Fréttablaðið - 04.05.2018, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 04.05.2018, Blaðsíða 15
ÁHEYRNARPRUFUR FYRIR SÖNGLEIKINN KABARETT Söngleikurinn Kabarett verður stór- sýning Menningarfélags Akureyrar dagskrárárið 2018-2019. Þar sameinast Leikfélag Akureyrar, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og Menningarhúsið Hof um að frumsýna þennan vinsæla söngleik í Samkomuhúsinu á Akureyri í október. Leik- og söngprufur verða haldnar í Kaldalóni í Hörpu þann 10. maí kl. 10 og í Samkomuhúsinu á Akureyri þann 14. maí kl. 14. Nánari upplýsingar og skráningu í áheyrna- prufurnar má finna á vefsíðu Menningarfélags Akureyrar: www.mak.is Menningarfélag Akureyrar | Strandgötu 12 | Akureyri | 450 1000 | mak.is Í HOFI Í SAMKOMUHÚSINU Í HOFI Í SAMKOMUHÚSINU FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2018 MÁLMSUÐU- DAGURINN IÐAN fræðslusetur heldur málmsuðudaginn í samstarfi við Málmsuðufélag Íslands. Boðið verður upp á fyrirlestra um nýjungar í málmsuðu. Einnig verða íslenskir birgjar suðuvélaframleiðanda með kynningu og sýningu á helstu nýjungum í málmsuðu. Málmsuðudagurinn verður haldinn í húsnæði IÐUNNAR fræðsluseturs, að Vatnagörðum 20 og er dagskrá frá kl. 10.00 - 16.00. Þegar verkfræðingarnir og uppfinningafólkið í Kísildalnum í Kaliforníu fá snjalla hugmynd þá þarf gjarnan að byrja á því að afla fjármagns. Fjárfestingarfyrirtækin fá tugi og hundruð kynninga á hverjum degi. Flestar þeirra lenda beint í ruslinu, en þær allra bestu eru grannskoðaðar eftir öllum kúnstarinnar reglum. Hvert einasta smáatriði er gaumgæft og gagnrýnt, og stór hópur greindra og gáfaðra sérfræðinga liggur yfir hugmyndunum vikum og mánuðum saman áður en tekin er ákvörðun um hvort styðja eigi frumkvöðlana. Um leið og einn nafntogaður fjárfestingarsjóður hefur sam- þykkt að fjárfesta í verkefni eða fyrirtæki þá má segja að allar dyr uppljúkist skyndilega. Frægustu fjárfestarnir búa yfir slíku segul- magni að um leið og einn þeirra ákveður að „veðja á“ hugmynd og frumkvöðul, þá raða allir hinir sér upp í biðröð til þess að dæla sínu eigin fjármagni í sama farveg. Djúsí hugmynd Þetta fattaði Doug Evans. Evans hafði lengi verið mikill áhuga- maður um ávaxtasafa. Svo mikill að hann stofnaði fyrir nokkrum árum fyrirtæki sem framleiddi hinn fullkomna ávaxtasafa. Djúsinn gerði hann úr 100% líf- rænum efnum; það gat ekki verið öðruvísi því Doug finnur það strax á bragðinu ef svo mikið sem ein ólífræn appelsínuarða villist ofan í safann hans. Hann er líka veganisti og gengur um í hamp- klæðnaði. Og svo er hann hug- sjónamaður sem vildi helst ekki græða á hugsjónastarfinu þannig að hann missti fljótlega stjórn á rekstrinum og lenti í slíkum vand- ræðum að hann þurfti að selja reksturinn á slikk. En Doug var ekki af baki dott- inn. Hann var með hugmynd—og hugmyndin var Juicero; nettengd djúsvél sem framkallaði svo mik- inn þrýsting að það hefði verið hægt að pakka þýskum fólksbíl í frumeindir sínar ef hann kæmist inn í vélina. Þannig—og aðeins þannig—var hægt að framkalla í neysluhæfu formi hinn fullkomna ávaxtadjús. Kaliforníudraumur Doug flutti til Kaliforníu og settist að í verslunarmiðstöð á Sand Hill Road, þar sem frægustu fjárfest- ingarsjóðirnir eru með skrifstofur. Þar predikaði hann boðskap sinn og það þurfti bara einn að bíta á agnið. Og þvílíkur stórlax sem beit. Einn meðeigandi Kleiner Perkins Caulfield & Byers tók að trúa á djúsinn og þambaði hugmyndina hráa eins og lífrænan granatepla- safa. Og fyrst hugmyndin var nógu góð fyrir Kleiner Perkins þá hlaut hún að vera nógu góð fyrir aðra fjárfesta