Feykir - 24.07.2014, Blaðsíða 5
28/2014 Feykir 5
1. deild karla: Tindastóll – BÍ/Bolungarvík 4-6
Tíu marka tryllir en niðurstaðan tap
Áhorfendur á Sauðárkróksvelli
fengu að líta markaveislu
þegar Tindastóll og BÍ/
Bolungarvík mættust í 1.
deildinni sl. laugardag.
Staðan í hálfleik var 1-3 en
þegar upp var staðið sigruðu
gestirnir 4-6 þrátt fyrir góða
baráttu heimamanna.
Það voru varla liðnar tvær
mínútur þegar BÍB komst yfir
eftir að Fannar Freyr tapaði
boltanum við miðlínu. Orlando
Bayona, einn af sex erlendum
leikmönnum gestanna, hamraði
boltann í markið. Annað mark
leiksins gerði Björgvin Stef-
ánsson á 23. mínútu og fór nú
um heimamenn en Stólarnir
komust óvænt inn í leikinn aftur
tveimur mínútum síðar þegar
Morin rændi boltanum af aftasta
varnarmanni og afgreiddi hann
laglega í markið. Eftir þetta var
allur annar bragur á liði heima-
manna sem sýndi í kjölfarið
ágætt spil og liðið skapaði sér
nokkur sæmileg færi eftir
laglegar sóknir. Það var því
nokkuð þungt högg þegar
Stólarnir gerðu sjálfsmark eftir
hornspyrnu gestanna rétt fyrir
hálfleik.
Heimamenn komu ákveðnir
til leiks í síðari hálfleik og nú
hafði bætti í rigninguna. Hún
hafði sitt að segja þegar Stólarnir
Um helgina mun Bílaklúbbur Skagafjarðar
standa fyrir þriðju umferð í Íslandsmeist-
aramótinu í rallý. Klúbburinn sem fagnar 25
ára afmæli sínu með þessu rallý hefur um
árabil haldið eina bestu keppni mótsins í
nágrenni Sauðárkróks.
Leikar hefjast nk. föstudagskvöld klukkan 18
við Skagfirðingabúð og verður ekið um Þverárfjall
en það er einstaklega skemmtileg áhorfendaleið
þar sem ekið er samhliða þjóðveginum, ýmist
vinstra eða hægra megin. Meðan á keppni stendur
er þjóðvegurinn lokaður á þeim stað sem ekið er
yfir veginn en áhorfendur geta staðsett sig á milli
lokana og notið keppninnar þannig enn betur.
Keppninni lýkur síðan á föstudagskvöldið
með innanbæjarleið um Sauðárkrókshöfn. Er
fólk hvatt til að koma og fylgjast með keppnunum,
einfalt er að ganga að Sauðárkrókshöfn eða leggja
bílum við Kjarnann og ganga inn á áhorfenda-
svæðin.
Eftir næturhlé verður haldið upp á Mælifellsdal
en þar reynir gríðarlega á bæði bíla og áhafnir þar
sem sú leið er 22 km löng. Sú leið verður ekin
fram og til baka, hafa ýmsar áhafnir endað keppni
á þeim leiðum. Að því loknu verður Vestur-
dalurinn einnig ekinn fram og til baka. Síðasta
leið keppninnar er að venju áhorfendaleiðin um
svokallaðar Nafir. Sú leið hefur ávallt verið augna-
yndi áhorfenda enda innanbæjarleið, þar sem
gestir geta auðveldlega gengið og fylgst með.
Auk þess verður síðari ferðin svokölluð
Gestacoara-leið. Á slíkri leið fá gestir að spreyta
sig sem aðstoðarökumenn. Þrír heppnir vinnings-
hafar af sýningunni Kraftur verða meðal þeirra.
Er fólk hvatt til að koma og fylgjast með
keppninni en bent á að virða öryggislokanir.
/Fréttatilkynning
Þriðja umferð í rallýinu um helgina
Kaffi Króks rallý
Bærinn mun iða af lífi um
verslunarmannahelgina
þegar 17. Unglingalandsmót
UMFÍ verður haldið á
Sauðárkróki. Unglingalands-
mót er mikið meira en
keppni og hefur hópur fólks
lagt sig fram við það að
búa til metnaðarfulla og
spennandi afþreyingar-
dagskrá.
Feykir hafði samband við
Laufeyju Kristínu Skúladóttur
afþreyingarstjóra, Daníel Loga
Þorsteinsson sem situr í ungl-
ingaráði mótsins og Auðunn
Blöndal sjónvarps- og útvarps-
mann og skemmtikraft.
Nóg verður um að vera
fyrir alla gesti mótsins um
helgina en þeim krökkum sem
ekki hafa aldur til að taka þátt í
Unglingalandsmótinu (yngri
en 10 ára) býðst að taka þátt í
sérstöku frjálsíþróttamóti og
fótboltaleikum. Einnig verður
sápukúluland, andlitsmálun,
leiktæki, hægt að setjast niður
og hlusta á sögur og margt,
margt fleira. ,,Það er því fullt í
boði fyrir litlu systkinin þó
þau geti ekki formlega skráð
sig til keppni á mótinu fyrr en
þau verða 10 ára,” segir Laufey
Kristín Skúladóttir, afþrey-
ingarstjóri mótsins. ,,Svo er
auðvitað margt í boði fyrir
foreldrana líka eins og skokk,
Zumba og gönguferðir um
bæinn. Svo verða líka kynn-
ingar á allskonar íþróttum
fyrir allan aldur, allt frá strand-
blaki, Júdó, Parkour og fleira.”
