Feykir - 22.04.2014, Blaðsíða 18
18 Feykir 15/2014
Hvað getum við gert
fyrir atvinnulífið?
Farskólinn er öflug símenntunarmiðstöð sem starfar á Norðurlandi vestra. Ein af
stóru áherslunum í starfi Farskólans er að mæta þörfum fyrirtækja og stofnana
fyrir endurmenntun starfsfólks. Í kjölfar rannsókna á menntun á Norðurlandi
vestra sem gerðar voru á síðasta ári á vegum verkefnis sem kallast „Tilraunaverkefni
um hækkað menntunarstig í Norðvestur kjördæmi“ og kynntar voru fyrir íbúum
á dögunum, hefur áhersla á menntunarþarfir vinnustaðanna og nálgun við
atvinnulífið aukist enn frekar.
Farskólinn – miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra
eftir og skipuleggja klæðskera-
saumuð námskeið með þarfir
atvinnulífsins að leiðarljósi.
Starfi fræðsluerindreka sinnir
Hörður í 50% stöðugildi en
aðrir starfsmenn Farskólans
koma einnig að þessu viðamikla
verkefni. Fræðsluerindrekar
eru þegar farnir að heimsækja
fyrirtækin og einnig hefur
Farskólinn fengið heimsóknir
frá vinnustöðum.
Þungamiðja hverrar heim-
sóknar fer eftir þörfum við-
komandi vinnustaðar. Hörður
segir að mikið sé verið að horfa á
starfsnám á vettvangi fyrir-
tækjanna. „Allt eftir þörfum og
vilja þeirra, þar sem jafnvel er
farið inn í fyrirtækin og nám-
skeiðin haldin þar á vinnutíma.
Þá eigum við til ýmsar nám-
skrár, vottaðar af mennta- og
menningarmálaráðuneytinu og
styrktar af Fræðslumiðstöð at-
vinnulífsins (FA), sem má auð-
veldlega sveigja að þörfum fyrir-
tækja í ýmsum starfsgreinum.“
Sem dæmi um almenn
námskeið nátengd atvinnulífinu
má nefna að um þessar mundir
stunda þrír hópar nám í Skrif-
stofuskólanum, sem kenndur er
samkvæmt einni af áðurnefn-
dum námskrám FA. Í þeim
hópum eru ýmsir sem vilja efla
Að sögn Harðar Ríkharðssonar,
verkefnastjóra hjá Farskólan-
um, leiddu áðurnefndar rann-
sóknir í ljós að áhugi og þörf
atvinnulífsins fyrir sí- og
endurmenntun er enn meiri en
fyrirfram var talið. „Stjórn-
endur vilja láta hnippa í sig og
starfsfólk hefur mikinn áhuga,“
segir Hörður.
Í framhaldi af tilraunaverk-
efninu var ákveðið að ráða til
starfa fræðsluerindreka, en í
þeirra hlut kemur að fylgja
niðurstöðum rannsóknarinnar
VIÐTAL
Kristín Sigurrós Einarsdóttir
Smíði fyrsta
bátsins hafin
Mótun plastbátaverksmiðja á Sauðárkróki
Skagafirði. Ný námsbraut hefur
litið dagsins ljós við FNV og er
skólinn leiðandi í þeirri vinnu á
landsvísu. Að fá inn á svæðið
fyrirtæki sem framleiðir úr
trefjum og getur tengt saman
atvinnulífið og skólann, og nýtt
þekkingu nemenda heima í
héraði,“ sagði Stefán um
aðdragandann að því að þessari
verksmiðju var komið á lagg-
irnar á Sauðárkróki.
Aðkoma sveitarfélagsins að
verksmiðjunni hefur verið
nokkuð umdeild og sitt sýnist
hverjum í þeim efnum. „Ein-
hverjir hafa gagnrýnt það að
sveitarfélagið komi að rekstri
fyrirtækja. Ég hef bent á það að
það sé ekkert óeðlilegt við það
að sveitarfélagið komi að því að
efla atvinnulíf í héraðinu með
því að draga inn nýja atvinnu-
grein og styrkja tímabundið
meðan verkefnið er að komast á
fæturna. Aldrei hefur staðið til
að sveitarfélagið muni eiga hlut
sinn um ókomna tíð heldur er
Eftir nokkurra ára undir-
búningsvinnu hefur plast-
bátaverksmiðjunni Mótun
verið komið á laggarnir á
Sauðárkróki. Þá hefur ný
námsbraut litið dagsins ljós
við Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra (FNV)
þar sem sú iðn að framleiða
plastbáta úr trefjum er kennd.