í hverfinu. Hver heilvita maður hlaut að sjá tækifærið— allir hlutu að vera sammála um það. Fyrst voru settar 16,5 milljónir dala í áframhaldandi þróun á hug- myndinni og vörunni. Það dugði skammt því nokkrum misserum seinna dældu hinir þolinmóðu og djúsþyrstu fjárfestar 70 milljón dölum til viðbótar ofan í blandar- ann. Og eftir því sem hugmyndin át meiri peninga, þeim mun sann- færðari urðu fjármálamennirnir. Tækifærið var of gott til að láta það líða fyrir fjárskort þannig að þeir nurluðu saman 28 milljónum til viðbótar. Í þetta ævintýri fóru sem sagt meira en 11 milljarðar íslenskra króna. Flókinn djús Og enginn bilaði í trúnni, þótt sumir hafi kannski bilast í henni. Allir þessir peningar voru notaðir til þess að smíða það sem hlýtur að vera háþróaðasta heimilis- tæki veraldarsögunnar. Sam- kvæmt lýsingum framleiðandans er djúsvélin gerð úr þvílíkum hágæðaefnum að ætla mætti að þeim væri ætlað að standast álag geimferðar frekar en djúsgerðar. Einn fjárfestirinn, sem hafði líka fjárfest í sjálfkeyrandi bílum sagði við New York Times að Juicero væri flóknasta fyrirbæri sem hann hefði komist í tæri við. Djúsinn sjálfur var bara toppurinn á ísjakanum. Tilgangur vélarinnar er að kreista sérstaka ávaxtapoka sem innihéldu listi- lega niðurskorna lífræna hágæða- ávexti—en til þess að ná réttu bragði og áferð þurfti vélin að framkalla gríðarlegan þrýsting. Og ekki nóg með það. Innan í vélinni er nettengdur strikamerkjalesari sem sendir skilaboð á miðlægan gagnagrunn og kemur í veg fyrir að útrunnir eða skemmdir djús- pokar verði kreistir í safann. Og til þess að vernda hagsmuni djús- drykkjumannsins býr Juicero yfir Sagan af djúsinum dýra þeim bráðnauðsynlega öryggis- ventli að ómögulegt er að kveikja á vélinni ef internetið á heimilinu liggur niðri. Þvílík þægindi. Tilgangslausa tækniundrið Og verðið. Maður minn, minnstu ekki á það. Hvað værir þú, lesandi góður, tilbúinn til þess að borga fyrir nettengt tæki sem kreistir lífrænan djús ofan í glas með þrýstingi sem gæti framkallað demant úr kolamola og tryggir þar að auki að djúsinn sé aldrei súr? 700 þúsund? Milljón? Tvær? Nei—ekki aldeilis. Juicero var sett á markað fyrir skitna 699 Banda- ríkjadali—ríflega sjötíu þúsund íslenskar krónur. En svo komust blaðamenn í málið og einn þeirra álpaðist til þess að prófa að kreista djús- pokann með höndunum í staðinn fyrir að setja hann ofan í djúsvél- ina dýru—og í ljós kom að meiri kraftur var í vélritunarputtum blaðamannsins heldur en hinu flókna og kraftmikla heimilis- tæki. Eftir það sannfærðust allir umsvifalaust um að Juicero hafi alls ekki verið frábær hugmynd heldur einmitt alveg ömurleg, eins og hver heilvita maður hlaut að hafa séð strax í upphafi. Og allir voru sammála um það. Í dag Þórlindur Kjartansson Og eftir því sem hugmyndin át meiri peninga, þeim mun sannfærðari urðu fjármála- mennirnir. Tækifærið var of gott til að láta það líða fyrir fjárskort þannig að þeir nurl- uðu saman 28 milljónum til viðbótar. Í þetta ævintýri fóru sem sagt meira en 11 milljarðar íslenskra króna. Fréttablaðið með þér í sumar. Þú getur nálgast frítt eintak af Fréttablaðinu á eftirfarandi stöðum víðsvegar um landið: S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 15F Ö S T u d a g u R 4 . m a Í 2 0 1 8 0 4 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :4 1 F B 0 4 8 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F A F -B 6 F 0 1 F A F -B 5 B 4 1 F A F -B 4 7 8 1 F A F -B 3 3 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 8 s _ 3 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.