Feykir - 24.07.2014, Page 1
á
BLS. 6-7
BLS. 8
Harmonikuleikarinn
Jón Þorsteinn
Stundar
bachelornám í
Kaupmannahöfn
BLS. 7
Spjallað við Júlíus Aðalstein
um tónlistina, lífið og
ferðalögin
Tónleikaferðir
um allan heim
Unglistahátíðin Eldur í
Húnaþingi hófst í gær
„Þetta smellur
allt á réttum
tíma“
28
TBL
24. júlí 2014
34. árgangur : Stofnað 1981
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
BÍLAVERKSTÆÐI
Hesteyri 2 550 Sauðárkrókur Sími 455 4570
Við þjónustum bílinn þinn!
Alhliða bílaviðgerðir fyrir fólksbíla,
vörubíla og dráttarvélar. Réttingar og sprautun.
G R Æ J U B Ú Ð I N Þ Í N
www.riverrafting.is - s: 453 8245
Paintball
River rafting
Wipeout
Tjaldstæði
Heitir pottar
Vætusamur tjaldbúskapur
Tjöldum í Skagafirði
Fyrirtækið Álfaklettur rekur fjögur
tjaldsvæði í Skagafirði undir heitinu
Tjöldum í Skagafirði. Um er að ræða
tjaldsvæðin á Hofsósi, Hólum,
Sauðárkróki og Skagafirði.
Að sögn Hildar Þóru Magnúsdóttur
framkvæmdastjóra Álfakletts hefur
verið mikil aðsókn á tjaldsvæðin í sumar
og munar þar t.a.m. mikið um útilegu-
kortið sem nú gildir á Sauðárkróki. Þá
hefur Hofsós tekið mikinn kipp eftir að
komið var upp nýju aðstöðuhúsi þar.
Hildur Þóra segir að vatnsveðrið að
undanförnu hafi vissulega haft áhrif á
tjaldbúskapinn. Tjaldsvæðin fari mjög
illa og dæmi séu um að bílar hafi fest sig.
Vegna bleytunnar er ekki hægt að kom-
ast að með vinnuvélar til að vinna að
viðgerðum, en þegar Feykir hitti Hildi
Þóru að máli var verið að leita lausna í
samvinnu við Sveitarfélagið Skagafjörð.
/KSE
Latibær og Páll Óskar vöktu lukku
Húnavaka á Blönduósi 2014
Hin árlega bæjarhátíð Húnavaka var
haldin á Blönduósi um síðustu helgi.
Að sögn Kristínar Ingibjargar Lárus-
dóttur, sem stýrði hátíðinni ásamt
bróður sínum, Eysteini Pétri, gekk
hátíðin vel. „Þrátt fyrir rigningu á
laugardaginn var hlýtt og logn og
mætingin var miklu betri en í fyrra.“
Íþróttaálfurinn og Solla stirða úr
Latabæ mættu á svæðið á laugardaginn
og vöktu mikla kátínu. Sama er að segja
um diskókónginn sjálfan, Pál Óskar, sem
skemmti bæði á kvöldvöku og dansleik.
„Ég hef aldrei upplifað aðra eins
stemmingu í félagsheimilinu, fólk var að
mæta alls staðar af Norðurlandi til að
komast á Pallaball,“ segir Kristín um
dansleikinn.
Þá gerðu sápurennibraut, sem fengin
var að láni frá Hvammstanga og hefur
verið vinsæl á bæjarhátíðinni þar, og
kassabílarallý, sem einnig var nýjung á
hátíðinni í ár, mikla lukku. Einnig var
söngkeppnin Míkróhúnninn á sínum
stað. Segist Kristín ánægð og þakklát
með hversu vel tókst til með dagskrána.
/KSE
Frá Húnavöku. Mynd: Kristín Ingibjörg Lárusdóttir
Þessa mynd tók blaðamaður á tjaldsvæðinu
á Sauðárkróki sl. mánudag.