Undirbúningurinn gengið vel
Að sögn Daníels Loga Þor-
steinssonar sem situr í
unglingaráðinu hefur undir-
búningur mótsins gengið
mjög vel og mikil tilhlökkun
komin í hópinn. ,,Við höfum
verið að mæta reglulega á
fundi á vegum UMFÍ og
skipulagt mótið og afþreyingu
þess. Þetta gengur eins og
smurt fyrir sig, enda flottur
hópur sem heldur utan um
þetta. Við erum auðvitað öll
mismunandi og höfum mis-
munandi skoðanir. Þótt smá
núningur hafi myndast af og
til þá komumst við alltaf að
sameiginlegri ákvörðun.”
Daníel hlakkar alveg gífur-
lega til mótsins og segist ekki
geta beðið eftir að fá að njóta
verslunarmannahelgarinnar
með fjölskyldu og vinum á, því
sem hann telur, besta Ungl-
ingalandsmótinu hingað til.
Ekkert sem toppar
að skemmta í
gamla heimabænum
Auðunn Blöndal, eða Auddi
Blö eins og hann er oftast
kallaður verður á meðal þeirra
sem skemmta landsmóts-
gestum um helgina. Hann
ætlar að bjóða fólki upp á
almennan hressleika, létta
Ísland Got Talent keppni og
margt fleira skemmtilegt.
Aðspurður hvernig það leggist
í hann að koma og skemmta í
gamla heimabænum segir
hann ekkert toppa það. ,,Við
Jón Jónsson vorum einmitt á
Króknum um daginn að
skemmta á Landsbankamót-
inu og var það virkilega
gaman. Maður er nú ekki með
stand up-ið sem maður notar
á fullorðinsskemmtunum en
reynir nú að skemmta eldra
liðinu í leiðinni með svona
földum djókum.” Sjálfur segist
Auðunn hafa tekið þátt í
fótbolta á einu Unglingalands-
móti og hafi liðinu hans gengið
mjög vel fyrri daginn. Seinni
dagurinn hafi aftur á móti
verið erfiðari enda hafi nokkrir
úr liðinu skroppið á ball í
Miðgarði á laugardagskvöld-
inu og gengi sunnudagsins
eftir því.
Flottur hópur fólks mun sjá
um að skemmta landsmóts-
gestum um helgina en auk
Auðunns munu Sverrir Berg-
mann, Úlfur Úlfur, Latibær,
Basic House Effect, bræðurnir
Jón Jónsson og Friðrik Dór,
Þórunn Antonía og DJ JoJo
mæta á svæðið. /GSG
Spennandi
afþreyingardagskrá um
verslunarmannahelgina
17. Unglingalandsmót UMFÍ á Sauðárkróki
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR www.feykir.is/ithrottir
Gísli ræðir málin við Nigel Quashie eftir að Konni meiddist.
minnkuðu muninn á 55. mínútu
en þá slapp Mark Magee inn
fyrir vörn gestanna eftir
kómískan varnarleik og setti
boltann af öryggi í netið. Það tók
BÍB aðeins tvær mínútur að auka
forskotið og Björgvin skoraði
annað mark sitt í leiknum.
Stólarnir gáfust ekki upp og
reyndu að sækja að marki
gestanna og uppskáru mark á 73.
mínútu þegar Benni skrúfaði
boltann laglega í fjærhornið eftir
hamagang við vítateig BÍB. Enn
voru gestirnir fljótir að svara og
gerði Aaron Spear laglegt mark á
77. mínútu og staðan 3-5. Stuttu
síðar meiddist Konni illa eftir að
hafa lent í harkalegu samstuði
við köggulinn Nigel Quashie
sem fór í óþarfa tæklingu. Konni
var borinn sárþjáður af velli og
þar sem Bjarki þjálfari var ný-
kominn inn á þá voru Stólarnir
búnir með skiptingarnar. Nú
spiluðu menn með hjartanu og
héldu áfram að sækja og á 90.
mínútu gaf Bjarki sínum mönn-
um von þegar hann skoraði með
flottum skalla eftir fyrirgjöf
Benna. Staðan 4-5 og nú hentu
Tindastólsmenn öllum fram og
pressuðu af miklum móð. Í
uppbótartíma vörðu gestirnir á
línu en þeir náðu skyndisókn á
94. mínútu, komust fjórir á tvo
þrátt fyrir rangstöðufnyk og
skoruðu af öryggi sjötta mark sitt
í leiknum. Lokatölur 4-6.
Næsti leikur hjá Stólunum er
laugardaginn 26. júlí, en þá mæta
strákarnir liði KV á gervigras-
vellinum í Laugardalnum. /ÓAB
Bensínið í botn!