Feykir - 24.07.2014, Side 2
2 Feykir 28/2014
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Berglind Þorsteinsdóttir – berglind@feykir.is & 455 7176
Blaðamenn:
Kristín Sigurrós Einarsdóttir – kristin@feykir.is & 867 3164
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is Guðrún Sif Gísladóttir – gudrun@feykir.is
Hrafnhildur Viðarsdóttir – hrafnhv@nyprent.is
Áskriftarverð: 450 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 490 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
LEIÐARI
Margur verður af aurum api!
Mér hefur haldist þokkalega á ýmsu á lífsleiðinni. Til að
mynda hef ég tollað ágætlega í vinnu, átt með eiginmanninum
hálfa ævina, margir af vinum mínum hafa þolað með mér
áratugi og svo mætti áfram telja.
Ég er hins vegar ekki íhaldssöm í
pólitískum skilningi en það sem
tollir þó einna verst í fórum
mínum eru peningar.
Þegar ég var að slíta bernsku-
skónum í Lundarreykjadalnum
skildi ég ekki hvers vegna ekki
væri hægt að prenta peninga í
því magni að allir ættu nóg. Ég
spurði föður minn að þessu og
eflaust hefur hann útskýrt þetta á
sinn yfirvegaða hátt, því hann
vissi jú allt og gat alltaf ráðið manni heilt. En engu að síður skil
ég ekki enn í dag af hverju misskipt er mannanna auði.
Peningar koma og fara og í mínu tilfelli er gjarnan farar-
snið á þeim. Um mánaðarmót þarf ekki lengra en inn í
heimabankann og þar með skiptir stór hluti af því sem þénað
var þann mánuðinn um eigendur á augabragði. Ef að banka-
reikningurinn minn fitnaði jafnhratt og ég sjálf og BMI
stuðullinn jafngilti vaxtaprósentu Seðlabankans þá værum
bæði ég og reikningurinn í góðum málum.
En sumum er bara ekki ætlað að safna veraldlegum auði.
Ég er til dæmis afleitur sölumaður og myndi sennilega gefa
hálfan heiminn bara ef ég ætti hann á lager. Þá finnast mér
flest störf sem hljóða upp á heilu milljónirnar á mánuði frekar
óspennandi, en kannski er það af því ég hef ekki hæfileika til
að gegna þeim. Vísitölur eru mér alveg hulin fræði og þegar ég
heyri um að krónan veikist og styrkist detta mér annað hvort
hitamælar eða styrktaræfingarnar hjá Árna Stef. í hug.
Í gömlum íslenskum söngtexta segir að „dauðinn, sá mikli
rukkari, rétti oss reikninginn yfir það sem skrifað var hjá oss.“
Það kemur sem sé alltaf að skuldadögum og þá er alveg eins
gott að vera búin að losa sig við þá peninga sem maður er
hættur að nota.
Kristín S. Einarsdóttir, aurapúki
Setur strik í reikninginn
Vætutíð á Norðurlandi vestra
Vætutíðin á Norðurlandi
vestra í júlímánuði hefur vart
farið fram hjá nokkrum manni
og finnst mörgum að nóg sé
komið, enda úrkomumet
þegar slegin á nokkrum
stöðum áður en mánuðurinn
var á enda, eins og fram
hefur komið á vefnum feykir.
is. Feykir hafði samband við
nokkra bændur á svæðinu og
spurðist fyrir um hvernig
heyskapur gengi fyrir sig í
þessu tíðarfari.
Að sögn Írisar Jónsdóttur á
Þrasastöðum í Fljótum í
Skagafirði var heyskapur varla
byrjaður þar á bæ rétt fyrir
síðustu helgi. „Vætutíð hefur
mikið að segja og svo voru
ærnar lengi á túnum í vor, vegna
snjóa á hálendi, þannig að við
erum í seinna lagi í ár. Það horfir
til betri vegar eftir helgi og þá
verður spýtt í lófana,“ sagði Íris.
Halldór Hálfdánarson á
Molastöðum í sömu sveit segir
að hjá sér hafi sláttur hafist á
venjulegum tíma. Sprettan sé
afar góð en rigning setji strik í
reikninginn.
Á Hæli í Húnavatnshreppi í
Austur-Húnavatnssýslu hófst
heyskapur 22. júní, nokkuð fyrr
en venjulega. „Vætutíðin hefur
sett talsvert strik í reikninginn,
ársgamlar nýræktir eru mjög
blautar og talsvert um að tún séu
að spretta úr sér. Heyskapur
gengur mjög illa vegna vætutíðar
og blautra túna. Vonast er til að
þurrka spá næstu viku standist.
Önnur eins rigninga- og
sprettutíð hefur ekki verið í
mörg ár,“ sögðu ábúendur á
bænum, Ásdís Ýr Arnardóttir og
Jón Kristófer Sigmarsson, í
samtali við Feyki.
Svipaða sögu er að segja frá
Víðidalstungu í Vestur-Húna-
vatnssýslu. Þar hófst heyskapur
21. júní, sem er fyrr en vant er,
að sögn Hallfríðar Ólafsdóttur
bónda þar. „Það gekk þolanlega
með þetta fyrsta, sem var slegið
á kjörtíma. Síðan hefur lítið
gengið, vætutíðin er að hrella
okkur hressilega. Of seint hægt
að slá, ef maður álpast til að slá
nær maður því ekki fyrir
skúrum og það er að verða ansi
blautt um víða. En það er ægi-
lega gott veður, hlýtt og notalegt
- mætti bara stundum hanga
þurrt meira en nokkra klukku-
tíma í einu,“ sagði Hallfríður.
