Feykir - 13.03.2014, Blaðsíða 4
4 Feykir 10/2014
( RABB-A-BABB ) oli@feykir.is
Heiðdís Lilja
NAFN: Heiðdís Lilja Magnúsdóttir
ÁRGANGUR: 1972
FJÖLSKYLDUHAGIR: Eitt barn, 13 ára snillingur.
BÚSETA: Bý í Garðabæ.
HVERRA MANNA ERTU: Dóttir Magnúsar Sigurjónssonar
og Kristbjargar Guðbrandsdóttur. Ólst upp á sælureitnum
Víðigrund 11.
STARF / NÁM: Laganemi við HR og fréttamaður á
Ríkisútvarpinu.
HVAÐ ER Í DEIGLUNNI: Meistararitgerðin mín í lögfræðinni
á hug minn allan þessa dagana. Svo er ég að fara að ferma
strákinn minn í lok mars.
Hvernig nemandi varstu? Fróð-
leiksfús og samviskusamur. (Sem
sagt kennarasleikja.)
Hvað er eftirminnilegast frá
fermingardeginum? Appelsínu-
gula satínskyrtan og dressið sem
mamma saumaði á mig. Að fá
skatthol í fermingargjöf þegar mig
langaði í græjur. Og vídeóhornið í
svefnherbergi foreldra minna, þar
sem við krakkarnir horfðum á The
Karate Kid á meðan þeir fullorðnu
gúffuðu í sig kransaköku á neðri
hæðinni.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar
þú yrðir stór? Grunnskólakennari,
sundþjálfari eða píanókennari.
Hvað hræðistu mest? Að eitthvað
komi fyrir mína nánustu.
Besti ilmurinn? Nýslegið gras og
karlmennskuþefur af kærastanum.
Hvað varstu að hlusta á þegar
þú fékkst bílprófið? Það hlýtur að
hafa verið Freedom með George
Michael. Eða kannski eitthvað með
A-ha?
Hvaða lag er líklegast að þú
takir í Kareókí? Mér finnst að Last
Christmas með Wham ætti að vera
á öllum lagalistum, alltaf og alls
staðar.
Hverju missirðu helst ekki af í
sjónvarpinu (fyrir utan fréttir)?
Kastljósi og Sunnudagsmorgni. Ég
horfi lítið á sjónvarp.
Besta bíómyndin (af hverju)? Með
allt á hreinu. Þarfnast ekki skýringa.
Hvaða íþróttamanni hefurðu
mestar mætur á? Anítu Hinriks-
dóttur.
Hvað gerir þú betur en allir aðrir
á þínu heimili? Ég er mjög góð í
að poppa.
Hvert er snilldarverkið þitt í eld-
húsinu? Lasagnað mitt.
Hættulegasta helgarnammið?
Lakkrís og piparmolar.
Hvernig er eggið best? Steikt, ofan
á vel smurðu rúgbrauði.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í
fari þínu? Ég man aldrei brandara.
Hvað fer mest í taugarnar á þér
í fari annarra? Fordómar og
óheiðarleiki.
Uppáhalds málsháttur eða
tilvitnun? „ Happiness is nothing
more than good health and a bad
memory.“
Hver er elsta minningin sem þú
átt? Ég man eftir mér fimm ára að
labba ein í leikskólann með bleika
nestistösku, sem mér fannst mjög
„fullorðins“.
Hvaða teiknimyndapersóna
höfðar mest til þín? Tinni. Ljóska
og blaðamaður. I rest my case.
Hvaða fræga manneskja mundir
þú helst vilja vera? Broddi
Broddason. Hann er svo gáfaður.
Hver er uppáhalds bókin þín og/
eða rithöfundur? Ég er bókaormur,
á þó enga uppáhaldsbók en
held mikið upp á Auði Övu þessa
dagana.
