Feykir - 24.07.2014, Síða 6
6 Feykir 28/2014
Spjallað við Júlíus Aðalstein um
tónlistina, lífið og ferðalögin
Fjölskylda Júlíusar er mikil
músíkfjölskylda. Faðir hans
spilar bæði á gítar og syngur og
segir Júlíus hann hafa smitað sig
og systkini sín af tónlistaráhuga
þegar þau voru að alast upp.
„Eldri systir mín lærði á gítar og
píanó, yngri bróðir minn er
gítarleikari og trommari, yngri
systir mín spilar á píanó og
yngsti bróðir minn er gítar-
leikari. Móðir mín spilar hins
vegar eingöngu á spil, en þess
má geta að hún vann einmitt
fyrstu verðlaun í félagsvist á
spilakvöldi Kvennabandsins á
Borðeyri síðastliðinn vetur“,
segir Júlíus í gamansömum tón.
Júlíus var sex ára þegar hann
VIÐTAL
Guðrún Sif Gísladóttir
Ásgeirs Trausta, Dýrð í dauða-
þögn. Þegar upptökur voru
byrjaðar á plötunni vorið 2012
og lög farin að hljóma í útvarpi,
þá fer Ásgeir að koma fram á
ýmsum stöðum og spyr mig
hvort mig langi ekki að taka
þessi gigg með honum. Við
höfðum verið að glamra og
gaula saman í einhver ár áður og
ég hef gert svolítið af textum
fyrir hann svo mér fannst það
alveg kjörið. Svo um það leyti
sem ég er að hætta að vinna við
að byggja brýr, þá byrjar tón-
Júlíus Aðalsteinn Róbertsson er fæddur og
uppalinn í Hrútafirði í Húnaþingi vestra, sonur
Hafdísar Þorsteinsdóttur og Róberts Júlíussonar.
Hann stundaði nám við Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra um tíma með nokkrum
hléum og lauk þar 1. stigi vélstjórnar og
útskrifaðist einnig sem húsasmiður. Júlíus
starfaði sem brúarsmiður í átta ár hjá
brúarvinnuflokki sem er gerður út frá
Hvammstanga en ákvað að hætta því sumarið
2012 og freista gæfunnar á öðrum sviðum. Hann
flutti til Reykjavíkur og hefur síðan þá verið að
spila á gítar og syngja með ungum manni að
nafni Ásgeir Trausti.
Hljómsveitin Ásgeir Trausti.
Júlíus Aðalsteinn með gítarinn.
byrjaði í tónlistarskóla og fyrsta
árið æfði hann á blokkflautu en
skipti svo yfir í trompet og
stundaði það hljóðfæri til tólf
ára aldurs. Á þeim tíma lærði
hann líka aðeins á píanó en er
hann var þrettán ára fór hann að
glamra á gítar og hefur spilað á
gítar allar götur síðan.
Hljómsveitin sem Júlíus
spilar í heitir Ásgeir Trausti, en
auk hans og Ásgeirs eru þrír
meðlimir úr reggí hljómsveit-
inni Hjálmum, þeir Guðmundur
Kristinn Jónsson, sem er einnig
„pródúser“ af fyrstu plötu
Ásgeirs, Dýrð í dauðaþögn,
Þorsteinn Einarsson, eldri
bróðir Ásgeirs, og Helgi Svavar
Helgason. „Hljómsveitin var
sett saman til að fylgja eftir
útgáfunni á fyrstu sólóplötu
-