Feykir - 08.01.2015, Page 3
1/2015 3
Hafðu samband
í síma 455 7176 eða sendu póst á feykir@feykir.is
...allir með!
Litið um öxl á nýju ári >
Hugrún Sif Hallgrímsdóttir tónlistarkona á Skagaströnd
Reynum að vera jákvæð
með gleðina í fyrirrúmi
Hvað finnst þér eftirminni-
legast af því sem gerðist á
þínu svæði á nýliðnu ári?
Þar sem ég lifi og hræri í tónlist
þá eru fyrir mína parta eftir-
minnilegastir nýafstaðnir jóla-
tónleikar sem ég hélt með
Kirkjukórnum mínum á
Skagaströnd ásamt aragrúa af
flottu tónlistarfólki af svæðinu.
Við héldum tvenna tónleika og
allur undirbúningur og tón-
leikarnir sjálfir voru mikil
skemmtun, gleði og jafnframt
góður skóli fyrir mig í mínu
starfi.
Hver var skemmtilegasta
uppákoman að þínu mati?
Ég nýt þess alltaf í botn að fara
í minn gamla heimabæ og
skemmta mér á Húnavöku á
Blönduósi. Hátíðin var bæði
skemmtileg og vel skipulögð
og eitthvað í boði fyrir alla
meðlimi fjölskyldunnar. Ég
skemmti mér líka óendanlega
vel með eiginmanninum í
óvissuferð í V-Húnavatnssýslu.
Þar kynntist ég mikið af
skemmtilegu fólki og áttaði
mig enn betur á hvað það
svæði er mikil ferðamanna-
auðlind og margt flott að
gerast.
Hvernig voru jólin og
áramótin hjá þér?
Jólin og áramótin voru ljúf og
góð blanda af gæðastundum
með fjölskyldunni og tónlist
Mynd: Höskuldur B. Erlingsson
Mikið að gera í snjómokstri
Fannfergi í desember
Mikið snjóaði í desember og
að sögn Indriða Þ.
Einarssonar sviðsstjóra
veitu- og framkvæmdasviðs
sveitarfélagsins Skagafjarðar
er ljóst að kostnaður við
moksturinn fer fram úr
áætlunum þrátt fyrir góða
tíð í haust.
Indriði sagði í samtali við
Feyki á Þorláksmessu að
snjómoksturinn hefði gengið
ágætlega en að það hefði verið
nóg að gera undanfarnar 2-3
vikur og í mörg horn að líta.
Þegar mest var að gera voru tíu
til tólf vélar á vegum sveitar-
félagsins að vinna að snjó-
mokstri. „Samkvæmt spám
virðist veðrið ætla að vera
skaplegt næstu daga og því ættu
verktakar sem sinna snjómokstri
að fá kærkomið frí yfir jólin,“
sagði Indriði og var veðrið
sannarlega með besta móti í
Skagafirði yfir hátíðarnar. /BÞ
UMSJÓN
Kristín Sigurrós Einarsdóttir
þar sem ég var að spila talsvert
í kirkjum, á tónleikum og
hinum ýmsu stöðum. Ég naut
þess í botn að eyða tíma með
fjölskyldunni, borða góðan
mat þar sem rjúpur að hætti
eiginmannsins standa ávallt
uppúr og hitti marga vini og
kunningja.
Hvernig spáir þú nýju ári?
Ég horfi björtum augum fram
á nýtt ár. Það eru nokkur
skemmtileg verkefni á
döfinni, mikill tími mun fara í
undirbúning fyrir tónleikaferð
til Kanada og ég er einnig á
leið í skemmtilegt verkefni
með Karlakór Bólhlíðinga. Ég
held því að nýtt ár verði
skemmtilegt og krefjandi. Ég
er ekki nokkrum vafa um að
við sjálf sem einstaklingar
getum haft stórkostleg áhrif á
það sem koma skal. Það koma
auðvitað alltaf upp aðstæður
sem við höfum ekki stjórn á
og ráðum jafnvel ekki við en
okkar hugarfar ræður svo
ótrúlega miklu um hvernig
dagarnir og árin okkar verða.
Eitthvað að lokum?
