kvikmyndina Víti í Vestmanna-
eyjum.
Birt er viðtal við Dan Sommer,
safnaðarprest eins minnsta safn-
aðar landsins, Postulakirkjunnar.
Viðtalið er hluti greinaflokks um
trúarlíf Íslendinga. Því tengt verður
sýndur vefþáttur á frettabladid.is
með viðtali við prestinn sem var
hermaður og öryggisvörður áður
en hann stofnaði trúfélagið sem er
staðsett á Höfðabakka í Reykjavík.
– kbg
Fjölbreytt efni á Fréttablaðinu plús
Dan Sommer, safnaðarprestur Postulakirkjunnar. Fréttablaðið/Vilhelm
stjórnmál „Spáveðurfræðin gengur
út á að spá fyrir um hið ókomna.
Stjórnmálin eru oft að takast á við
óvænta hluti. Það er þó fastari jörð
undir stjórnmálunum heldur en
í veðurfræðinni,“ segir Sigurður
Þ. Ragnarsson, oft kallaður Siggi
stormur, en tilkynnt var um að hann
yrði oddviti Miðflokksins í bæjar-
stjórnarkosningunum í Hafnar firði
þann 26. maí næstkomandi.
Listi Miðflokksins var kynntur
í gær og segir Sigurður vinnu við
smíði hans hafa staðið yfir undan-
farnar fjórar vikur. Helsta einkenni
listans, að sögn Sigurðar, er breidd-
in. Segir hann hafa verið horft til
kynjajafnvægis, aldurs, stöðu og
starfa, reynslu og áhugamála.
Sigurður hefur áður verið við-
riðinn íslensk stjórnmál, þótt hann
sé eflaust þekktari fyrir veðurfræði-
störf. Í febrúar 2012 stóð til að hann
færi í framboð fyrir Samstöðu, flokk
Lilju Mósesdóttur. Það gekk þó ekki
eftir en mánuði síðar hætti Sigurður
í flokknum. „Það er kannski ótíma-
bært að tjá sig mikið nú um næstu
skref mín, en ég er í það minnsta
ekki að fara að stofna nýjan flokk
að svo stöddu,“ sagði Sigurður við
Pressuna í mars 2012.
En nú, sex árum síðar, er veður-
fræðingurinn mættur aftur og
kveðst mjög bjartsýnn. „Miðflokk-
urinn er á góðri siglingu. Samkvæmt
skoðanakönunnum hefur fylgi
hans verið að aukast. Við höfum
fundið fyrir miklum áhuga á þessu
í Hafnar firði,“ segir Sigurður sem
stefnir á að ná þremur mönnum inn
í ellefu manna bæjarstjórn Hafnar-
fjarðar.
Um áherslur framboðsins segir
Sigurður að skynsemisjónarmið
þurfi að ráða, ekki flokkslínur.
„Þegar við höfum náð inn þessum
þremur mönnum útilokum við ekki
samstarf við neinn og ekki neinar
hugmyndir heldur. Ef þær eru skyn-
samlegar og góðar viljum við styðja
við þær.“
Segist Sigurður til að mynda vilja
setja skipulagsmálin í forgang. Þar
hafi verið óstöðugleiki undanfarin
ár. „Það þarf að vinna þessa skipu-
lagsvinnu af miklu meiri yfirvegun
en hefur verið gert.“
Þá nefnir hann einnig skólamálin.
Gríðarlegir fjármunir fari í skóla-
málin í Hafnarfirði en bærinn sé
ekki að uppskera eins og hann sáir.
„Það þarf að fara í gegnum það mjög
ítarlega. Til dæmis skóla án aðgrein-
ingar. Fyrir hverja er það gert? Er
það fyrir þá sem eiga undir högg að
sækja? Ég segi nei. Er þetta fyrir þá
sem eru á fljúgandi siglingu? Hefur
þetta skilað því sem við viljum að
þetta skili?“ segir Sigurður enn
fremur. thorgnyr@frettabladid.is
Siggi segir fastari jörð í
pólitíkinni en veðrinu
Sigurður Þ. Ragnarsson, Siggi stormur, leiðir lista Miðflokksins í Hafnarfirði.
Hann segir flokkinn á góðri siglingu og stefnir á að ná þremur mönnum inn.
Þótt stjórnmálin þyki hvikul segir Sigurður spáveðurfræðina enn hvikulli.
Sigurður leiðir lista miðflokksins í hafnarfirði. Fréttablaðið/Valli
alþingi Umræðu um frumvarp
Andrésar Inga Jónssonar, þing-
manns Vinstri grænna, um lækkun
kosningaaldurs í 16 ár var frestað
í gær og verður því ekki gengið til
atkvæðagreiðslu á næstunni. Ólík-
legt er því að 16 og 17 ára krakkar
fái að kjósa í sveitarstjórnarkosn-
ingunum.
Málið var rætt lengi á Alþingi í
gær og tóku andstæðingar þess oft
til máls. Helga Vala Helgadóttir,
þingmaður Samfylkingarinnar,
sagði þar fara fram „málþóf mið-
aldra karla úr Sjálfstæðisflokki og
Miðflokki“.
Þorsteinn Víglundsson, þing-
maður Viðreisnar, tók í sama
streng. Sagði hann Sjálfstæðis-
flokkinn, Miðflokkinn og Flokk
fólksins grípa til varna fyrir kerfið
með málþófi. – þea
Ólíklegt að 16
ára fái að kjósa
Spáveðurfræðin
gengur út á að spá
fyrir um hið ókomna.
Stjórnmálin eru oft að takast
á við óvænta hluti.
Sigurður Þ. Ragnarsson, oddvitaefni
Miðflokksins í Hafnarfirði
2 4 . m a r s 2 0 1 8 l a u g a r D a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
2
4
-0
3
-2
0
1
8
0
3
:4
7
F
B
1
4
4
s
_
P
1
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
1
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
4
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
4
C
-A
5
7
8
1
F
4
C
-A
4
3
C
1
F
4
C
-A
3
0
0
1
F
4
C
-A
1
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
4
4
s
_
2
3
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K