Feykir


Feykir - 13.03.2014, Blaðsíða 12

Feykir - 13.03.2014, Blaðsíða 12
Ertu með fréttaskot, mynd eða annað skemmtilegt efni í Feyki? Hafðu samband. Síminn er 455 7176 og netfangið feykir@feykir.is 10 TBL 13. mars 2014 34. árgangur Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981 Forvitnast í fataskápa: Laufey Kristín Skúladóttir Flottur jakki ómissandi í fataskápinn! Tískuspekúlant seinasta innlits, hún Gunnhildur Gísladóttir ljósmyndaséní sá fulla ástæðu til þess að beina augum lesenda Feykis að henni Laufeyju Kristínu Skúladóttur. Laufey er sveitastúlka fædd og uppalin í Hrútafirðinum. Hún mætti fyrst á Krókinn 16 ára gömul og kom sér vel fyrir á heimavist FNV. Eftir að hafa nælt sér í Skagfirðing þvældist hún um heiminn en fyrir rúmu ári var svo stefnan tekin aftur á Sauðárkrók og býr hún hér með eiginmanni og börnum. En hver er uppáhaldsflík Lauf- eyjar og er einhver saga á bak við hana? -Það sem er algerlega ekki hægt að vera án og er nauðsynlegt í hvern fataskáp eru flottir jakkar. Uppáhaldsjakkinn minn, og sá sem ég er í á myndinni er frá Day og ég fékk hann í jólagjöf frá eiginmanninum 2012. Hann er keyptur í Kaupmannahöfn, en við bjuggum þar á þeim tíma, í búð sem var á horninu hjá okkur og ég man ekki lengur hvað hét. Ég rak augun í hann í miðjum flutningum í nóvember, tók hann frá og sendi svo manninn að ná í hann til að setja í jólapakkann. Ég er búin að UMSJÓN MEÐ FRÖKEN FABJÚLÖSS Hrafnhildur Viðarsdóttir [ frokenfab@feykir.is ] nota hann svakalega mikið, við margvísleg tækifæri og það er bæði hægt að klæða hann upp og niður. Sá jakki sem ég nota mest akkúrat í dag er frá Jóna María design sem ég fékk í líka jólagjöf frá eiginmanninum. Hann bættist í fataskápinn núna um síðustu jól. En hver er það svo sem þú vilt að taki við tískukeflinu frá þér? -Ég ætla að útnefna hana Grétu Sjöfn Guðmundsdóttir, samstarfs- konu mína á Hæðinni við Faxatorg. Hún er alltaf einstaklega vel til fara og smart. TILBOÐ Í MARS fermingarboðskort 1. Fermingarboðskort a6 10.5 cm. x 14.8 cm. - kr. 197stk. 30 stk. kr. 5.910 með umslögum 2. Fermingarboðskort 10 cm. x 21 cm. - kr. 238 stk. 30 stk. kr. 7.140 með umslögum 3. Umslagabrot fermingarboðskort Fermingarkortin eru brotin saman og mynda umslag Verð kr. 300 stk. Tilboð þetta miðast við prentun öðru megin og í lit með einni mynd. Sendu okkur mynd eða komdu með hana á USB lykli 2 myndir eða fleiri innskannaða kosta kr. 2000 Uppsetning á korti innifalið í verði FERMING Í tilefni fermingar minnar í Sauðárk rókskirkju þann 30. apríl kl . 11:00, er þér/yk kur boðið til veisl u í félagsheimilinu Ljósheimum kl. 1 4:00 Kveðja Hólmar Örn Valdima rsson Vinsamlega tilkyn nið forföll í síma 866 3770 e ða 453 6497 aa 1. NÝPRENT Borgarflöt 1, Skr. - S: 455 7171 nyprent@nyprent 2. Ferming 2010 Þann 28. mars n.k. fermist ég í Sauðárkrókskirkju kl. 11:00. Af því tilefni langar mig að bjóða þér/ykkur að gleðjast með mér og fjölskyldu minni og þigg ja veitingar í Ljósheimum kl. 14 sama dag. Kær kveðja Viðar Ágústsson Ef þið sjáið ykkur ekki fært að mæta, vinsamlegast látið vita í síma 453 6076 fyrir 12. mars eða með tölvupósti sml@simnet.is 3. Ertu í ferða-þjónustu? Hönnum og prentum bæklinga nafnspjöld, reikninga, umslög ofl. Settu þig í samband við okkur! Æfing á bökkum Blöndu Brunavarnir A-Hún. voru með æfingu í síðustu viku en þá var kveikt í húsinu að Blöndubyggð 13 á Blönduósi en það var einbýlishús með áföstu litlu hesthúsi. Slökkviliðið hófst handa við að kveikja í húsinu um kl. 18:00 en aðgerðum við húsið var lokið rétt fyrir miðnætti. Samkvæmt frétt á Húnahorninu hefur staðið til að rífa húsið um nokkurn tíma en Blönduósbær keypti húsið árið 2011 í þeim tilgangi að það yrði síðan rifið. Það sem ekki brann verður fjarlægt á næstunni. Meðfylgjandi mynd er frá Róberti Daníel Jónssyni. /BÞ Brunavarnir A-Hún

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.