Feykir - 22.04.2014, Blaðsíða 2
2 Feykir 15/2014
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Berglind Þorsteinsdóttir – berglind@feykir.is & 455 7176
Blaðamenn:
Kristín Sigurrós Einarsdóttir – kristin@feykir.is & 867 3164
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is
Hrafnhildur Viðarsdóttir – hrafnhv@nyprent.is
Forsíðumynd: Davíð Már Sigurðsson
Áskriftarverð: 450 kr. hvert tbl. með vsk. Lausasöluverð: 490 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. & 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
LEIÐARI
Lífsins gæði og gleði
„Vinnan göfgar manninn“ er stundum sagt og eflaust er það
hverju orði sannara. Einmitt þess vegna er svo mikilvægt að
vinnan sé skemmtileg og að í hverju byggðalagi séu fjölbreytt
atvinnutækifæri. Það eru einmitt þessi atvinnutækifæri og
starfsemi fyrirtækja hér í Skagafirði sem verða til sýnis á
sýningunni Lífsins gæði og gleði
sem haldin verður í Íþróttahúsinu
á Sauðárkróki um næstu helgi.
Þetta tölublað Feykis er helgað
sýningunni og Sæluvikunni.
Auk þess að störfin séu fjöl-
breytt og skemmtileg þá þurfa
þau auðvitað að duga sem
lífsviðurværi. Í mörg ár og jafnvel
áratugi hefur verið rætt um að
Íslendingar vinni meira til að
hafa til hnífs og skeiðar en gert er
í hinum hefðbundnu „löndum
sem við berum okkur saman við.“
Það er einnig umhugsunarefni að kannanir, sem gerðar
voru varðandi menntunarstig og námsþarfir á Norðurlandi
vestra á síðasta ári, leiddu í ljós að hér er menntunarstig með því
lægsta sem gerist og afar margir í lægstu launaflokkum. Það er
þó engin ástæða til að mála skrattann á vegginn, enda tækifærin
endalaus. Eins og viðtöl og greinar hér í blaðinu gefa vonandi
mynd af, þá ríkir mikil framþróun og gríðarlegur metnaður í
skagfirsku atvinnulífi. Framsækið atvinnulífið er í eftirtektar-
verðum tengslum við menntastofnanir á svæðinu og staðhættir
sem bjóða upp á ýmsa nýja möguleika og skapa hér ákjósanleg
skilyrði til búsetu.
Þá komum við einmitt að hinum anga sýningarinnar, því
lífsins gæði og gleði má einnig finna í því sem gert er utan hinn-
ar hefðbundnu, launuðu vinnu, nefnilega menningarlífinu.
Stundum er sagt að vinnan slíti daginn of mikið í sundur fyrir
manni og það má til sanns vegar færa þegar horft er á hið öfluga
menningarlíf hér í firðinum. Það þarf jú einnig hendur og tíma
til að vinna þau verk. Viku eftir viku er hægt að sækja viðburði
á sviði tónlistar, myndlistar, bókmennta, leiklistar og svo mætti
lengi telja, og nær menningin árlegu hámarki í Sæluviku.
Þátttaka í menningarlífi er afar gefandi, hvort sem maður
kýs að skapa menninguna eða vera neytandi hennar. Maður er
manns gaman, segir máltækið og það er eflaust sú hugsun sem
færi fólk til að eyða frítíma sínum í leikæfingar, kóræfingar,
hestamannamót, sjálfboðastarf, skytterí og veiðiskap, svo
eitthvað sé nefnt. Í Skagafirði er stundum sagt að menn megi
ekki vera með stærra bú en svo að þeir geti verið í kórnum, og
það er kannski akkúrat rétta viðhorfið, hæfileg blanda af vinnu
og tómstundagamni.
Að framansögðu má kannski segja að sýningin Lífsins gæði
og gleði og Sæluvika Skagfirðinga svari þessari spurningu, sem
stundum hrekkur af vörum ferðamanna úti á landi: Hvað gerið
þið svo á veturna?
Kristín Sigurrós Einarsdóttir
starfskraftur og menningarneytandi
Skapa öflugri samstarfs-
vettvang í ferðaþjónustu
Samstarfssamningur milli
Samtaka sveitarfélaga á
Norðurlandi vestra,
Ferðamálafélags Vestur-
Húnavatnssýslu, Ferðamála-
félags Austur-Húnavatnssýslu
og Félags ferðaþjónustunnar
í Skagafirði var undirritaður í
Miðgarði í Skagafirði þann
10. apríl sl.
