Feykir - 24.07.2014, Blaðsíða 3
28/2014 Feykir 3
Þórdísi Ingu boðin þátttaka
Norðurlandamót íslenska hestsins í Herning
Ung skagfirsk hestakona, Þórdís Inga
Pálsdóttir á Flugumýri, hélt á mánudaginn til
Danmerkur þar sem hún mun taka þátt í
Norðurlandamóti íslenska hestsins sem fram
fer í Herning.
Þórdís stóð sig með glæsibrag á Landsmót-
inu á Hellu á dögunum og fékk í framhaldinu
boð um að taka þátt í NM2014. Feðginin og
Skagfirðingarnir Elvar Einarsson og Ásdís Ósk
Elvarsdóttir á Skörðugili eru einnig meðal
þátttakenda á mótinu.
Hesturinn sem Þórdís fær lánaðan til keppni
er Meyvant frá Feti og mun hún njóta aðstoðar
og leiðsagnar Skagfirðingsins Jóhanns Rúnars
Skúlasonar sem búsettur er ytra.
Þórdís mun nota tímann fram að móti til að
kynnast hestinum og þjálfa sig og hestinn til
þátttöku. Feykir mun fylgjast með gangi mótsins
og spjallað verður við Þórdísi þegar hún kemur
heim aftur að móti loknu. /KSE
ALLS STAÐAR
GAS
Sauðárkrókur: Byggingavörudeild KS, s. 455 4610.
Varmahlíð: Kaupfélag Skagfirðinga, s. 455 4680.
Hofsós: Kaupfélag Skagfirðinga, s. 455 4692.
Ketilás: Kaupfélag Skagfirðinga, s. 467 1000.
Hvammstangi: Orkuskálinn, s. 451 2465.
Þú getur slakað á og upplifað öryggi við grillið með AGA gas.
Öryggi sem felst í notkun á gæðavörum AGA og góðri þjónustu þegar þú heimsækir umboðsmenn eða söluaðila til
að fá áfyllingu á gashylkið. Sem stærsti söluaðili própangass á norður löndunum býður AGA upp á margar stærðir
og gerðir gashylkja. Sérfræðingar AGA geta veitt þér góð ráð um hvaða hylki hentar best miðað við aðstæður og
hvernig best er að meðhöndla própangas.
Farðu á www.gas.is og finndu nálægan sölustað eða sæktu öryggis leiðbeiningar og fáðu upplýsingar um AGA gas.
R
áð
an
di
-
au
gl
ýs
in
ga
st
of
a
eh
f
Erum í
Skagafirði
núna!
Borum eftir heitu og köldu vatni
og gerum tilboð í holur.
Upplýsingar og pantanir
í síma 575-1111 og í tölvupósti
thorsverk@thorsverk.is
Kormákur/Hvöt tók á móti
liði Léttis á Blönduósvelli
föstudaginn 18. júlí og var
fyrri hálfleikur fremur
tíðindalítill.
Ari Viðarsson leikmaður
Léttis fékk að líta gula spjaldið á
31. mínútu og tveimur mínút-
um síðar kom fyrsta mark leiks-
ins þegar Viggó Pétur Pétursson
kom Létti yfir 0-1.
Í seinni hálfleik fékk Kor-
mákur/Hvöt víti á 68. mínútu
og skoraði Arnar Ingi Ingvars-
son örugglega og jafnaði stöð-
una í leiknum, lokatölur 1-1.
Sigþór Snorrason leikmaður
Léttis og Hámundur Örn
Helgason leikmaður Kormáks/
Hvatar fengu báðir að líta gula
spjaldið á síðustu mínútunum.
Kormákur/Hvöt er í 4. sæti
riðilsins með 13 stig eftir 8 leiki.
Léttir er í 3. sæti með 13 stig
eftir 8 leiki. Næsti leikur Kor-
máks/Hvatar er 26. júlí, en þá
taka strákarnir á móti Afríku á
Hvammstangavelli kl. 17. /GSG
Jafntefli á Blönduósi
4. deild karla: Kormákur/Hvöt – Léttir 1-1
Vegagerðin hefur nú hafist
handa við að endurbyggja og
lagfæra Svínvetningabraut
með því að leggja bundið
slitlag áleiðis fram í Svínadal
í Austur-Húnavatnssýslu.
Leggur Blönduósbær
áherslu á að samhliða þessum
framkvæmdum verði gerður
reiðvegur, að því er segir í
nýjustu fundargerð byggðaráðs
Blönduósbæjar. Frá hesthús-
hverfinu meðfram Svínvetn-
ingabraut er mikil umferð
hestamanna þar sem um er að
ræða vinsæla rekstrarleið með
hross. Í ljósi þessi leggur
byggðaráð mikla áherslu á
reiðveginn og að hann verði
afmarkaður frá bílaumferð með
girðingu. /KSE
Vilja reiðveg samhliða fram-
kvæmdum í Svínadal
Svínvetningabraut lagfærð