Stefnan er sú að skólinn verði
leiðandi á þessu sviði og að
þekking nemenda nýtist heima
í héraði. Feykir hafði samband
við Stefán Vagn Stefánsson,
formann byggðaráðs Sveitar-
félagsins Skagafjarðar, og spurði
hann um aðdragandann að
stofnun verksmiðjunnar og
hvernig starfsemin færi af stað.
„Sveitarfélagið hefur verið í
vinnu undanfarin ár, í sam-
vinnu við bæði atvinnulífið og
FNV, um að efla trefjaiðn í
VIÐTAL
Kristín Sigurrós Einarsdóttir
eingöngu verið að stuðla að
fjölbreyttari atvinnu í Skaga-
firði. Mörg fordæmi, bæði
héðan úr Skagafirði og annars
staðar, eru fyrir því að sveitar-
félög komi að rekstri félaga og
yfirleitt með það að markmiði
að styrkja atvinnu líkt og er í
þessu tilfelli,“ sagði Stefán
Vagn.
Í verksmiðjunni verða
smíðaðir svo kallaðir Gáska
bátar, í mismunandi útfærslum,
en möguleikar eru á að fram-
leiða aðrar vörur úr trefjum
samhliða og með bátasmíðinni.
Gert er ráð fyrir að bátarnir
verði afhentir fullbúnir úr verk-
smiðjunni eða eftir samkomu-
lagi hverju sinni. Reiknað er
með að geta framleitt um sex
báta á ári þegar framleiðslan er
kominn í fullan gang, en þegar
liggja fyrir pantanir á tveimur
bátum þrátt fyrir að markaðs-
setning sé ekki hafin. Sá fyrri
verður fullbúinn í sumar.
Verksmiðjan er til húsa við
Sæmundargötu á Sauðárkróki,
þar sem áður var rekið bifreiða-
verkstæði Áka. Að sögn Stefáns
er búið að gera lagfæringar á
því húsi til þess að það geti
rúmað slíka framleiðslu. „Starf-
semin er hafin og verið er að
undirbúa vinnu við fyrsta
bátinn. Nú þegar hafa verið
ráðnir tveir starfsmenn en gert
er ráð fyrir einum til viðbótar,
auk þess er gert ráð fyrir að taka
inn menn í tímabundna vinnu
þegar álagið er þess eðlis,“ sagði
Stefán Vagn.
Stefán segir það von þeirra
sem að verksmiðjunni standa
að fyrirtækið njóti góðs af því
að umrædd námsbraut sé til
staðar við FNV og að fyrirtækið
nýtist FNV til kennslu nem-
enda. Stefán er vongóður um
að trefjaiðnaðurinn geti vaxið
enn frekar á svæðinu. „Mín
skoðun er sú að möguleikarnir
séu mjög miklir í úrvinnslu á
trefjum og hef ég trú á því að
þetta fyrirtæki geti vaxið og
dafnað vel hér í Skagafirði.“
sig í núverandi starfi, eða hafa
áhuga á að skipta um starfs-
vettvang. Þá má nefna að tölu-
verð uppsveifla er í íslensku-
námskeiðum fyrir útlendinga og
sífellt er leitað nýrra leiða til að
ná sem best til þeirra sem sækja
slík námskeið. Fisktækninám er
í undirbúningi, í samvinnu við
FISK Seafood hf., Fisktækni-
skólann í Grindavík og Fjöl-
brautaskóla Norðurlands vestra.
Fleiri fræðsluverkefni má
nefna eins og tungumálanám-
skeið í samstarfi við ferðaþjón-
ustuaðila í Austur-Húnavatns-
sýslu og námskeið í
verkefnastjórn og markaðs-
setningu á netinu fyrir heils-
ársstarfsmenn í ferðaþjón-
ustunni, sem var mjög vel sótt.
Farskólinn skipulagði einnig tvö
stór námskeið fyrir Sveitar-
félagið Skagafjörð, annað í
verkefnastjórnun og hitt í
stjórnun og samskiptum.
„Við viljum gera meira af því
að þjónusta atvinnulífið á
svæðinu og erum markvisst að
efla þjónustu við fyrirtækin,“
segir Hörður. Hann vill að
lokum hvetja forsvarsmenn
fyrirtækja og stofnana til að
setja sig í samband við Farskól-
ann og fá kynningu á því sem
kann að vera í boði.
Fullbúinn Gáskabátur kominn á sjó. Mynd: Reginn Grímsson
Úr starfi Farskólans. Mynd: Farskólinn
Mótið sem notað er við smíði bátanna.