Feykir - 08.01.2015, Qupperneq 4
4 1/2015
Öfugt við árið 2014 sem
við kveðjum nú er árið
2015 ár sáttaumleitana.
Í stað miskunnarlausra
árekstra vegna
hugmyndafræðilegrar stífni
oft á kostnað fjölskyldu-
og samfélagsvænna gilda
siglum við inn í ár þar sem
diplómatískar lausnir eiga
frekar upp á pallborðið og
ábyrgðartilfinning helst í
hendur við miskunnsamari
sjónarmið. Skoðum betur
tölurnar sem standa að baki
þessum fullyrðingum:
2014 er samansett af þremur
tölum, 2, 1 og 4, sem búa til
tvær táknrænar þversummur,
töluna, 5 (1 + 4 = 5) og töluna
7 sem er aðaltala ársins (2 +
1 + 4 = 7). Allar þessar tölur
er fremur harðar tölur, þær fela
í sér hvatvísa og ósveigjanlega
orku, sem kann þó að vera
mikilvæg út frá sjónarmiðum
hugsjóna, menntunar og
árangurstengdra sviða, en á
kostnað mjúku gildanna, eins
og sambands, hjónabands,
ábyrgðar í starfi og svo
framvegis. Þeir sem sluppu í
gegnum árið án þess að lenda
í miklum vandræðum á sviði
samskipta eða komust hjá
skilnaði eða samskiptaslitum,
jafnvel einhvers konar óhappi,
meiðslum eða fjárhagstjóni,
mega prísa sig sæla. Öll ættum
við að geta andað léttar og
horft fram á þægilegri tíma.
Árið 2015 hefur mýkri
þversummur, töluna 6 (1 +5 =
6) og aðalþversummutöluna,
hina diplómatísku fjármálatölu,
8. Sexan er tala samfélags-
legra dyggða, hjónabands,
fjölskyldu og ábyrgðar í starfi.
Bæði sexan og áttan eru mjög
sveigjanlegar og tillitsamar
tölur, þær leita lausna í þágu
samfélagslegra gilda og eru
tilbúnar að færa persónulegar
fórnir til þess. Að baki þessum
mjúku tölum búa að vísu
enn býsna hugsjónaríkar og
framkvæmdasamar tölur, 1
og 5, sem ekki eru tilbúnar að
víkja frá sínum hugmyndum,
en þar sem þversumma þeirra
felur í sér mun meiri mýkt er
líklegt að þær láti að sínum
fyrri kröfum og leiti lausna
þegar á hólminn er komið.
Niðurstaðan er því sem
fyrr segir, árið 2015 mun
fela í sér tilhneigingar til að
ná sáttum eftir mjög erfiðar
hugmyndafræðilegar orrustur
víða um heiminn, þó skal ekki
hrósa happi of snemma því
þær tilhneigingar kunna að
láta bíða eftir sér þar til allar
hugmyndafræðilegar siglinga-
ferðir hafa strandað.
Benedikt S. Lafleur hreppti
þriðja sætið í hinni alþjóðlegu
skyggnikeppni í Úkraínu:
International Psychic Challenge
fyrir innsæi og hæfileika á sviði
talnaspeki og notkun pendúls.
Fyrirspurnir um talnagreiningu og
ráðgjöf á sviði talnaspeki veitir
Benedikt hjá lafleur@simnet.is .
www.numerologylafleur.com.
Benedikt S. Lafleur talnaspekingur
Árið 2015 ár ábyrgðar
og sáttaumleitana
Áramótahugleiðing
Árið 2014 var gjöfult ár fyrir
Ísland frá náttúrunnar hendi,
bæði til sjávar og sveita, og
einnig streymdu ferðamenn
til landsins sem aldrei fyrr. Ef
við sætum ekki uppi með
þessa „guðsvoluðu
ríkisstjórn“ þá værum við sem
þjóð í góðum málum og
værum að komast út úr
kreppunni, byggja upp
innviði samfélagsins og auka
jöfnuð í landinu.
Við værum að læra af biturri
reynslu af því sem orsakaði
Hrunið og snúa af leið græðgi,
misskiptingar og einkavæðingar
sameiginlegra auðlinda. En við
erum þess í stað leidd aftur til
slátrunar á altari Mammons,
komin í sömu hringekjuna og
við krössuðum í í Hruninu og
vitum ekki hvar þessi ósköp
enda.
