Fréttablaðið - 04.05.2018, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 04.05.2018, Blaðsíða 20
Þegar fólk eldist minnkar eðlilegt rakainnihald húðar og hún verður viðkvæmari fyrir köldu veðri, þurrki, útfjólubláum geislum og öðrum neikvæðum áhrifum sem dekkja hana og gera hana hrjúfari. SENSAI opinberar leyndar-mál silkisins og gengur á undan inn í nýja öld heilbrigðrar og skínandi húðar. Ferskleiki og hugarró – leyndardómur náttúru- lega fallegrar húðar Heilbrigð húð hefur innbyggðan varnarvegg til að koma í veg fyrir rakatap sem annars yrði í gegnum yfirborð hennar. Til að viðhalda fal- legri húð skiptir mestu máli að veita raka til hennar og auka rakaheldni hennar. Þegar fólk eldist minnkar eðlilegt rakainnihald húðar vegna þess að rakaheldni hennar minnkar. Húðin verður viðkvæmari fyrir köldu veðri, þurrki, útfjólubláum geislum og öðrum neikvæðum áhrifum sem dekkja hana og gera hana hrjúfari. SENSAI Highlighting Concealer og nýr Total finish farði innihalda Koishimaru-silki sem getur gefið allt að sjö sinnum meiri raka en nokkur annar rakagjafi úr náttúrunni. SENSAI púðurfarðann þarf vart að kynna, hann hefur fylgt okkur í áraraðir. SENSAI var fyrsta snyrti- vörumerkið í heiminum til þess að framleiða farða þar sem krem- farði og púður koma saman í einni órjúfanlegri heild. Púðurfarðinn hentar hvort sem er, notaður einn og sér eða yfir fljótandi farða og til að fríska sig yfir daginn. Farðinn sameinar kosti fljótandi farða og púðurs, þekur húðina auðveldlega en samt vandlega þannig að húðin fær lýtalausa, silkikennda áferð sem varir lengi. Farðinn veitir húðinni vernd yfir daginn, gefur henni raka og lýta- lausa áferð. Glæsilegt yfirbragð á augabragði. Púðuragnir með amínósýrum Nýja púðrið inniheldur púður- agnir sem hafa verið húðaðar með amínósýrum sem gerir það að verkum að púðuragnirnar verða kremaðar en vernda jafnframt gegn svita og raka svo húðin verður einstaklega náttúruleg. Hin einstaka formúla veitir silkimjúka og fallega áferð sem varir lengi. Dósin er seld sér og fylgir henni svampur en fyllingar í dósina eru svo seldar sér og er farðinn til í átta litum. Highlighting Concealer SENSAI kynnir algjörlega bylt- ingarkenndan hyljara sem hylur lýti, eykur ljóma og raka. Hyljarinn er sérstaklega hannaður til að nota undir augun þar sem áferðin er bæði létt en kremuð og hann sest ekki í línur. Með sérstöku inni- haldsefni, Koishimaru silk EX og náttúrulegum olíum; möndlu-, jojoba- og olífuolíu. Þetta einstaka innihaldsefni, Silky Botanical EX, endurheimtir raka og heldur honum inni og gefur sléttara útlit. Byltingarkennd nýjung frá SENSAI sem fæst í fjórum litum. Glowing base Grunnur undir farða, með perlu- kenndum lit, leiðréttir húðlit og veitir hraustlegan ljóma. Glowing base veitir raka og viðheldur fersku útliti. Glowing base hentar einstaklega vel undir Total finish púðurfarðann. Leyndarmálið opinberað Silki er dularfullt efni sem hrifið hefur mannkynið frá alda öðli. Klassísk fegurð þess er ekta og óháð tíma, og nú hægt að yfir- færa fegurð silkis á húðina; fegurð sem sumir segja að taki fram feg- urð eðalsteina. 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 4 . m A í 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U R 0 4 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :4 1 F B 0 4 8 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F A F -C A B 0 1 F A F -C 9 7 4 1 F A F -C 8 3 8 1 F A F -C 6 F C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 8 s _ 3 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.