Feykir - 09.10.2014, Page 11
38/2014 11
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
Verðlaun Sá sem fyrstur leysir þrautirnar getur
látið sig dreyma um gómsæta kjötrétti.
Spakmæli vikunnar
Með því að vinna samviskusamlega átta tíma á dag, gætirðu á
endanum orðið yfirmaður og unnið tólf tíma á dag.
– - Robert Frost
Sudoku
Vissirðu að...
ÓTRÚLEGT – EN KANNSKI SATT
... meðalhraði fallhlífastökkvara er 200 km/h?
... górillur sofa 14 tíma á dag?
... í meðal manneskja hlær 10 sinnum á dag?
... afríski fíllinn er aðeins með fjórar tennur?
... hákarlar eru ónæmir fyrir öllum þekktum sjúkdómum?
FEYKIFÍN AFÞREYING oli@feykir.is
Hahahahaha...
Veistu af hverju heita vatnið heitir heita vatnið?
Nú, eitthvað verður það að heita vatnið!
Krossgáta
Feykir spyr...
[SPURT Á FB]
Tekur
þú þátt í
meistara-
mánuði í
október?
RAGNDÍS HILMARSDÓTTIR:
-Já, ég ætla að borða
hollann hádegismat og Zumba
óléttuþyngdina í burt!
VALGERÐUR GEIRSDÓTTIR:
-Nei, ég er ekki að taka þátt
í þetta sinn.
MARÍA GRÉTA
ÓLAFSDÓTTIR:
-Já, ég ætla að gera
haust/jóla hreingerningu í Afahúsi
í meistaramánuði.
HELGA SIG:
-Já, ég skoraði á sjálfa mig að
vakna fyrr á morgnana.
Kjúklingabaka
með rjómalagaðri
kjúklingasósu
FORRÉTTUR
Kjúklingabaka
Deig:
425 gr hveiti
220 gr vatn
50 gr ólífuolía
11 gr þurrger
5 gr salt
Aðferð: Þurrefnum er blandað
saman, vatn og olía hitað í um
35°C og bætt svo saman við, deig
hnoðað og meiri ólífuolíu bætt
við eftir þörfum. Látið lyfta sér í
1-2 klst.
1/3 af deiginu tekinn frá, 2/3
af deiginu flatt út og sett í
hringlaga form um 22 sm og látið
standa upp fyrir barmana. Bakið
í 10 mín. við 180°C (5 mín. á
blæstri).
Kjúklingur:
400 gr kjúklingur
½ laukur
MATGÆÐINGAR VIKUNNAR
UMSJÓN berglind@feykir.is
Gígja Blöndal og Daníel
Kristjánsson á Blönduósi eru
matgæðingar Feykis þessa
vikuna en þau ætla að bjóða lesendum upp á girnilega uppskrift
af kjúklingaböku, kryddaðri með hvítlauk, papriku og
sinnepsfræjum og rjómalagaðri kjúklingasósu.
Gígja og Daníel skora á Ragnheiði Bl. Benediktsdóttur og
Magnús Val Ómarsson að koma með uppskriftir í Feyki.
1 paprika
Kryddað með salti, pipar,
hvítlaukskryddi, papriku-
kryddi og sinnepsfræum.
Sósa:
2 pakkar bresk kjúklingasósa
frá Toro
75 gr smjör
¼ rjómi
2-3 dl mjólk
Aðferð: Steikið kjúklinginn,
laukinn og paprikuna saman,
hellið sósunni yfir og setjið allt
saman í formið.
Fletjið út afganginn af deiginu
og lokið bökunni. Bakað í ofni í
20-25 mín. við 180°C (12-15
mín. á blæstri).
Verði ykkur að góðu!
Daníel og Gígja.
Gígja og Daníel matreiða
Taktu þátt í að gera Feyki enn skemmtilegri
Lumarðu
á frétt?
Feykir er frétta- og dægurmálablaðið á Norðurlandi vestra
SAGA SJÖFN
RAGNARSDÓTTIR:
-Nei, fæ bara að taka þátt í
meistarastykkinu Emil í Kattholti...
jú, og borða meira seríós og
suðusúkkulaði.