Nú þurfum við sem þjóð í
upphafi nýs árs að hrista af okkur
slenið og láta ekki teyma okkur
aftur á asnaeyrum út í fenið. Við
þurfum að losa okkur við þessa
óláns ríkisstjórn sem fyrst áður
en henni tekst að eyðileggja
velferðar- og menntakerfið og
AÐSENT LILJA RAFNEY MAGNÚSDÓTTIR SKRIFAR
innviði samfélagsins meir en
þegar er orðið og koma hér á
stjórn sem setur jöfnuð, réttlæti
og sjálfbærni í forgang. Ég er að
boða byltingu! Því hún byrjar
ávallt í hjarta og huga hvers og
eins og með samtakamætti getur
þjóðin snúið af sér þá niður-
rifsstefnu sem birtist í síðustu
fjárlögum þar sem þungar
byrðar eru lagðar á þá sem
minnst mega sín og hlaðið er
undir valda- og fjármagns-
eigendur landsins. Við stöndum
á krossgötum sem þjóð. Við
höfum öll tækifæri til að búa vel
að öllum íbúum landsins hvort
sem þeir búa á Kópaskeri eða í
Reykjavík, við höfum efni á að
reka gott heilbrigðiskerfi, efla
menntun, jafna kjör almennings
óháð búsetu og bæta samgöngur
og vernda náttúru landsins.
Núverandi stjórnvöld eru
búin að sýna á spilin og þau eru
að stefna í allt aðra átt með sinni
grjóthörðu hægristefnu þar sem
ójöfnuður eykst og allt er falt
fyrir peninga, hvort sem það er
náttúra landsins eða fiskurinn í
sjónum. Þjóðin er svo sannarlega
búin að fá nasaþefinn af því fyrir
hverja þessi ríkisstjórn er að
vinna og það er ekki
almenningur í landinu sem er
þar efstur á blaði heldur
auðvaldið.
Nú þurfum við að snúa
bökum saman og losa þjóðina
við þessa gæfulausu ríkisstjórn
sem fyrst og koma hér á vinstri
félagshyggjustjórn. Þegar það
tekst þá eigum við að geta horft
fram á betri tíma fyrir alla en
ekki bara fyrir suma eins og nú
er.
Með góðri nýárskveðju.
Lilja Rafney Magnúsdóttir
alþingismaður Vinstri grænna
í Norðvesturkjördæmi.
Ef leitar þú andlegrar fyllingar fús
með funandi löngun og vilja,
þá standa þér opin þau huglægu hús
sem hjálpa þér best til að skilja.
Þá finnur þú ómælis geislandi geim
sem gildi þitt þroskar og magnar.
Og þá áttu heima í húsunum þeim
og hjarta þitt gleðst þar og fagnar.
Þá sérðu í dulvitund dagljósa sýn
sem dreifir sér himin þinn yfir,
og færir þér gullin sem frjáls verða þín
og fylgja þér meðan þú lifir.
Rúnar Kristjánsson
(ort 14. 12.´14)
Dagljós sýn
Við úthlutun menningar-
styrkja KS skömmu fyrir
áramót var einnig afhentur
afreksbikar, sem er
farandbikar til minningar um
Stefán Guðmundsson, fv.
stjórnarformann KS og konu
hans Hrafnhildi
Stefánsdóttur. Er þetta í
fjórða sinn sem bikarinn er
afhentur.
Í þetta sinn voru það tvær
ungar og efnilegar körfu-
boltakonur sem hlutu bikarinn,
þær Bríet Lilja Sigurðardóttir og
Linda Þórdís Róbertsdóttir. Þær
leika báðar með meistaraflokki
kvenna hjá Tindastól og hafa
einnig leikið með landsliði U-16
og unnu Norðurlandameistara-
titil með því liði á dögunum.
Þeir bræður Ómar Bragi og
Stefán Vagn Stefánssynir
afhentu Bríeti Lilju og Lindu
Þórdísi bikarinn, en það er
höndum þeirra og Hjördísar
systur þeirra að velja hver hlýtur
bikarinn, sem gefinn er af þeim
systkinum. /KSE
Afreksbikar til minningar um Stebba Dýllu og Lillu
Bríet Lilja og Linda
Þórdís deila bikarnum
Golfklúbbur Sauðárkróks
Rafn Ingi
kjörinn nýr
formaður
Rafn Ingi Rafnsson var
kosinn formaður
Golfklúbbs Sauðárkróks á
aðalfundi klúbbsins sem
fór fram þann 9. desember
sl. en hann tekur við af
Pétri Friðjónssyni sem
gegnt hefur því embætti
undanfarin ár.
Þú var Magnús Helgason
kosinn gjaldkeri og tekur
hann við af Ragnheiði
Matthíasdóttur. Ný stjórn er
því þannig skipuð að Rafn
Ingi Rafnsson er formaður,
Halldór Halldórsson vara-
formaður, Magnús Helgason
gjaldkeri og Dagbjört
Hermundsdóttir ritari.
Herdís Sæmundardóttir
hlaut svokallaðan fyrir-
myndarbikar GSS, sem er
farandbikar veittur árlega
þeim kylfingi sem þykir hafa
verið til fyrirmyndar bæði
innan vallar og utan. /BÞ
Bríet Lilja og Linda Þórdís eldhressar. MYND: KSE