Skv. fréttatilkynningu frá
SSNV eru markmið samnings-
ins m.a. að skapa virkari og
öflugri samstarfsvettvang í
ferðaþjónustu á Norðurlandi
vestra. Einnig að skjóta sterkari
stoðum undir afkomu og
rekstur ferðaþjónustufyrirtækja
á Norðurlandi vestra. Greina og
kortleggja ímynd, vöruframboð
og stöðu greinarinnar í lands-
hlutanum í því skyni að leggja
grunn að áframhaldandi upp-
byggingu og vexti ferðaþjónustu
Samstarfssamningur SSNV og ferðamálafélaganna
Hrímnir og Ísólfur sigruðu
Meistaradeild Norðurlands 2014 lokið
Lokakvöld KS-Deildarinnar fór
fram í Svaðastaðahöllinni á
Sauðárkróki þann 9. apríl sl.
Ísólfur Líndal Þórisson sigraði
einstaklingskeppnina og
varði því titilinn frá því í fyrra.
Liðakeppnina sigraði lið
Hrímnis en liðsmenn voru
Þórarinn Eymundsson, Líney
María Hjálmarsdóttir og
Hörður Óli Sæmundsson.
Samkvæmt fréttatilkynn-
ingu frá Meistaradeild Norður-
lands var keppt var í tveimur
greinum, slaktaumatölti og
skeiði. Vel var mætt af áhorf-
endum og myndaðist stemning
á pöllunum. „Eftir mikla
spennu í einstaklingskeppninni
í vetur fór hún svo að Ísólfur
Líndal sigraði KS-Deildina
með 90 stig. Ísólfur er búinn að
standa sig mjög vel með
frábæra hesta og verið í efstu
N listinn – Nýtt afl í Húnaþingi vestra
Sveitarstjórnakosningar 2014
N listinn, Nýtt afl í Húnaþingi vestra, hefur
sent frá sér fréttatilkynningu með
framboðslista til sveitarstjórnarkosninganna
31. maí 2014.
Framboðslistinn er eftirfarandi:
1. Unnur Valborg Hilmarsdóttir, Hvammstanga
2. Stefán Einar Böðvarsson, Mýrum
3. Elín Jóna Rósinberg, Hvammstanga
4. Sigurbjörg Jóhannesdóttir, Hvammstanga
5. Magnús Eðvaldsson, Hvammstanga
6. Gunnar Þorgeirsson, Fitjum
7. Leó Örn Þorleifsson, Hvammstanga
8. Guðrún Eik Skúladóttir, Tannstaðabakka
9. Maríanna Eva Ragnarsdóttir, Stórhól
10. Pétur R. Arnarsson, Hvammstanga
11. Ingibjörg Jónsdóttir, Syðsta-Ósi
12. Þórarinn Óli Rafnsson, Staðarbakka
13. Ómar Eyjólfsson, Hvammstanga
14. Sigrún B. Valdimarsdóttir, Dæli
/BÞ
sætum öll mótin. [...] Lið
Hrímnis sigraði liðakeppnina
með 199,5 stig. Hrímnisliðið
stóð sig mjög vel í vetur og
voru liðsmenn þess nánast
alltaf í úrslitum,“ segir í
tilkynningunni.
Einstaklingskeppni
Ísólfur Líndal 90,0
Bjarni Jónasson 88,0
Þórarinn Eymundsson 85,0
Elvar Einarsson 77,5
Mette Mannseth 77,0
Liðakeppni
Hrímnir 199,5
Draupnir/Þúfur 173,5
Laekjamot.is 166,5
Nánari samantekt frá loka-
mótinu má finna á Feyki.is
undir Hestar. /BÞ
á Norðurlandi vestra. Jafnframt
að styðja við vöruþróun og
markaðs- og kynningarstarf
ferðaþjónustufyrirtækja í því
skyni að það verði faglegra og
árangursríkara.
Undirbúningur samstarfs-
samningsins hófst í byrjun árs
2013. Samstarfssamningurinn
er til tveggja ára og felur í sér að
ráðinn verður starfsmaður hjá
Samtökum sveitarfélaga á
Norðurlandi vestra sem vinna
mun að skilgreindum verk-
efnum með félagasamtökum á
vettvangi ferðaþjónustu á
Norðurlandi vestra. Félög í
ferðaþjónustu á svæðinu munu
skipa fagráð sem starfa mun
náið með starfsmanninum og
Samtökum sveitarfélaga á
Norðurlandi vestra. /BÞ
Lið Hrímnis. Mynd: Svala Guðmundsdóttir
Frá undirritun samningsins. Mynd: SSNV