Feykir - 24.07.2014, Qupperneq 12
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
28
TBL
24. júlí 2014 34. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
Opið: mán.- fös. 8-18
og lau. 10-13 Sími 455 4610
Á að girða?
Þá er Gallagher
frábær kostur!
Hjá okkur færðu bæði
gæði og gott verð
Gallagher girðingavörur eru
með þeim bestu sem völ er á!
N
Ý
PR
EN
T
eh
f.
Endursöluaðilar: Kaupfélag Borgfirðinga, KM þjónustan, Jötunnvélar, BYKO, Húsasmiðjan, Kaupfélag Vestur Húnvetninga, Bústólpi og verslanir Fóðurblöndunnar
Er kominn
tími á nýtt
hlið?
Frábærar hliðgrindur
í míklu úrvali á góðu verði
Áralöng reynsla!
FERSKUR Á NETINU
Feykir.is
Hvað er
að frétta?
Hafðu samband í síma 455 7176
eða sendu Feyki póst á
feykir@feykir.is
VERIÐ VELKOMIN Á
UNGLINGALANDSMÓTIÐ Á SAUÐÁRKRÓKI
UM VERSLUNARMANNAHELGINA
Valtýr Örn Gunnlaugsson er fæddur
og uppalinn í Reykjavík en hefur
verið búsettur á Sauðárkróki síðustu
tvö ár ásamt eiginkonu sinni, Jóneu
Haraldsdóttur og börnum þeirra
þremur. Valtýr starfar sem kerfisstjóri
hjá Tengli og tók við græju áskoruninni
frá samstarfsfélaga sínum, Þresti
Magnússyni.
Hvaða græju heldur þú mest upp á og
hvers vegna? -Þar sem ég hef mikinn
áhuga á öllu sem viðkemur tölvum og
tækni þá held ég að mitt uppáhalds tæki
þessa stundina sé Playstation 4 tölvan
mín. Þar sem ég hef mikið dálæti á að
spila tölvuleiki þá er þessi nýja viðbót
algjör gullmoli fyrir nörd eins og mig.
Grafíkin, hraðinn á vélinni og möguleikarnir
eru ótrúlega margir.
Hvernig kom það til að þú eignaðist
þessa græju? -Ég var búinn að bíða
spenntur eftir þessari vél og tókst loks
að verða mér úti um eintak þegar þriðja
Valtýr Örn Gunnlaugsson / Playstation 4
,,Gullmoli fyrir
nörd eins og mig”
( GRÆJAN MÍN ) gudrun@feykir.is
sending kom til landsins en fyrstu tvær
voru uppseldar áður en þær komu til
landsins.
Hvernig var fyrsta gerðin af þessari
græju sem þú eignaðist? -Ég eignaðist
mína fyrstu Playstation tölvu árið 1997 og
hef átt allar gerðir síðan.
Er græjan jafn vinsæl hjá öðrum fjöl-
skyldumeðlimum? -Börnin mín leika sér í
tölvunni með mér en ég er ennþá að vinna
í því að fá konuna til að spila. Það gengur
eitthvað hægt, einhverra hluta vegna.
Við hvaða tækifæri nýtist græjan mest?
-Tölvan nýtist við hin ýmsu tækifæri, ásamt
því að geta spilað í henni er hægt að
streyma bíómyndir og þætti til að horfa
á. Þegar vinir koma í heimsókn getur oft
myndast skemmtileg stemning þegar
menn með ákaft keppnisskap spila saman
og hef ég séð menn svitna og skipta litum
í framan af áreynslu þegar mikið liggur við.
Áttu einhverja skemmtilega sögu tengda
græjunni? -Í eitt skiptið þegar við vinirnir
vorum að spila fótboltaleik saman og hiti
var kominn í menn, þá var einn leikur sem
bauð upp á mikla spennu og dramatík.
Ég var að spila við vin minn og staðan var
1-1, síðan á 87. mínútu leiksins þá kemst
hann yfir og er strax farinn að fagna sigri
í leiknum með tilheyrandi skotum hvað
hann sé nú áberandi betri en ég í leiknum.
En á 90. mínútu þá jafna ég, og strax
í næstu sókn þá skora ég aftur og vinn
leikinn 3-2. Þá missir hann gjörsamlega
stjórn á skapi sínu, grýtir fjarstýringunni
í vegginn og hún brotnar í tætlur. Síðan
tók hann stólinn sem hann sat á og lamdi
honum í vegginn svo að einn fóturinn
brotnaði undan honum og rauk svo út.
Þess má til gamans geta að við höfum ekki
spilað fótbolta saman síðan.
Hvern vilt þú sjá svara þessum
spurningum? -Ég myndi vilja sjá Joel
Magoun svara þessum spurningum.