Feykir - 30.01.2014, Qupperneq 12
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
04
TBL
30. janúar 2014 34. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
Blönduósbær
vill viðræður
Sameining í A-Hún
Bæjarstjórn Blönduósbæjar hefur falið bæjarstjóra
að kanna hug forsvarsmanna annarra sveitarfélaga í
Austur-Húnavatnssýslu til sameiningar. Telur bæjar-
stjórnin mikilvægt að unnið verði formlega að sam-
einingu, að því er fram kemur í bókum sem lögð var
fram á fundi bæjarstjórnar í síðustu viku.
Bókunin var gerð í kjölfar þess að lögð var fram til
kynningar skýrsla um úttekt á hagkvæmni sameiningar
sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu. Eins og Feykir
hefur fjallað um fól Byggðasamlag um menningar- og
atvinnumál í Austur-Húnavatnssýslu í júlí sl. KPMG
að vinna að samantekt á fjármálalegum upplýsingum
og aðstoð við greiningu og samantekt á stærstu hag-
ræðingarmöguleikum væru sveitarfélögin fjögur í
Austur Húnavatnssýslu sameinuð. /BÞ
TILTEKTARDAGAR
10-40% afsláttur af völdum vörum á meðan birgðir endast.
Magnað verð á flottum græjum.hjá Ten
gli
G R Æ J U B Ú Ð I N Þ Í N
Verslun Kjarnanum Hesteyri 2
550 Sauðárkróki Sími 455 9200 www.tengillehf.is
- verslaðu við fagmanninn!
Canon MG5550
Fjölnotatæki
Tilboðsverð: 17.520 kr
(áður 21.900) 20% afsláttur
• Prentar, skannar og ljósritar
• Hágæða 5 hylkja WiFi prentun
• Allt að 4800dpi prentupplausn
• Skarpur texti og alvöru ljósmyndagæði
Canon IP2700
Tilboðsverð: 6.900 kr.
(áður 9.890) 30%afsláttur
•Intel Core i5 1.8GHz örgjörvi
•4GB vinnsluminni (4GB mest)
•500GB harður diskur, 5400rpm
•14“ LED skjár (1366x768)
Canon PIXMA IP7250
Tilboðsverð: 13.520 kr.
(áður 19.900) 20% afsláttur
• Hraðvirkur og vel hannaður
ljósmyndaprentari
• Afkastamikill með 5 blekhylkjum
• Styður prentun í gegnum snjallsíma
ásamt WiFi prentun
• Sjálfvirk prentun beggja megin
Aðrir prentarar og skannar
á 20-30% afslætti
Lyklaborð og mýs
á 10-40% afslætti
Flakkarar & aðrir aukahlutir
á allt að 40% afslætti
Örfá eintök eftir! Örfá
eintök eftir! Örfá eintök eftir!
Eggert Þór Bernharðsson fjallaði um morðbrennuna á Illugastöðum
Vel sótt erindi
Síðastliðinn sunnudag flutti
Eggert Þór Bernharðsson,
sagnfræðingur og prófessor við
Háskóla Íslands, erindi í
Safnaðarheimili Hvammstanga-
kirkju um morðbrennuna á
Illugastöðum á Vatnsnesi 14.
mars 1828. Erindið var mjög vel
sótt og að því loknu svaraði
Eggert spurningum úr sal.
Annars vegar fjallaði Eggert
um atburðarrás morðnæturinnar
eins og hún birtist í yfirheyrslum
Björns Blöndals sýslumanns Hún-
vetninga yfir Friðriki Sigurðssyni
í Katadal, Sigríði Guðmundsdóttur
bústýru á Illugastöðum og Agnesi
Magnúsdóttur vinnukonu á Illuga-
stöðum. Hins vegar fjallaði Eggert
um aftöku Friðriks og Agnesar á
Þrístöpum 12. janúar 1830.
Eggert vinnur að rannsókn á
lífshlaupi Natans Ketilssonar og
samferðafólki hans og vonast til
að geta gefið út bók um það efni
fyrir lok árs 2015 eða 2016. Eggert
Þór hefur auk þess skrifað ítar-
lega grein um efnið í Sögu, tímarit
sögufélags (LI:2 2013), og ber
greinin heitið „Friðrik, Agnes,
Sigríður og Natan: Heimilda-
grunnur morðbrennunnar á
Illugastöðum árið 1828.“
Erindið var það fyrsta í fyrir-
lestrarröð á vegum Byggðasafns
Húnvetninga og Strandamanna.
Næstur í röðinni er Vilhelm
Vilhelmsson sagnfræðingur sem
flytur erindið „Stolið frá Sýslu-
manni: Þjófnaðarmálið í Hvammi
1835“ sunnudaginn 23. febrúar
nk. /KSE
Fjölmargir hlýddu á erindi Eggerts Þórs.
Frá erindi Eggerts Þórs. Myndin neðst til hægri er brot úr Dómabók.
Myndirnar eru frá Norðanátt.is