Feykir - 24.07.2014, Page 11
28/2014 Feykir 11
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
Verðlaun Sá sem fyrstur leysir þrautirnar ætti kannski næst
að snúa sér að ólsen ólsen.
Spakmæli vikunnar
Sum mistök eru allt of skemmtileg til að gera þau bara einu sinni.
-Jákvæða hliðin á lífinu
Sudoku
Vissirðu að...
ÓTRÚLEGT – EN KANNSKI SATT
... á degi hverjum missir manneskjan að meðaltali 200 hár af
höfðinu?
... það er útilokað að snýta sér með opin augun?
... fiskar sem lifa 800 metra undir sjávarmáli hafa engin augu?
... undirskrift Walt Disney sjálfs var ekkert í líkingu við undirskriftina
frægu sem merkir vörur hans og bíómyndir?
FEYKIFÍN AFÞREYING gudrun@feykir.is
Hahahahaha...
Konan sagði við kallinn, sem er forritari: „Farðu út í búð og kauptu
mjólk. Ef það eru til egg, kauptu þá 6."
Kallinn skottast út í búð og kemur heim með 6 mjólkurfernur. Konan
spyr af hverju og hann segir: „Það voru til egg..."
Krossgáta
Feykir spyr...
[SPURT Á FACEBOOK]
Ætlar þú
að kíkja á
hátíðina
Eldur í
Húnaþingi?
SIGRÚN HEIÐA
PÉTURSDÓTTIR ,
SAUÐÁRKRÓKI
-Já, ekki spurning. Tónleikarnir
í Borgarvirki er eitthvað sem
bannað er að missa af.
BIRNA JÓNSDÓTTIR,
SAUÐÁRKRÓKI
-Ekki þetta árið.
KRISTÍN GUÐBJÖRG
SNÆLAND, SAUÐÁRKRÓKI
-Ætla ekki að fara þar sem ég er
á landsmóti skáta á Akureyri en
ég hef stundum farið
og þótt gaman.
SYLVÍA MAGNÚSDÓTTIR,
HLÍÐARENDA,
ÓSLANDSHLÍÐ
-Ég kemst ekki á þá hátíð,
því miður, þar sem ég
er slösuð heima.
HALLDÓRA MAGNEA
FYLLING, SAUÐÁRKRÓKI
-Nei, fer ekki núna.
Á föstudagskvöldið var vígt
hof að heiðnum sið á bænum
Efra-Ási í Hjaltadal í Skaga-
firði. Um er að ræða 80 m2
byggingu sem er einkafram-
tak ábúenda á bænum, þeirra
Heiðbjartar Hlínar Stefáns-
dóttur og Árna Sverrissonar.
Að sögn Heiðbjartar var
þetta hugmynd sem vatt smátt
og smátt upp á sig og stækkaði í
sniðum. „Það hefur ekki verið
vígt hof á Norðurlandi í yfir
þúsund ár og kominn tími til að
ásatrúarfólk hafi einhverja
aðstöðu,“ sagði Heiðbjört í
samtali við Feyki nú í vikunni.
Fjölskyldan byggði húsið með
aðstoð vina og ættingja. Í veggj-
unum er torf og grjót og sá
nágranni þeirra, Viðar Sverris-
son í Neðra-Ási nær alfarið um
hleðsluna.
Hofið var helgað hinum
heiðnu norrænu goðum,
ásunum. Heiðbjört segir þau
ekki hafa viljað taka neinn einn
út af ásunum, en hof eru stund-
um helguð ákveðnum ásum.
Jóhanna Harðardóttir Kjalnes-
ingagoði sá um vígsluna. Eitt
eða tvö hof munu vera fyrir í
landinu, en ekki sambærileg að
stærð.
Aðspurð segist Heiðbjört
ekki hafa tölu á hversu margir
eru ásatrúar á Norðurlandi.
Hún segir að með hofinu sé
ekki verið að höfða til ferða-
manna en fólki sé velkomið að
nýta það til athafna eins og
nafngjafa og hjónvígslna.
Einnig verða haldin blót í
hofinu. Sjálf notuðu þau Árni
tækifærið og endurnýjuðu
heitin um leið og hofið var vígt,
viðstöddum að óvörum. Á eftir
var slegið upp grillveislu. /KSE
Fyrsta hofið í 1000 ár
Hof að heiðnum sið reist í Hjaltadal
Hofið að Efra-Ási í Hjaltadal.
Hannyrðakonur í Húnaþingi
Fróðlegur fyrirlestur í Textílsetri
Það var góð aðsókn að
áhugaverðum og fróðlegum
fyrirlestri Jóhönnu Erlu
Pálmadóttur sem haldinn var
í Heimilisiðnaðarsafninu sl.
sunnudag.
Jóhanna nefndi fyrirlestur-
inn „Hannyrðakonur í Húna-
þingi“ og fjallaði um nokkrar
konur sem allar voru fæddar á
ofanverðri nítjándu öld og í
byrjun þeirrar tuttugustu.
Um leið og fyrirlesturinn fór
fram sýndi Jóhanna nokkra
muni sem konurnar hafa unnið
og varðveittir eru í Heimilis-
iðnaðarsafninu. Eftir fyrirlest-
urinn settust nokkrar konur að
útsaumi og orkeringu og gestir
þáðu kaffi og kleinur. /Fréttatilk.
Gengið hefur verið frá
samningum við Alkor
skipasmíðastöð í Póllandi
um breytingar og
endurbætur á Málmey SK-1
Áætlað er að skipið verði
komið til Póllands um miðjan
september n.k. og verklok
áætluð um miðjan nóvember.
Að lokinni siglingu heim,
tekur við niðursetning á
nýjum búnaði á vinnsludekki
skipsins og er vonast til að
skipið verði klárt til veiða á ný
í ársbyrjun 2015.
Að loknum þessum endur-
bótum og breytingum er gert
ráð fyrir að í framhaldinu
verði skipið gert út sem ísfisk-
skip, en ekki flakafrystiskip
eins og verið hefur. Þar af
leiðir að starfsmönnum FISK
á sjó mun fækka, en fjölga að
sama skapi í landvinnslu
fyrirtækisins. Frá þessu er sagt
á vef Fiskiðjunnar. /KSE
Uppsagnir vegna endur-
bóta og breytinga
Málmey SK-1
Jóhanna Erla. Mynd: Jóhannes Torfas.