Feykir - 24.07.2014, Page 9
28/2014 Feykir 9
Heilir og sælir lesendur góðir.
Byrjum að þessu sinni með vel gerðum
hringhendum eftir meistarann Jóhannes
Benjamínsson frá Hallkelsstöðum.
Ýmsum rifta örlög flá
auðnu svipta starfi.
Þegar giftan gengur hjá
glópskan skiptir arfi.
Hamstursbálið brann í dag
brautir hálar kannast.
Þetta er brjálað þjóðfélag,
það er mála sannast.
Kveikti í blóði byrgða þrá
blés að glóðum skærum,
Blærinn hljóði er barst mér frá
bernskuslóðum kærum.
Minnir að sá kunni menntaskólakennari, Gísli
Jónsson, sé höfundur að þessari limru.
Mælti Hannes í Hlésvíkurporti,
þegar hagmælskan verður að sporti.
Margra ágætra manna
þá er erfitt að sanna
hverja limruna hver maður orti.
Vegna upprifjunar í síðasta þætti á kveðskap
Bjarna frá Gröf hefur diggur lesandi þáttarins
haft samband og óskað eftir meiru til birtingar
eftir Bjarna. Er sjálfsagt að verða við því. Þegar
Bjarna datt í hug að gaman væri að sjá guð í
sjónvarpinu varð þetta til.
Í útvarpinu atómskáldin ekki þykja góð
og ýmsir gera þeirra hlut nú smáan.
Þó Drottinn kæmi sjálfur og læsi þeirra ljóð
líklega myndir fáir hlusta á‘ann
en gaman væri í sjónvarpinu að sjá´ann.
Um lífsdansinn yrkir Bjarni svo
Allt í gegnum aldaraðir
ekki breytast heimsins kynni,
ýmist hryggir eða glaðir
dansa menn um dauðans traðir.
Drottinn stjórnar hljómsveitinni.
Sá ágæti hagyrðingur Stefán Vilhjálmsson
er eins og margir vita frá Brekku í Mjóafirði.
Einhverju sinni er hann undirbjó ferð þangað í
fríi sem hann átti frá störfum varð þessi vísa til.
Toga í mig fjörðinn finn
til ferða senn mig gyrði.
Heldur sig nú hugurinn
hálfur í Mjóafirði.
Það er Ingimar Bogason á Sauðárkróki sem er
höfundur að næstu vísu.
Allar hurðir upp á gátt
eru að þessu sinni.
Inn því leggur lífsins mátt
og ljós frá náttúrunni.
Eins og getið er um hér að framan var Gísli
menntaskólakennari snjall í gerð limra. Þessi
mun eitt sinn hafa birst í dálki hans í Mogga og
þá talinn höfundur Viðfríður Vestan.
Gekk ég um græna hjalla
Það var gaman að skoða þá alla
Vísnaþáttur 622 en í mig kom öf-und og smá töf,þar sem halur var sprund eitt að spjalla.
Það er bóndinn og Borgfirðingurinn Vigfús
Pétursson sem mun einhverju sinni hafa ort
svo.
Það er af mönnum sérstök sort
en sjálfsagt vitni um greind og dug,
þeir sem geta ort og ort
án þess að detta neitt í hug.
Sá snjalli Móskóga Stebbi mun einhverju
sinni staddur á dansleik og virt fyrir sér
skvísur samkomunnar mismikið skreyttar af
fegrunarmaska.
Fallvölt reynist fegurðin
fölnar æskuroði.
Mér líst ekki á málverkin
mörg þó séu í boði.
Freistandi að heyra næst frá öðrum Stefáni
(Sveinssyni), sem kenndur var við Æsustaði í
Langadal, þessa gleðilegu vísu.
Á þó bjáti og ólög tvenn
oft á bátinn stefni.
Lifi ég kátur leik minn enn
lífið er hlátursefni.
Sá ágæti hagyrðingur Eysteinn Gíslason mun
einhverju sinni hafa verið að lesa vísnaþátt í
blaði og ort þá svo.
Þjóðin fílar fögur kvæði
og fagrar stökur vísnaþáttar.
Sem hún telur algjört æði
og ógeðslega meiriháttar.
Sigurður Bjarnason frá Klúku í Bjarnafirði
mun einhverju sinni hafa ort svo.
Viltu með mér vaka í nótt
vina kær því löng er stundin.
Innvortis mér ekki rótt
ástin heit er hvergi bundin.
Sú hefur átt gott í vændum sem Sigurður yrkir
um í þessari.
Ekki vil ég orðlengja
ástin hefur völdin.
Hún Sissa kemst í sæluna
um sólarlag á kvöldin.
Ekki fer illa í þessari úrfellatíð að rifja næst
upp þessa vísu Sigríðar Beinteinsdóttur á
Hávarðsstöðum.
Veðrið finnst mér viðurstyggð
vona senn það batni.
