Feykir - 31.07.2014, Síða 3
29/2014 Feykir 3
Króksbók
er komin út aftur – breytt og efnismeiri
RÓTARÝKLÚBBUR SAUÐÁRKRÓKS
Austur-Húnavatnssýsla
Harpa ráðin
fræðslustjóri
Nýverið var Harpa
Hermannsdóttir á
Blönduósi ráðin fræðslu-
stjóri í Austur-
Húnavatnssýslu, á vegum
byggðasamlags um
fræðslu- og skólaþjónustu í
héraðinu.
Harpa tekur við af Guðjóni
Ólafssyni sem lét af störfum í
sumar. Harpa er kennari að
mennt og hefur lengi starfað
við sérkennslu í Blönduskóla.
/KSE
Haldið í 28. sinn helgina
9.-10. ágúst
Króksmót
Tindastóls
Króksmót Tindastóls á
Sauðárkróki verður nú
haldið í 28. sinn helgina
9.-10. ágúst nk. Mótið er
fyrir drengi í 5.-7. flokk en
einnig verður nóg af
afþreyingu fyrir alla
fjölskylduna þessa helgi.
Fyrstu leikir hefjast kl. 9 á
laugardagsmorgni og í há-
deginu verður svo öllum
gestum mótsins boðið í grill á
íþróttavellinum. Setningarat-
höfnin hefst svo kl. 20:15, en
frá íþróttahúsinu verður farið
í skrúðgöngu inn á íþrótta-
svæðið þar sem hvert lið er
hvatt til að hafa liðsfána. Jón
Jónsson og Auddi munu svo
skemmta mótsgestum á
kvöldvökunni með hæfileika-
keppni, söng og gríni. Mótinu
lýkur svo um kl. 15 á sunnu-
deginum.
Nánari upplýsingar um
dagskrá mótsins er að finna
inni á kroksmot.wordpress.
com /GSG
Síðasti Feykir fyrir frí
Næsti Feykir
14. ágúst
Þetta 29. tölublað ársins
er jafnframt síðasti Feykir
fyrir sumarfrí. Eitt blað
fellur niður vegna
sumarleyfa að þessu sinni
og kemur næsta blað því út
fimmtudaginn 14. ágúst.
Fram að því mun Guðrún
Sif Gísladóttir blaðamaður
standa vaktina og setja fréttir
og tilkynningar inn á vefinn
Feykir.is. Símanúmer Guð-
rúnar er 772-9702 og net-
fangið gudrun@feykir.is. /KSE
N
Ý
PR
EN
T
eh
f.
Króksbók fæst í eftirtöldum
verslunum:
• Verslun Haraldar Júlíussonar
• Rafsjá
• Bláfelli
• Skagfirðingabúð
• N1
• Hlíðarkaupi
Í Reykjavík verður Króksbók seld í Pennanum Eymundsson.
Eftirtöldum þökkum við góða aðstoð við útgáfuna:
Fisk Seafood, Sparisjóður Skagafjarðar, Kaupfélag Skagfirð-
inga, Steinull og Sveitarfélagið Skagafjörður.
Seinni hluta ágústmánaðar munu félagar í Rótarýklúbbi
Sauðárkróks ganga um bæinn og bjóða Króksbók til sölu.
RÓTARÝKLÚBBUR SAUÐÁRKRÓKS
Króksbók II
GAMLI BÆRINN