Orð eða frasi sem þú notar of
mikið? „Nákvæmlega“ og “ert'að
grínast?“
Hver var mikilvægasta persóna
síðustu 100 ára að þínu mati? Á
Íslandi: Vigdís Finnbogadóttir,
fyrir að breyta mosavöxnum hug-
myndum um það hvernig þjóðar-
leiðtogar eiga að líta út og haga lífi
sínu. Erlendis: Tim Berners-Lee, fyrir
að finna upp Internetið.
Ef þú gætir farið til baka í tímann,
hvert færirðu? Ég myndi fara
aftur til eigin bernskujóla eða bara
aftur í eldhúsið hennar mömmu á
venjulegum degi, til að spjalla við
hana einu sinni enn.
Hver væri titillinn á ævisögu
þinni? Meira vesenið, alla daga.
FRAMLENGING:
Ef þú gætir hoppað upp í flugvél
og réðir hvert hún færi, þá
færirðu... að Garda vatninu á Ítalíu,
með viðkomu hjá pýramídunum í
Egyptalandi.
Ef þú ættir að dvelja alein
á eyðieyju, hvaða þrjá hluti
tækirðu með þér? Bók, píanó og
veiðistöng.
Notaleg kvöldstund
Soroptimistaklúbbur Skagafjarðar
Konur í Soroptimistaklúbbi Skagafjarðar
áttu notalega kvöldstund með konum af
erlendum uppruna sem búsettar eru í
firðinum síðastliðið fimmtudagskvöld.
Um er að ræða árlegan viðburð sem fór
fram í Kakalaskála í Blönduhlíð að þessu
sinni og er fundurinn gott tækifæri til þess
að hittast, kynnast og blanda geði.
Margar af þeim konum sem komu til
fundarins hafa verið búsettar í Skagafirði til
margra ára og er að þeirra sögn jafnan mikil
tilhlökkun fyrir kvöldinu. Þarna mátti
einnig sjá nokkur ný andlit í hópnum. Að
þessu sinni sáu erlendu konurnar um
veitingar og skemmtiatriði og voru
margskonar girnilegar kræsingar á
boðstólnum sem eiga uppruna sinn að rekja
til heimalanda kvennanna. Mikið var
spjallað þetta kvöld, hlegið og jafnvel
sungið. /BÞ
Andlát
Snorri
Þorsteinsson
látinn
Hofsósing-
urinn Snorri
Þorsteins-
son,
mjólkur-
tæknifræð-
ingur, lést
þann 1.
mars 2014 aðeins 57 ára að
aldri.
Hann hefur lengst af búið í
Danmörku. Snorri lætur eftir
sig konu og einn son. Banamein
hans var lungnakrabbamein.
/Tilkynning frá aðstandendum
Húnvetnska liðakeppnin
Keppt í
fimmgangi
og tölti
Næsta mót Húnvetnsku
liðakeppninnar er
fimmgangur.
Mótið verður laugardaginn
15. mars nk. og verður keppt í
fimmgangi í 1. og 2. flokki og
tölti T7 í 3. flokki og í tölti T3 í
unglingaflokki, fædd 1997 og
seinna. /KSE
1. deild kvenna í körfubolta
Síðasti leikur
tímabilsins
um helgina
Kvennalið Tindastóls fær
stúlkurnar í Þór Akureyri í
heimsókn í Síkið núna á
laugardaginn og hefst
leikurinn kl. 14:00.
Árangur liðsins í vetur hefur
verið með miklum ágætum og
framar vonum. Í raun á liðið
enn möguleika á sæti í efstu
deild en sú von er raunar með
þeim langsóttari.
Tvö efstu liðin í 1. deild
kvenna spila um laust sæti í
efstu deild og sem stendur á lið
Tindastóls stærðfræðilegan
möguleika á að ná öðru sæti en
lið Fjölnis og Breiðabliks eru þó
nokkuð örugg með að ná
tveimur efstu sætunum. Úrslitin
í 1. deild kvenna ráðast ekki fyrr
en 29. mars.
Stuðningsmenn Tindastóls
eru hvattir til að fjölmenna í
Síkið á laugardaginn og hvetja
stelpurnar til sigurs og fagna
frábærum árangri í vetur. /ÓAB