Munum að njóta dagsins í dag
og reynum eftir fremsta
megni að vera jákvæð með
gleðina í fyrirrúmi og sogast
ekki inní þá neikvæðni sem
lifir stundum og hrærist í
kringum okkur. Njótum
tilverunnar, sú„klisja“ að lífið
sé í dag er aldrei of oft sögð því
það er ekki gott að átta sig á
henni of seint!
Sérfræðikomur
í janúar
FRÁ HEILBRIGÐISSTOFNUNINNI SAUÐÁRKRÓKI
Orri Ingþórsson
kvensjúkdómalæknir, 8. og 9. janúar
Sigurður Albertsson
skurðlæknir, 12. og 13. janúar
Haraldur Hauksson
alm/æðaskurðlæknir, 19. og 20. janúar
Bjarki Karlsson
bæklunarskurðlæknir, 26. til 29. janúar
Tímapantanir í síma 455 4022
www.hskrokur.is
Allt á kafi í snjó við leikskólann Ársali við Víðigrund. MYND: BÞ
Rétt fyrir áramót var úthlutað
styrkjum úr Menningarsjóði
KS. Að þessu sinni hlutu 30
aðilar styrki til ýmissa
menningartengdra verkefna
eða starfsemi, sem flest
tengjast Skagafirði eða
nærsveitum.
Eftirtaldir aðilar hlutu styrki
(röðin er tilviljanakennd og segir
ekki til um upphæðir styrkj-
anna): Karlakórinn Heimir, Skag-
firski Kammerkórinn, Rökkur-
kórinn, Karlakór Bólstaðarhlíðar-
hrepps, Kirkjukór Sauðárkróks-
kirkju, Kirkjukór Hólaneskirikju
- vegna Kanadaferðar kórsins,
Sönghópur félags eldri borgara í
Skagafirði, Kvennakórinn Sóldís,
Erla Gígja Þorvaldsdóttir – vegna
útgáfu geisladisks, Sigurjón
Menningarsjóður KS
Þrjátíu úthlutanir
Jóhannesson ásamt Margréti
Stefánsdóttur og Ásgeiri Eiríks-
syni –vegna útgáfu á geisladiski,
Róbert Óttarsson og Guðmundur
Ragnarsson – vegna útgáfu geisla-
disksins ORÐ, Geirmundur
Valtýsson, Leikfélag Sauðárkróks,
Frjósamar freyjur og frískir menn
– vegna uppsetningar á leikverki,
Grímar Jónsson –vegna töku
myndarinnar „Hrútar,“ Skotta
kvikmyndafjelag –vegna töku á
myndinni „Sjómannslíf – Ein af
strákunum,“ Jón Ormar Ormsson
– vegna menningarmála, Æsku-
lýðsfélag Hólaneskirkju – vegna
landsmóts æskulýðsfélaga
þjóðkirkjunnar, Ingibjörg Kristín
Jónsdóttir – vegna áframhaldandi
rannsókna á sögu gamla
barnaskólans á Hlíðarhúsi í
Óslandshlíð, Samband skagfirskra
kvenna – vegna samkomu í tilefni
af 100 ára afmæli kosningaréttar
kvenna sem haldin er á „Degi
kvenfélagskonunnar,“ Sauðár-
króksprestakall, Gullgengi ehf. –
til sumaropnunar í Stefánsstofu í
Menningarhúsinu Miðgarði,
Lifandi landslag – vegna forrits
fyrir snjallsíma og spjaldtölvur,
SöguSkjóðan – leiðsögn um
Sauðárkróksbæ, Heimilisiðnaðar-
safnið á Blönduósi, Pilsaþytur,
Bókaútgáfan Hólar, Steinunn
Jóhannesdóttir – vegna útgáfu á
ritum um þjóðskáldið Hallgrím
Pétursson.
Þá var tveimur framlögum
úthlutað sérstaklega í tilefni af 125
ára afmæli KS og fóru þau til
Fjölbrautaskóla Norðurlands
vestra, vegna markaðssetningar á
nýjum námsbrautum við skólann,
og til Vesturfarasetursins á Hofs-
ósi, vegna sýningar í tilefni 20 ára
afmæli safnsins árið 2016. /KSE
Frá úthlutuninni. MYND: KSE