Feykir


Feykir - 09.10.2014, Blaðsíða 12

Feykir - 09.10.2014, Blaðsíða 12
Ertu með fréttaskot, mynd eða annað skemmtilegt efni í Feyki? Hafðu samband. Síminn er 455 7176 og netfangið feykir@feykir.is 38 TBL 9. október 2014 34. árgangur Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981 Laxá á Ásum Uppselt næsta sumar Samkvæmt frétt á Húna.is er uppselt í Laxá á Ásum næsta sumar, eftir góða veiði í ánni síðustu tvö sumur. Í sumar veiddust 1006 laxar í ánni og var meðalþyngd þeirra tæp sex pund. Í fyrra veiddust 1062 laxar. „Árangar síðustu tveggja ára gefa vonir um að Laxá á Ásum sé að ná fyrri styrk en á áttunda og níunda áratugnum veiddust iðulega vel yfir þúsund laxar í ánni á hverju sumri. Árið 1975 var sett met þegar 1.881 lax veiddist. Tíundi áratugurinn var góður en um aldamótin fór heldur að halla undan fæti og hefur veiðin ekki farið yfir þúsund laxa nema þrisvar síðan þá. Aðeins er veitt á tvær stangir í ánni sem þýðir að hver stöng gaf 503 laxa eða um sex laxa á dag að meðaltali,“ segir í fréttinni á Huna.is. /KSE Hvað ertu með á prjónunum? Marlies Wechner Hjalla í Skagafirði Skipti út skærun- um fyrir rennijárn HVAÐ ERTU MEÐ Á PRJÓNUNUM? UMSJÓN berglind@feykir.is Marleis Wechner á Hjalla í Blönduhlíð tók áskorun Madöru Sudare frá Ármúla og ætlar segja lesendum Feykis frá handverki sínu. -Takk Madara, fyrir að vera áhugasöm um tréverkið mitt, en allt er enn óunnið og það er lítið fréttnæmt hjá mér! Nema það, að ég gat látið drauminn rætast, að búa og vinna á einum stað uppi í sveit, á Hjalla. Ég er ekki ung lengur, börnin mín þrjú fullorðin og farin að heiman. Hlutverk mitt breytt. Ég nýt þess að hafa tíma til að athuga og læra ýmislegt í nýja umhverfinu. Maður þarf ekki dagatal hér, ársins hringur rekur fólkið áfram! Þetta er annað árið mitt hér og ég sé mörg ónýtt tækifæri, til dæmis í sambandi við garðyrkju, litadýrð Handverk Marlies á Hjalla. MYND ÚR EINKASAFNI Grillaður lambabógur alveg hrikalega góður Pantanir berist fyrir kl. 16 sama dag ...okkar frábæri hefðbundni grillaði kjúklingur dásemdin ein Pantanir berist fyrir kl. 16 sama dag ...hvað er svo betra en nýbakað baguette og brauð nú eða vínarbrauð NÝTT BRAUÐ ALLA DAGAKr. 998,- stk. Kr. 1150,- VARMAHLÍÐ ...verið velkomin Föstudagurinn verður alveg grillaður hjá okkur ! og mat, sem bíður í moldinni eftir fræjum, til að geta látið sjá eða éta sig. Skissubækurnar eru fullar, vinnustofan komin upp, með trérennibekk og fleiri verkfæri. Aðflutt safn trjáa úr görðunum frá Reykjavík þurrt. Rekaviðurinn ókominn. En, það er spurt um hannyrðir. Ég er með sveinspróf sem dömuklæðskeri frá Sviss. Tískan heillaði mig aldrei. Að forma og áhuginn á formleika hefur fylgt mér síðan. Reynslan á handtökum sem ég fékk í verklegri baráttu við efni, sem þá voru silki, ull, bómull, lín og gerviefni, hefur gefið mér visst traust á höndunum mínum tveimur! Títuprjónar sem skissverkfæri voru mér lengi kærir og í augnablikinu finnst mér fallegt að sjá þá í einu tréílátinu. Skærum hef ég skipt út fyrir rennijárn. En togstreitan heldur áfram. Hvert stefni ég? Er það formleikinn í nytjahlutum, eru það frjáls tjáning og myndir, eða leikföng fyrir menn, vind og veður, eða augu, eða eyru mannsins? Ég kann mikið að meta rótgrónar nágrannakonurnar mínar, Önnu uppi, í jurtalitum og ull þessa daga, og Önnu á Hjaltastöðum sem fæst við járn, leður, saum, og alls konar virki. Getur hún gefið innlit í sinn reynsluheim? Það er hvetjandi að sjá ljósið í vinnu- stofum þeirra kveikt. Það verður bjart í vetur!

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.