Feykir


Feykir - 13.03.2014, Side 1

Feykir - 13.03.2014, Side 1
 á BLS. 6-7 BLS. 11 Heiðdís Lilja svarar Rabb-a-babbi Er mjög góð í að poppa BLS. 4 Níræður Jói á Stapa er í opnuviðtali Feykis „Þetta hefur alltaf verið önnur hliðin á mér“ Sigríður og Skúli kokka Ofnsteikt lambakjöt og grísk jógúrt 10 TBL 13. mars 2014 34. árgangur : Stofnað 1981 S K A G F I R Ð I N G A B R A U T 2 9 S A U Ð Á R K R Ó K I S Í M I 4 5 3 6 6 6 6 FÁÐU ÞÉR Í SVANGINN! Áfram Tindastóll Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra BÍLAVERKSTÆÐI Hesteyri 2 550 Sauðárkrókur Sími 455 4570 Við þjónustum bílinn þinn! Alhliða bílaviðgerðir fyrir fólksbíla, vörubíla og dráttarvélar. Réttingar og sprautun. Deildarmeistarar Tindastóls í körfuknattleik karla spila síðasta leik tímabilsins við Hött í Síkinu á Sauðárkróki annað kvöld. Til stendur að skapa rokna stemningu í íþróttahúsinu og eru allir hvattir til að mæta, styðja strákana og sjá þá taka á móti deildarbikarnum. Bárður Eyþórsson þjálfari Tindastóls segir tilhlökkun vera fyrir því að klára tímabilið og jafnframt gaman að mæta til leiks með gulltryggt sæti í úrvals- deildinni á næsta tímabili. „Ég vona bara strákarnir komi ekki of afslappaðir til leiks, líkt og síðasta föstudag, heldur gefi allt í leikinn og klári tímabilið almennilega,“ sagði Bárður í samtali við Feyki, en liðið tapaði fyrir Þór á Akureyri sl. föstudag 93-88. Bárður segist vera Síðasta umferðin í 1. deild karla í körfubolta verður spiluð á föstudaginn Deildarmeistararnir taka á móti Hetti í Síkinu Liðsmenn Tindastóls kampakátir á æfingu í vikunni en liðið hefur sem kunnugt er þegar tryggt sér sigurinn í 1. deild karla. KJARNANUM HESTEYRI 2 SAUÐÁRKRÓKI & 455 9200 G R Æ J U B Ú Ð I N Þ Í N DELL Inspiron 5521 Intel Core i3 · 4GB vinnsluminni · 500GB harður diskur · 15.6“ HD WLED · Windows 8 nýjar v örur komið og sko ðið mjög sáttur við liðið í vetur og að það hafi verið ágætis stígandi í því yfir tímabilið. „Ungu strákarnir í liðinu hafa fengið mörg tækifæri að spila, þeir hafa bætt sig mikið og eru vel undirbúnir fyrir úrvalsdeildina á næsta leiktímabili,“ segir Bárður og bætir við að eldri strákarnir hafa verið þeim ungu góðar og jákvæðar fyrirmyndir. Þegar Bárður horfir til baka yfir tímabilið segir hann ekkert eitt standa uppúr heldur hefur veturinn verið skemmtilegur í heild sinni. „Það er góður og léttur andi yfir hópnum,“ bætir hann við. Síðasti leikurinn undir stjórn Bárðar Þetta mun jafnframt vera síðasti leikur Bárðar sem þjálfara Tindastóls en hann lætur nú af störfum hjá félaginu. Aðspurður um hvað sé framundan hjá honum segist hann hætta í þjálfun en að hann sé ekki á leiðinni af Króknum. „Við Ásta ætlum að vera hér áfram, okkur líður vel hérna. Ég kem vonandi til með að styðja áfram við bakið á liðinu með öðrum hætti,“ segir Bárður í lokin. Varaformaður KKÍ Guðbjörg Norð- fjörð mætir á svæðið til að afhenda bikarinn að leik loknum, ásamt Skag- firðingnum Rúnari Birgi Gíslasyni. Formaður körfuknattleikssambandsins, Hannes S. Jónsson, segir í samtali við Feyki að hann hefði gjarnan vilja vera með annað kvöld en kemst því miður ekki þar sem hann verður staddur erlendis. /BÞ

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.