Feykir


Feykir - 13.03.2014, Blaðsíða 11

Feykir - 13.03.2014, Blaðsíða 11
10/2014 Feykir 11 Sigríður og Skúli kokka Ofnsteikt lambakjöt og grísk jógúrt KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson Verðlaun Sá sem fyrstur leysir þrautirnar ætti að teygja vel á áður en hann heldur áfram með Feyki. Tilvitnun vikunnar Ég hef átt yndislegt kvöld, en þetta var ekki það. – Groucho Marx Sudoku Vissir þú að... ÓTRÚLEGT – EN KANNSKI SATT • Michael Jordan þénar árlega meiri peninga frá Nike heldur allir verkamenn í verksmiðju Nike í Malasíu samanlagt. • Perlur bráðna í ediki. • Augu strúta eru stærri en heilinn í þeim. • Meðalmanneskja sofnar á 7 mínútum. • Meðalhraði fallhlífastökkvara er 200 km/h. Matgæðingar Feykis þessa vikuna eru þau Sigríður Hjaltadóttir og Skúli Þór Sigurbjartsson frá Sólbakka í Víðidal. Þau ætla að bjóða upp á dýrindis snittur með hangikjöti í forrétt, ofnsteikt lambakjöt í aðalrétt og gríska jógúrt með ávöxtum og karamellusósu í eftirrétt. Sigríður og Skúli skora á Kristínu Arnardóttur og Krist- ófer Jóhannessyni á Finnmörk til að koma með girnilegar uppskriftir í Feyki. FORRÉTTUR Snittur með heimareyktu hangikjöti Reykt hangikjöt í rúllu, fryst, helst heimareykt (einnig má nota reyktan lax eða silung) 1 krukka kapers 2 dl góð kaldpressuð olía salt pipar safi úr ¼ - ½ sítrónu kapers, gróf saxaður Aðferð: Hangikjötið er skorið mjög þunnt, meðan það er frosið, helst í brauðskurðarvel. Borið fram með góðu snittubrauði. Feykir spyr... [SPURT Í KS VARMAHLÍÐ ] Átt þú einhver gæludýr? MATGÆÐINGAR VIKUNNAR UMSJÓN berglind@feykir.is AÐALRÉTTUR Ofnsteikt lambakjöt með sósu og salati Lambakjöt, annaðhvort lamba- læri eða lambahryggur olía 4 tsk Húnagull eða annað gott krydd 2 tsk rósmarín eða 3 msk ferskt rósmarín 4 tsk timian eða 4 msk ferskt timian ferskur dökkur pipar íslensk salt frá Reykjanesi eða Reykhólum eða annað gott salt Aðferð: Takið mjaðmabeinið úr lærinu ef þið notið læri, en ef hryggur er gott að fituhreinsa hann. Berið olíu á kjötið og kryddið með ofangreindu kryddi. Setjið kjötið í pott og í pottinn fer allt grænmeti úr ísskápnum sem komið er á tíma, t.d. endinn á púrrulauk, tómatar, gulrætur, laukur, broccoli, sítrónur, ef ekki er til gamalt er í lagi að nota nýtt og ferskt grænmeti. Kjötið er sett í ofn á 150°C í 1-1 ½ eftir því hvað þið viljið hafa kjötið vel steikt. Þegar kjötið er tilbúið er það tekið út og vafið álpappír eða viskustykki og leyft að standa meðan verið er að gera sósuna. Sósa: Soðgrunnur úr pottinum 2 dl vatn ½ tsk lambakraftur eða ½ tengingur ½ tsk villibráðaraftur eða ½ tengingur 1 dl rauðvín má sleppa 2-2 ½ dl rjómi ef vill Aðferð: Látið soðið sjóða niður í svona 3 mínútur, bæta rjóma útí ef vill. Smakkað til með salti og pipar, GUNNAR EINARSSON, FLATATUNGU -Ég á fjóra hunda, border collie. EINAR KÁRASON, VARMAHLÍÐ -Ég á einn naggrís, einn kött og tvo gullfiska ELÍNBORG ERLA ÁSGEIRS- DÓTTIR, HÓLI -Ég er með hunda, ketti, kanínur og naggrísi RIKKE BUSK, REYKJUM 2 -Ég á hund og þrjú börn. FEYKIFÍN AFÞREYING kristin@feykir.is Hahaha... BRANDARI VIKUNNAR Hvernig veiðir maður íkorna? Fer upp í tré og hermir eftir hnetu. jafnvel rifsberjasultu. Þykkja má sósuna ef vill með sósujafnara. Salat: Blandað salat frá Lambhaga 2 tómatar ½ rauðlaukur 1 rauð paprika 1 tsk graskersfræ salatdressing 1 dl kaldpressuð ólífuolía 1 tsk sinnep safi úr ½ sítrónu ½ tsk worchestershiresós Aðferð: Hrist vel saman og borið fram með salatinu og/eða fetaostur. EFTIRRÉTTUR Grísk jógúrt með ávöxtum og karamellusósu 4 dósir grísk jógúrt eða heima- löguð jógúrt (þarf að vera ósæt) 2 dl bláber 1 banani 1 askja jarðaber Aðferð: Blanda má ávöxtunum saman í skál eða bera fram í þremur skálum. Gott að bera fram með góðu hunangi og/eða sírópi. Eða karamellusósu. Karamellusósa: 2 dl hrásykur 2 tsk vanillusykur 100 gr smjör 2 ½ dl rjómi Aðferð: Sett saman í pott og soðið saman þar til sykur hefur bráðnað vel. Verði ykkur að góðu! Krossgáta

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.