Feykir - 22.04.2014, Blaðsíða 10
10 Feykir 15/2014
Microbar & bed
Til stendur að opna nýjan bar og gistiheimili á Sauðárkróki undir nafninu
Microbar & bed, á Aðalgötu 19 (gamla Apótekinu), í upphafi Sæluviku. Á
bakvið þessa nýju viðbót í flóru veitinga- og gistingageirans er Árni Hafstað,
eigandi Gæðings brugghúss í Útvík í Skagafirði. Feykir leit við á Microbar &
bed á meðan framkvæmdir stóðu sem hæst.
Nýr bar og gistiheimili opna á Sauðárkróki
nýklæddir, þetta var allt
óeinangrað,“ segir hann.
Barinn mun skarta vegg-
myndum eftir Hugleik Dagsson
en það má segja að hann sé
hirðlistamaður Gæðings þar
sem hann hefur jafnframt
hannað alla miða á umbúðir úr
framleiðslu brugghússins.
Barinn og gistiheimilið voru
farin að taka á sig mynd þegar
blaðamann Feykis bar að garði
og hægt að sjá fyrir sé notalega
pöbbastemningu, sötrandi
svalandi drykki í góðum
félagsskap, jafnvel í kvöldsólinni
úti á veröndinni vestan við
húsið. „Stemningin á barnum
er hugsuð svo að fólk hafi ofan
af fyrir sér sjálft - það á bara að
koma og njóta staðar og stund-
ar. Við ætlum að höfða til þess
hóps sem hefur verið ósýnilegur
síðdegis, eftir lokun Skagfirð-
ingabúðar,“ segir Árni og
brosir. „Fólksins sem hugsar til
morgundagsins, með barna-
uppeldi og vinnu og fer því ekki
á djammið.“ Ætlunin er að
opna Microbar snemma á
daginn, líklega um kl. 16 en að
sama skapi mun hann einnig
Barinn verður að samskonar
gerð og sá sem Gæðingur hefur
starfrækt í Reykjavík við góðan
orðstír. Árni segir að stefnt sé á
að opna barinn í forsælunni,
laugardaginn 26. apríl, ef allt
gengur samkvæmt áætlun. En
þegar viðtalið fór fram voru
ekki öll tilskyld leyfi komin í
hús, enda framkvæmdir enn í
fullum gangi. Árni segir þetta
hanga allt á sömu spýtunni,
varðandi brunavarnir, rekstrar-
leyfi vínveitingastaðarins og
þess háttar.
„Framkvæmdir hafa gengið
mjög vel. Þetta er eins og alltaf,
maður snýr blinda auganu að í
byrjun. Maður heldur að það
þurfi ekkert annað að gera en
að ryksuga og þurrka af og svo
geta fyrstu gestirnir komið. En
maður veit svo sem að í húsi
sem er byggt á þar síðustu öld
[1897 innsk. blm.] að þá má
búast við að það sé töluvert
mikið sem þarf að gera, enda
verður það eiginlega alveg eins
og nýtt að innan. Allir veggir
VIÐTAL
Berglind Þorsteinsdóttir
Feðgarnir Halldór og Árni Hafstað á efri hæð gistiheimilisins.
loka snemma. „Þannig að menn
geta kannski komið í framhaldi
af vinnu, áður en farið er heim
til að hræra í pottunum. Ég
hugsa að það verði bara sama
módelið og í Microbar í
Reykjavík, þá lokum við fyrir
afgreiðslu fyrir miðnætti,
þannig að kl. 1 verði allir farnir
úr húsinu án þess að við þurfum
að beita andlegu eða líkamlegu
ofbeldi að koma fólki út, ef það
er tómt í glösunum þá fer það
út. Skagfirðingar verða að fara
að taka upp nýja drykkjusiði og
byrja fyrr,“ segir hann í gaman-
sömum tón.
Áætlað er að gistiheimilið
opni í byrjun júnímánaðar en
það verður fimm herbergja
gistiheimili. „Tvö þeirra verða
aldrei meira en twin herbergi en
þrjú geta verið double. Það
verður engin þjónusta sem slík
og verður afgreiðslan tengd
starfsmanni barsins. Þannig að
þeir sem koma í gistingu sækja
lykla þangað ef það er opið,“
segir Árni.
Anna vart eftirspurn
Það hefur verið nóg að gera hjá
Gæðingi og segir Árni brugg-
húsið vart anna eftirspurn.
