Feykir - 08.01.2015, Qupperneq 2
2 1/2015
Stjórn Samtaka
sveitarfélaga á
Norðurlandi vestra
(SSNV) hefur ráðið
Berg Elías
Ágústsson í starf
framkvæmdastjóra
samtakanna.
Auglýst var eftir
framkvæmdastjóra
og bárust 14 um-sóknir og voru
tekin viðtöl við þrjá umsækjendur.
Í framhaldi af því var ákveðið að
ráða Berg Elías í starfið,
samkvæmt tilkynningu frá SSNV.
Bergur Elías Ágústsson er 51
árs, fæddur og uppalinn Vest-
mannaeyingur og er
menntaður í hagfræði
frá Sjávarútvegs-
háskólanum í Tromsö
í Noregi. Bergur hefur
síðustu átta ár starfað
sem bæjarstjóri í
Norðurþingi en var
áður bæjarstjóri
Vestmannaeyjabæjar.
Auk starfa sem bæjarstjóri hefur
hann gegnt margvíslegum
stjórnunarstörfum í atvinnulífi
hér á landi, m.a. í sjávarútvegi,
sem og fjölda annarra
trúnaðarstarfa á vettvangi
sveitarfélaga. /BÞ
Nú árið er liðið í aldanna skaut, eins og segir í þekktu lagi, og
áramótaskaupið sömuleiðis. Eins og jafnan áður skiptast
menn á skoðunum um hið árlega skaup sem hefur fylgt
þjóðinni frá því í árdaga
sjónvarpsins og á sér því um 50
ára sögu. Ekki veit ég hvort
skaupið er komið í einhverja
miðaldurskreppu, á breyt-
ingarskeið eða jafnvel með gráa
fiðringinn. Hitt veit ég að mér
stökk vart bros á vör þennan
síðasta klukkutíma ársins,
meðan skaupið var á skjánum.
Það var helst að Laddi kreisti
fram örlítið bros. Veðurfræð-
ingurinn þunglyndislegi dró upp kómíska hlið af tíðarfarinu
vítt og breitt um landið. Að vísu ansi nærri raunveruleik-
anum, en það er kannski það sorglega við skaupið í ár.
Stjórnmálin, sem voru í forgrunni, eru kannski ekki einu
sinni brosleg þó búið sé að setja þau í skoplegt samhengi.
Ýmsar góðar hugmyndir og góðir punktar sem samt gengu
einhvern veginn ekki upp.
Ég hef reyndar efast um eigin kímnihneigð að undan-
förnu, þar sem hraðfréttadrengir, sem sumir halda ekki vatni
yfir, fá mig sjaldnast til að brosa og Húsavíkurmærin í
morgunútvarpinu getur mig lifandi drepið. Kannski ég þurfi
að láta uppfæra húmorinn í 2015 útgáfuna?
Ákveðin skaup hafa verið lífsseigari en önnur og er
skaupið 1985 til dæmis orðið að einhvers konar goðsögn,
eða „legendary“ eins og unglingarnir myndu orða það. Það
var því ef til vill ekki svo slæm hugmynd að endurvinna
gamalt atriði úr skaupinu, það væri hægt að spara einhverjar
milljónir á slíku. Ég vil þó síst mæla með því að skaupið verði
tekið af dagskrá, það er og verður alltaf smekksatriði hvernig
til tekst hverju sinni.
Sem betur fer eru skiptar skoðanir um áramótaskaupið
eins og annað sjónvarpsefni og það er ekki fyrr komið í loftið
en menn eru farnir að tjá sig um það á snjáldurskinnu. Búið
er að þurrausa áhorfendur, leikara, þá sem verða fyrir
barðinu á gríninu, dagskrárstjóra og aðra sem málið varðar
af spurningum um skaupið, jafnvel áður en maður hefur
áttað sig á því að nýtt ár sé gengið í garð. Sjálf hef ég ekki
ennþá nennt að horfa á skaupið aftur, þó að endursýning sé
oft til bóta og auðvelt með tilkomu VODsins að horfa á efni
þegar manni hentar og maður er vel upplagður. Ég bind bara
vonir við að komandi þorrablót hreyfi betur við bros-
vöðvunum en skaupið gerði!
Kristín Sigurrós Einarsdóttir
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Berglind Þorsteinsdóttir – berglind@feykir.is & 455 7176, 694 9199
Blaðamenn:
Kristín Sigurrós Einarsdóttir – kristin@feykir.is & 867 3164
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is
Hrafnhildur Viðarsdóttir – hrafnhv@nyprent.is
Áskriftarverð: 450 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 490 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
LEIÐARI
Nú árið er liðið
í aldanna skaup
SSNV
Bergur Elías ráðinn
framkvæmdastjóri
Skagafjörður
Unnið að
dýpkun
Sauðárkróks-
hafnar
Starfsmenn verktakafyrir-
tækisins Björgunar hófu
dýpkun í Sauðárkrókshöfn
á sanddæluskipinu
Perlunni um helgina.