Hún bætti því við að menn
væru farnir að hafa áhyggjur af
smalamennskum í haust, miklar
bleytur væru alls staðar. „Maður
veit ekki hvernig á eftir að ganga
að fara um landið ef ekki kemur
þurrkakafli, t.d. er ekki fært á bíl
fram í fremsta skálann á heiðinni
(Víðidalstunguheiði, innsk.
blm.) ennþá. Því er hætt við
skemmdum á heiðavegunum
líka sem er mjög kostnaðar-
samt,“ sagði Hallfríður. /KSE
Sláttur í Fljótum. Mynd: ÓAB
Þrjátíu sóttu um tvö störf
Samtök sveitarfélaga á NLV
Þann 19. júní sl. rann út
umsóknarfrestur til að sækja
um starf atvinnuráðgjafa með
sérhæfingu á sviði ferðaþjón-
ustu, hjá Samtökum sveitar-
félaga á Norðurlandi vestra
(SSNV).
Alls bárust 19 umsóknir en
tveir umsækjendur drógu um-
sóknir sínar til baka.
Eftirfarandi sóttu um:
Aðalsteinn J. Halldórsson,
stjórnsýslufræðingur, Húsavík
Björn Sigurður Lárusson,
verkefnastjóri, Reykjavík
Davíð Jóhannsson,
rekstrarhagfræðingur,
Þýskalandi
G. Ágúst Pétursson,
verkefnastjóri, Blönduósi
Halla Ólafsdóttir,
umsjónarmaður gæðamála,
Skagafirði
Herdís S. Gunnlaugsdóttir,
framkvæmdastjóri,
Sauðárkróki
Hildur Þóra Magnúsdóttir,
atvinnuráðgjafi, Skagafirði
Högni Auðunsson,
framkvæmdastjóri, Reykjavík
Jón Pálsson, Ms. í
viðskiptafræði, Reykjavík
Jórunn Magnúsdóttir, fornleifa-
og menningarfræðingur,
Reykjavík
Katrín Sif Rúnarsdóttir,
gjaldkeri, Blönduósi
Linda Björk Hallgrímsdóttir,
ferðamála- og
umhverfisfræðingur, Reykjavík
Pálína Kristinsdóttir,
framkvæmdastjóri, Kópavogi
Steinunn Gunnsteinsdóttir,
ferðamálafræðingur,
Sauðárkróki
Steinþór Árnason, hótelstjóri,
Akranesi
Sveinbjörg Pétursdóttir,
fjáramálastjóri, Hvammstanga
Þuríður Helga Jónasdóttir,
menningarmiðlari og
leiðsögumaður, Reykjavík
Þann 7. júlí sl. rann út umsóknar-
frestur um starf framkvæmda-
stjóra SSNV, en Jón Óskar
Pétursson lætur af störfum eftir
að hafa verið í eins árs launalausu
leyfi sl. ár.
Alls bárust 13 umsóknir en
tveir umsækjendur drógu um-
sóknir sínar til baka.
Eftirfarandi sóttu um:
Aðalsteinn J. Halldórsson,
stjórnsýslufræðingur, Húsavík
Björn Sigurður Lárusson,
verkefnastjóri, Reykjavík
Drífa Sigfúsdóttir,
viðskiptafræðingur,
Reykjanesbæ
Einar Örn Thorlacius,
lögfræðingur, Reykjavík
Eirný Valsdóttir, fyrrverandi
bæjarstjóri, Reykjavík
Kristinn Dagur Gissurarson,
viðskiptafræðingur, Kópavogi
María Lóa Friðjónsdóttir,
framkvæmdastjóri,
Mosfellsbæ
Sigurður Sigurðarson,
rekstrarráðgjafi, Reykjavík
Sigurður Líndal Þórisson,
gæðastjóri, London
Skúli Þórðarson, stjórnmála- og
stjórnsýslufræðingur,
Hvammstanga
Þórir Sveinsson, skrifstofustjóri,
Patreksfirði.
Gengið verður frá ráðningum í
störfin á næstu dögum eða
vikum.
/Fréttatilkynning
Jarðsig fer vaxandi
Vegurinn milli Fljóta og Siglufjarðar
Eins og sagt var frá á forsíðu
Morgunblaðsins á mánu-
daginn telja kunnugir að
jarðsig við Almenninga á
Siglufjarðarvegi fari vaxandi.
Mikil úrkoma, óvenjumikill
snjór í fjöllum og sjávargangur
hefur valdið meira jarðsigi, að því
er Morgunblaðið hefur eftir
Sveini Zophoníassyni, verkstjóra
hjá Bás vélaleigu og steypustöð
sem hefur unnið að viðhaldi á
veginum fyrir Vegagerðina.
Unnið hefur verið að viðhaldi
vegarins nú í vikunni, m.a. með
því að fræsa úr malbiki og leggja
bundið slitlag á tíu mismunandi
stöðum á veginum.
Kunnugir segja veginn orðinn
illkeyranlegan, en umferð á
þessum slóðum hefur aukist
mikið með tilkomu Héðins-
fjarðargangna og fara nú 800
bílar á dag þar um þegar mest
lætur. /KSE