„Eftirspurnin hefur aukist mjög
mikið í vetur en einnig hefur
verið skortur á hráefni. Svo má
segja að við fáum svo eina
jólavertíð aukreitis í vor, ef allt
gengur eftir. Það fer frá okkur
stór pöntun til Kanada,
einhversstaðar á bilinu 12-23
þúsund flöskur af Stout. Ef það
verða í kringum 20 þúsund
flöskur þá er það ekki mjög
langt frá jólaframleiðslunni.“
Gæðingur hefur áður fengið
pantanir erlendis frá en
brugghúsið hefur einnig sent
tvær stórar pantanir til
Eistlands. „Á meðan þetta er
ekki bara ein sending þá finnst
manni þetta að vera að byrja,“
segir Árni.
Helsta nýjungin hjá Gæðingi
þessa dagana er sú að nú er Pale
Ale ölið komið á dósir og segir
Árni mjög spennandi að sjá
hvernig það gengur og hvað
kemur í framhaldinu af því.
Senn líður
að Sæluviku
Ein elsta lista- og menningarhátíð landsins
Hin fornfræga Sæluvika, sem er ein elsta lista- og menn-
ingarhátíð landsins, verður sett á sunnudaginn. Sæluvikan
er að flestu leyti með svipuðu sniði og áður; mikið er lagt
upp úr leiksýningum, tónleikum, kvikmyndasýningum,
málverkasýningum, hestasýningum og fleiri menningar-
tengdum viðburðum.
„Sæluvikan er að segja má hápunktur skagfirsks menningar-
starfs og kannski eins konar uppskeruhátíð. Á aðeins rúmlega
vikutíma eru fjölmargar frumsýningar og skemmtilegir menn-
ingarviðburðir vítt um breitt um héraðið. Þar fáum við að sjá
árangur þrotlausra æfinga og mikils undirbúnings sem fjöldi
hæfileikaríkra einstaklinga hefur lagt á sig til að skemmta
íbúum héraðsins og öðrum gestum Sæluviku. Þetta er algjörlega
ómetanlegt,“ segir Sigfús Ingi Sigfússon verkefnastjóri hjá
Sveitarfélaginu Skagafirði.
Nýjungarnar í ár felast einkum í nýjum verkum sem verða
flutt eða sýnd, hvort sem um er að ræða leiksýningar, tónleika,
listsýningar eða annað í þeim dúr. Eins og fram kemur annars
staðar í blaðinu er Sæluvikustykki Leikfélags Sauðárkróks í ár
Rjúkandi ráð eftir þá Jónas Árnason og Stefán Jónsson, með
lögum eftir Jón Múla Árnason og Karlakórinn Heimir verður
með Sæluvikutónleika, en sérstakur gestur þeirra er Kristinn
Sigmundsson. Myndlistarfélagið Sólon verður með samsýn-
ingu listamanna. Skemmtilegir tónleikar, undir yfirskriftinni
„Þú sem eldinn átt í hjarta“, þar sem flutt verða skagfirsk lög,
verða í Sauðárkrókskirkju. Þar verður einnig hið árlega
Kirkjukvöld kirkjukórsins. Þá má nefna bílabíó sem verður á
planinu við Skagfirðingabúð. Of langt mál væri að telja upp alla
þessa viðburði, en þeir eru allir í Sæluvikudagskránni.
„Ég er nú svo hæfileikalaus að ég passa mig mjög vel á að
vera ekki í neinu merkilegu hlutverki í Sæluvikunni,“ segir
Sigfús Ingi, aðspurður um hlutverk sitt í Sæluvikunni, og bætir
við: „Mitt hlutverk er fyrst og fremst að auglýsa eftir viðburðum,
halda utan um dagskrána og púsla henni saman, í samstarfi við
listafólkið, koma viðburðum á framfæri og halda utan um
kynningarmálin. Þegar þetta er klárt rúllar dagskráin jafnan
mjög vel enda byggir Sæluvikan á mjög langri hefð og allir
kunna sitt hlutverk vel.“
Þú ert bóndi líka, bíða kindurnar rólegar eftir að Sæluvika
og atvinnulífssýningin líði hjá? „Nei, ég á eins og þú segir
nokkrar rollur, en burður á að hefjast undir lok Sæluviku. Þá er
gott að vera vel kvæntur því það lendir á frúnni að taka vaktina
fyrstu dagana í burði. Við reynum svo að skipta vaktinni
nokkuð á milli okkar, auk þess sem karl faðir minn býr ekki
fjarri okkur og hefur jafnan aðstoðað okkur við búskapinn
þegar þörf er á.“ /KSE