Feykir - 24.07.2014, Síða 7
28/2014 Feykir 7
listarferill hans að taka flugið.
Og hef ég verið að spila með
honum síðan þá.“
Búnir að heimsækja
22 lönd
Tónlistin virtist fara heldur betur
vel í landann og segir Júlíus að
sennilega hafi selst um 30
þúsund plötur, bara á Íslandi.
„Eftir útgáfu plötunnar tók við
talsvert spilerí hérna heima
haustið 2012, svo vorum við
Ásgeir ansi duglegir að hoppa út
um allt með kassagítara oft í viku
og jafnvel nokkrum sinnum á
dag. Í ársbyrjun 2013 fórum við
svo að færa okkur út fyrir
landsteinana og má segja að við
séum búnir að vera þar meira og
minna síðasta eitt og hálfa árið.
Það er auðvitað alveg magnað að
fá tækifæri til að þvælast svona
um heiminn og sjá nýja staði.
Gæti trúað að við séum núna
búnir að heimsækja 22 lönd.
Áður en þetta byrjaði allt þá
hafði ég ekki einu sinni farið út
fyrir Ísland. Svo það eru for-
réttindi að fá að upplifa nýja
staði, mismunandi menningu og
fullt af fallegu fólki.“
Aðspurður hvort hann hafi
lent í skemmtilegum uppákom-
um á ferðalögum sínum segir
Júlíus fyrstu utanlandsferðina
alltaf vera minnisstæða. „Þá
fórum við bara tveir út, ég og
Ásgeir, og við vorum að spila í
Seattle. Við ákváðum að taka
leigubíl og láta keyra okkur að
húsinu sem Kurt Cobain,
aðalmaðurinn í Nirvana, átti og
bjó í sína síðustu daga. Við
skoðuðum það og tókum
myndir. Svo fengum við þá
snilldarhugmynd að labba til
baka. Innst inni langaði okkur að
villast og lenda í veseni. Það
tókst ljómandi vel og vorum við
rammvilltir í u.þ.b. fimm
klukkutíma í Seattle en skiluðum
okkur á hótelið okkar fyrir rest
með bólgna fætur en bros á vör.
Svo einhverra hluta vegna eru
alltaf minnistæðust giggin þar
sem eitthvað bilar og það er
einhver hasar. Þá er gaman.“
Júlíus er búinn að vera í góðu
sumarfríi undanfarið og hefur
tekið því rólega fyrir næstu
keyrslu, en næst á döfinni hjá
þeim félögunum er túr um Asíu
og Ástralíu. „Þetta verður örugg-
lega virkilega gaman. Svo sýnist
mér að við séum að fara að eyða
stórum hluta af haustinu í
Bandaríkjunum, sem er líka
mjög gaman, Ameríkaninn er
æðislegur. Þannig að framhaldið
lítur bara vel út og það verður
nóg að gera.“
Jón Þorsteinn Reynisson frá Mýrarkoti
á Höfðaströnd hélt Takk tónleika fyrir
Tónlistarskóla Skagafjarðar síðasta
þriðjudag, til að sýna þakklæti sitt sem
fyrrum nemandi skólans og rann allur
ágóðinn óskiptur til skólans. Jón
Þorsteinn er yngstur fjögurra barna
hjónanna Reynis Sveinssonar bónda og
Önnu Kristínar Jónsdóttir bónda,
organista og fyrrverandi
tónlistarkennara.
Jón Þorsteinn er búsettur úti í Danmörku
ásamt kærustu sinni Rakel Hinriksdóttur
og eiga þau von á sínu fyrsta barni í
september. Jón hefur verið í námi við Det
Kongelige Danske Musikkonservatorium
frá árinu 2012 þar sem hann stundar
bachelornám á harmoniku.
Jón Þorsteinn var ungur þegar hann
byrjaði að spila á hljóðfæri, en fimm ára
gamall æfði hann bæði á blokkflautu og
píanó. Þegar hann var átta ára byrjaði
hann að æfa á harmoniku samhliða
píanóinu, en snéri sér alfarið að
harmonikunni 14 ára. ,,Mig minnir að
mamma hafi byrjað að kenna mér á
hljóðfæri hérna heima nánast um leið og
ég var farinn að geta haldið haus. Þegar ég
var fimm ára byrjaði ég svo í Tónlistar-
skólanum á Hofsósi og lærði þar þangað
til ég byrjaði í FNV og fór að læra á tónlist
á Króknum.”
Árið 2010 flutti Jón Þorsteinn suður á
höfuðborgarsvæðið og ákvað að reyna
fyrir sér í tónlistarbransanum. Hann fékk
fljótlega inn í nokkrum kórum og vann
fyrir sér að stórum hluta með því að
syngja við jarðafarir auk þess sem hann
fékk hlutastarf við harmonikukennslu.
Eftir tvö fín ár í borginni fékk hann inni í
bachelornámi á harmoniku í Det
Kongelige Danske Musikkonservatorium í
Kaupmannahöfn og lauk í vor sínu öðru
ári þar.
Það hafði alltaf verið draumur hjá Jóni
Þorsteini að fara út í tónlistarháskóla og
reyna að gera spilamennskuna að atvinnu
sinni. ,,Mín skoðun er sú að maður hafi
alltaf gott af því að fara erlendis að læra,
sjá alla hluti í stærra samhengi og vera í
samfélagi með fleiri nemendum sem eru
að gera svipaða hluti og maður sjálfur. Ég
hef frá byrjun verið mjög ánægður með
allt varðandi námið, sem krefst þess að
maður leggi sig alltaf allan fram.
Kennslan og aðstaðan er frábær og
Kaupmannahöfn er dásamlegur staður að
búa á.”
Þrátt fyrir að að mjög gott sé að búa í
Kaupmannahöfn stefna Jón Þorsteinn og
Rakel á að flytja heim eftir námið, þó
búsetan ílengist ef hann ákveður að fara í
mastersnám þá segir Jón Þorsteinn Ísland
toga og þau muni alltaf enda hér heima,
það sé óumflýjanlegt.
Takk tónleikar
Síðasta þriðjudag hélt Jón Þorsteinn Takk
tónleika í Hofsóskirkju til að þakka
Tónlistarskóla Skagafjarðar fyrir gott starf
og lét hann allan ágóða af tónleikunum
renna óskiptan til skólans. ,,Þetta var nú
hugmyndin hennar Rakelar, mér leist að
sjálfsögðu vel á hana enda hefur mér alltaf
þótt vænt um gamla skólann minn. Hann
á þetta skilið. Án hans væri ég ekki að
gera það sem mér finnst skemmtilegast,”
segir Jón Þorsteinn þegar blaðamaður
spyr hann hvernig hugmyndin að
tónleikunum hafi kviknað.
Jón Þorsteinn er nú í sumarfríi á Íslandi í
rúmar tvær vikur og spilaði, auk Takk
tónleikanna, í Akureyrarkirkju þann 20.
júlí sl. og endar svo dvölina hér heima á að
spila í brúðkaupi. Hann heldur svo aftur út
til Danmerkur til að ljúka þriðja og síðasta
árinu í bachelor náminu. Að námi loknu
stefnir Jón Þorsteinn á að vinna við tón-
listina á sem fjölbreyttastan máta og á sem
flestum stöðum. /GSG
Stundar bachelornám
í Kaupmannahöfn
Jón Þorsteinn Reynisson harmonikuleikari