Samkvæmt vef Sveitar-
félagsins Skagafjarðar
verður samtals dælt um
22.000 m3 af tveimur
svæðum, svæði innan
hafnarinnar og fyrir framan
öldubrjót við hafnarminnið.
Unnið er á sólarhrings-
vöktum á skipinu og tekur
það um 300 rúmmetra í
hverri ferð. Hluta af efninu úr
dýpkuninni verður dælt á
land á svæði þar sem gamla
smábátahöfnin var staðsett.
Verkkaupar eru siglingasvið
Vegagerðarinnar og Sveitar-
félagið Skagafjörður. /BÞ
14 svæði af 22 samþykkt
sem þjóðlendur
Austur-Húnavatnssýsla og Skagi
Óbyggðanefnd kvað 19.
desember upp úrskurði í
ágreiningsmálum um 22
þjóðlendur í Húnavatnssýslu
vestan Blöndu ásamt Skaga.
Fallist var á kröfur ríkisins um
að fjórtán af þessum svæðum
yrðu þjóðlendur en átta þeirra
var hafnað.
Þjóðlendur eru í eigu ríkisins
en það eignarhald er takmarkað,
ef bændur eiga afrétt á svæðinu.
Hafa þeir þá rétt til að reka
þangað búfé og veiða í ám og
vötnum. Talsverð silungsveiði er
á Skaga auk þess sem laxveiði er
í Laxá í Skefilstaðahreppi, en
bæði svæðin verða að hluta
þjóðlendur samkvæmt hinum
nýja úrskurði. Fuglaveiðar eru
heimilar á þjóðlendum, hvort
sem bændur eiga þar afrétt eða
ekki.
Fallist var á að almenningur
á Skaga, Skrapatunguafrétt,
ágreiningssvæði vegna Fann-
laugarstaða, ágreiningssvæði
vegna Skálahnjúks, Auðkúlu-
heiði, Forsæludalskvíslar, land-
svæði sunnan Grímstungu-
heiðar, Lambatungur, landsvæði
sunnan Haukagilsheiðar og
Lambatungna, hluti Kornsár-
tungna, austurheiði Víðidals-
tunguheiðar, landsvæði sunnan
Víðidalstunguheiðar, Húksheiði
og Staðarhreppsafréttur yrðu
þjóðlendur. Kröfum um að
Reynistaðarafrétt, Grímstungu-
heiði, Haukagilsheiði, Sauða-
dalur, vesturheiði Víðidalstungu-
heiðar, Aðalbólsheiði, Efranúps-
heiði og Breiðabólsstaðarafrétt/
Engjabrekka yrðu þjóðlendur
var hins vegar hafnað.
Hægt er að kæra úrskurði
óbyggðanefndar til dómstóla
innan sex mánaða frá birtingu
þeirra í Lögbirtingablaðinu. Um
60 hæstaréttardómar hafa fallið í
slíkum málum og er algengara
að hæstiréttur hafi staðfest
úrskurði nefndarinnar en snúið
þeim við. /KSE
Grindavíkurbátar
halda heim
Hífðir
á land
og ekið til
Akraness
Aflatölur 1. viku 2015
Fer rólega af stað
Fyrstu daga ársins var engum afla landað í Skaga-
fjarðarhöfnum, það er á Hofsósi og Sauðárkróki. 40 tonnum
var landað á Skagaströnd en engu á Hvammstanga. /KSE
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
Addi afiGK-97 Landbeitt lína 6.265
Alda HU-112 Landbeitt lína 6.510
Bergur sterki HU-7 Landbeitt lína 3.010
Diddi G-65 Landbeitt lína 4.507
Muggur HU-57 Landbeitt lína 7.304
Signý HU-13 Landbeitt lína 4.110
Stella GK-25 Landbeitt lína 5.771
Sæfari HU-200 Landbeitt lína 2.757
Alls á Skagaströnd: 40.000
Þegar blaðamaður Feykis
átti leið framhjá
Sauðárkrókshöfn um
hádegisbilið á þriðjudaginn
var verið að hífa þar tvo
báta á land. Um var að
ræða tvo báta frá
Grindavík sem landað
höfðu á Skagaströnd síðan
fyrir jól.
Að sögn Gunnars Stein-
grímssonar, hafnarvarðar
Sauðárkrókshafna, treystu
eigendurnir sér ekki að sigla
bátunum fyrir Vestfirði
vegan veðurútlits og því var
brugðið á það ráð að hífa þá á
land á Sauðárkróki, aka með
þá á Akranes og sigla þaðan
til Grindavíkur. /KSE