Feykir - 30.01.2014, Blaðsíða 3
04/2014 Feykir 3
Samningur undirritaður
Unglingalandsmót UMFÍ 2014 á Sauðárkróki
Samningur um 17. Unglinga-
landsmót UMFÍ var undirritaður í
Húsi frítímans 22. janúar sl. en
mótið verður haldið á Sauðárkróki
um verslunarmannahelgina, sem
verður dagana 1. - 4. ágúst. Þetta er
í þriðja sinn sem mótið er haldið í
bænum en mótin fóru þar áður fram
árin 2004 og 2009.
Að sögn Helgu G. Guðjónsdóttur
formanns UMFÍ sóttu níu staðir um
að halda mótið og varð Sauðárkrók-
ur fyrir valinu m.a. vegna frábærrar
íþróttaaðstöðu og þess ómælda
kosts að hafa allt á sama stað, þ.e.
tjaldstæði, keppnis- og afþreyinga-
svæði og o.s.frv.
Einnig hafði hún orð á því að
fyrri mót hefðu heppnast einstak-
lega vel og bar hún sömu væntingar
til Unglingalandsmóts sumarsins
2014. /BÞ
Frá undirrituninni. Frá vinstri: Jón Daníel Jónsson formaður UMSS, Helga G. Guðjónsdóttir formaður UMFÍ,
Ásta B. Pálmadóttir sveitarstjóri Svf. Skagafjarðar og Gunnar Þór Gestsson formaður Umf. Tindastóls.
Konukvöld með
Siggu Kling
N
Ý
PR
EN
T
eh
f.
/
28
02
20
13
Sölumaður
hefur samband
eða kemur í
heimsókn ;)
Verðlækkun
Lækkun á áburði er á bilinu 8 - 12,9%
– misjafnt eftir tegundum.
Þá bjóðum við upp á fjórar nýjar
áburðartegundir.
KVH á Hvammstanga og
KS Verslunin Eyri á Sauðárkróki eru
afgreiðslustaðir fyrir áburð
frá Fóðurblöndunni.
Jón Hilmar Karlsson
KVH Hvammstanga
Sími: 455 2325
Gsm: 868 8022
Reimar Marteinsson
KVH Hvammstanga
reimar@kvh.is
Sími: 455 2300
Gsm: 894 9939
ÞJÓNUSTUFULLTRÚAR Á NORÐURLANDI VESTRA
Kaupfélag Skagfirðinga
Sauðárkróki
bjorn.svavarsson@ks.is Sími: 455 4626
Gsm: 825 4626 Fax: 455 4611
AFGREIÐSLUSTAÐUR
Kaupfélag Vestur Húnvetninga
Hvammstanga
Sími: 455 2300 Fax: 451 2354
Björn M.
Svavarsson
KS - Sauðárkróki
bjorn.svavarsson@ks.is
Sími: 455 4626
Gsm: 825 4626
AFGREIÐSLUSTAÐUR
Allar nánari upplýsingar um vörur
og verð má finna í Græði
og á heimasíðu Fóðurblöndunnar
> www.fodur.is
Rótarýklúbbur Sauðárkróks
Færði Heilbrigðisstofnuninni húsgögn
Þann 23. janúar sl.
afhentu félagar í
Rótarýklúbbi Sauðár-
króks Heilbrigðisstofn-
uninni Sauðárkróki
húsgögn að gjöf en þau
verða notuð á
hjúkrunardeild HS.
Þann 30. nóvember
2013 bauð Rótarýklúbb-
ur Sauðárkróks Skagfirð-
ingum til ókeypis jóla-
hlaðborðs. Um 600
manns mættu og nutu
matar og skemmtunar í
íþróttahúsinu á Sauðár-
króki. Þetta var hægt
með öflugum stuðningi
góðra fyrirtækja sem
lögðu verkefninu lið.
Alls söfnuðust um
800.000 krónur sem
voru notaðar til að kaupa
þessi húsgögn. /KSE
Frá afhendingu húsgagnanna. Mynd: HS
Geitur gerðu víðreist
Fundust á flakki í Kolbeinsdal
Tvær geitur ásamt
þremur kiðlingum, í
eigu Guðrúnar Þórunnar
Ágústsdóttur á Háleggs-
stöðum í Deildardal,
brugðu undir sig betri
fætinum og fóru alla
leið yfir í Kolbeinsdal.
Geiturnar voru vanar
að halda til neðst í
Deildardal en hafa lík-
lega lagt í langferðina í
haust en talið er að
styggð hafi komist að
þeim vegna skothvella
frá rjúpnaskyttum. Það
var Sigurður Sigurðsson
sem rakst á geiturnar í
vélsleðaferð um Kol-
beinsdal á dögunum.
Einn kiðlingurinn
hafði skilað sér heim að
Geitur í góðu yfirlæti.
bæ í október, en hann
birtist í fjallinu og þá
hljóp 12 ára sonur Guð-
rúnar og náði í kiðling-
inn. Vegna hálku þurfti
hann að bera kiðlinginn
á bakinu hluta leiðar-
innar.
Geiturnar voru nokk-
uð illa farnar, orðnar
sárfættar og eins var
hafurinn bólginn um-
hverfis augað, líkt og
hann hefði rekið sig á
eitthvað, að sögn
ábúandans á Háleggs-
stöðum. /KSE