Feykir - 08.01.2015, Qupperneq 1
FERSKUR Á NETINU
Feykir.is
Hvað er
að frétta?
Hafðu samband í síma 455 7176
eða sendu Feyki póst á
feykir@feykir.is
á
BLS. 8-9
BLS. 5
Árið 2014 var um margt
minnisstætt og viðburða-
ríkt á Norðurlandi vestra
Fréttaannáll
2014
BLS. 6-7
Ingvar Óli er maður ársins
á Norðurlandi vestra 2014
Tókst á við erfiðar
aðstæður af ótrú-
legri yfirvegun
Kolbrún Ósk Hjaltadóttir
er íþróttagarpurinn
Foreldrarnir helstu
fyrirmyndirnar
1
TBL
8. janúar 2015
35. árgangur : Stofnað 1981
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
BÍLAVERKSTÆÐI
Hesteyri 2 550 Sauðárkrókur Sími 455 4570
Við þjónustum bílinn þinn!
Alhliða bílaviðgerðir fyrir fólksbíla,
vörubíla og dráttarvélar. Réttingar og sprautun.
G R Æ J U B Ú Ð I N Þ Í N
Skagfirðingur fyrsta barn ársins á FSA
Höfðu það náðugt á fæðingardeildinni yfir áramótin
Þuríður Elín, Aron Snær, Guðmundur Rúnar með nýársprinsessuna og Styrmir Snær.
Fyrsta barnið sem leit dagsins ljós á
fæðingadeild Sjúkrahússins á
Akureyri árið 2015 var skagfirsk
stúlka, dóttir Þuríðar Elínar
Þórarinsdóttur og Guðmundur Rúnars
Guðmundssonar á Sauðárkróki.
Þuríður var gengin 38 vikur og 4 daga
þegar daman ákvað að koma í
heiminn á nýársdag kl. 18:43, fædd
4208 gr. (17 merkur) og 52 sm.
Að sögn Þuríðar gekk fæðingin vel, tók
að vísu sinn tíma, en móður og barni
heilsast vel. Það var hugsað vel um þau á
fæðingadeildinni yfir áramótin og á
nýársdag en þau höfðu deildina og
starfsfólk hennar útaf fyrir sig. Litla
daman er þriðja barn þeirra Þuríðar og
Guðmundar Rúnars, en fyrir eiga þau
drengina Aron Snæ 6 ára og Styrmi Snæ
4 ára. Þuríður er dóttir Þórarins
Í janúar á síðasta ári kom upp sú hugmynd að
þann 12. janúar ár hvert yrði haldinn
svokallaður Ljósadagur í Skagafirði.
Hugmyndin kom í kjölfar táknræns gjörn-
ings dagana eftir hörmulegt umferðarslys þeirra
Önnu Jónu Sigurbjörnsdóttur og Skarphéðins
Andra Kristjánssonar. Þá voru friðarljós tendruð
sem lýstu upp bæinn og hjörtu þeirra sem leið
áttu hjá. Binný í Blóma- og gjafabúðinni á
Sauðárkróki sagði þá í samtali við Feyki að
ánægjulegt væri að halda í þá fallegu hefð og gera 12. janúar að ljósadegi í
Skagafirði. Næstkomandi mánudag rennur upp umræddur dagur og eru þá allir
Skagfirðingar hvattir til að tendra friðarljós, jafnvel nýta afgangskerti eftir jólin og
setja í lugtir – lýsa upp skammdegið og minnast látinna ástvina. /BÞ
Ljósadagur í Skagafirði
Skagfirðingar hvattir til að tendra friðarljós
Hlöðverssonar og Þóreyjar Eyjólfsdótt-
ur á Sauðárkróki og Rúnar er sonur
Guðmundar Magnússonar og Stefaníu
Fjólu Finnbogadóttur í Varmahlíð. /BÞ