Vikum saman breiða byggð
baðar köldu vatni.
Gott að enda þáttinn að þessu sinni með
þessari fallegu hringhendu sem ég held endi-
lega að sé eftir Sigríði.
Brátt út springa blómin kær
berast hingað gestir.
Ennþá lyng í lautum grær
ljóðin syngja þrestir.
Verið þar með sæl að sinni.
/ Guðmundur
Valtýsson
Eiríksstöðum,
541 Blönduósi
Sími 452 7154
( GUÐMUNDUR VALTÝSSON ) kristin@feykir.is
Elísabet K. Kristmundsdóttir
heiti ég. Ég fékk
gestapennaáskorunina frá
Elínu Huldu, æskuvinkonu
minni, og að sjálfsögðu
skorast ég ekki undan því
og tek þeirri áskorun. Mig
langar að segja ykkur frá því
sem ég hef verið að gera, á
síðastliðnu ári, sem aupair í
Californiu í Bandaríkjunum.
Ég er alin upp í Austur-
Húnavatnssýslu og hef
bæði búið á Blönduósi
og Skagaströnd. Ég og
mamma mín, Árnína
Fossdal, fluttum síðan á
Akureyri eftir að ég kláraði
grunnskóla. Ég útskrifaðist
frá Verkmenntaskólanum
á Akureyri vorið 2013. Það
sumarið fór ég síðan út til
Bandaríkjanna þar sem ég var
búin að ráða mig sem aupair í
ár á eyju sem heitir Coronado
og er rétt fyrir utan San Diego
í Californiu.
En hvað er aupair? Ég þarf
mjög oft að svara þeirri
spurningu. Fljótasta svarið
er barnapía frá öðru landi
en það gerir aupair-starfinu í
raun enginn skil. Aupair er í
raun miklu meira. Aupair er
ungmenni á aldrinum 18-27
ára, getur bæði verið stelpa
eða strákur, sem kemur
í gegnum sérstök aupair
samtök frá öðru landi til
Bandaríkjanna, í mínu tilfelli,
til að búa hjá sérstakri host
fjölskyldu og hugsa um börnin
þeirra í skiptum fyrir fæði,
húsnæði og vasapening. Til
að gerast aupair þarftu að
hafa reynslu af því að starfa
með börnum og einhverja
enskukunnáttu.
Umsóknarferlið er krefjandi
og þarf að mörgu að huga.
Redda alls konar pappírum
og gera hitt og þetta en á
endanum er þetta allt þess
virði, allavega í mínu tilfelli.
Ég var mjög heppnin með
fjölskyldu og tóku þau mér,
allt frá fyrsta degi, sem nýjum
fjölskyldumeðlim. Ég bý hjá
fjögurra manna fjölskyldu,
hjónum með tvö börn. Þegar
ég kom var stelpan þriggja ára
og strákurinn fæddist í ágúst,
svo ég hef verið með honum
frá fæðingu.
Lífið í Suður- Californíu
Virkir dagar hjá mér snúast
m það að hugsa um börnin
frá 8-4. Fara með stelpuna
í leikskóla og dans og svo
bara að dúllast með litlann
og auðvitað leika við þau
bæði, þvo þvott, taka til, fara
í ræktina og eyða tíma með
vinkonum mínum. Um helgar
reynir maður svo að gera
eitthvað skemmtilegt eins og
að fara á ströndina, út á lífið,
spila fótbolta, skoða sig um,
versla, fjallgöngur og auðvitað
ferðast. Á seinasta ári hef ég
ferðast tvisvar til Los Angeles,
til Las Vegas, Orlando, Tucson
Arizona og tvisvar til New
York. Ég hefði getað verið
miklu duglegri að ferðast þar
sem ég fékk allar helgar í frí
en ég skráði mig í fótbolta
og við spiluðum fótboltaleiki
á hverjum sunnudegi í allan
vetur svo ég tímdi ekki að
missa af leikjum.
Aupair starfið getur bæði verið
krefjandi og yndislegt. Á þessu
ári sem ég hef verið úti hef ég
þroskast og breyst mikið, séð
og upplifað hluti sem ég hefði
aldrei getað á Íslandi. Þetta er
æðisleg upplifun sem ég sé
ekki eftir enda er ég núna á
Íslandi bara í sumarfríi og ætla
aftur út í ágúst og vera annað
ár. Svo ef það er einhver
þarna úti sem er að hugsa um
þetta ekki hika við að skella
þér. Þú mátt líka alveg hafa
samband ef það er eitthvað.
- - - - -
Ég skora á brottflutta
Blönduósinginn Guðlaugu
I. Þorsteinsdóttur
landsliðsmarkvörð í íshokkí.
Elísabet K. Kristmundsdóttir frá Blönduósi
Aupair í USA
ÁSKORENDAPENNINN
UMSJÓN kristin@feykir.is