Feykir - 08.01.2015, Qupperneq 5
1/2015 5
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR >> Þú finnur fleiri íþróttafréttir á www.feykir.is
Baldur Haraldsson var valinn
Íþróttamaður Skagafjarðar 2014
UMSS og UMF Tindastóll
Kolbrún Ósk Hjaltadóttir
er 16 ára stúlka frá
Sauðárkróki, dóttir Sigurlaugar
Reynaldsdóttur og Hjalta
Magnússonar. Hún æfir fótbolta
og körfubolta hjá Tindastól.
Helstu íþróttaafrek: -Helsta
íþróttaafrek mitt var þegar ég
var valin í landslið U17 kvenna í
fótbolta.
Skemmtilegasta augnablikið:
-Þegar litli bróðir minn kom í
heiminn.
Neyðarlegasta atvikið: -Það
var þegar ég hélt ég hefði addað
frænku minni á snapchat og sendi
fullt af grettu myndum af mér en
þá var þetta einhver önnur sem ég
var að senda.
Einhver sérviska eða hjátrú?
-Nei, ég er ekki með neina sérvisku
eða hjátrú.
Uppáhalds íþróttamaður? -Gylfi
Sigurðsson.
Ef þú mættir velja þér andstæð-
ing, hver myndi það vera og
í hvaða grein mynduð þið
spreyta ykkur? -Ég myndi velja
mér Reynald eldri bróðir minn í
spretthlaup.
Hvernig myndir þú lýsa þeirri
rimmu? Ég myndi lýsa því þannig
að þegar ég er að enda hlaupið
þá er hann rétt að skríða af stað.
Helsta afrek fyrir utan íþrótt-
irnar? -Það eru engin sérstök afrek
fyrir utan íþróttirnar.
Lífsmottó: -Þegar þú smælar
framan í heiminn þá smælar
heimurinn framan í þig.
Helsta fyrirmynd í lífinu: -Foreldrar
mínir eru helstu fyrirmyndir mínar
af því þau hafa stutt mig í gegnum
allt og kennt mér margt
Hvað er verið að gera þessa
dagana? -Ég er bara í skólanum
og á landsliðsæfingum.
Kolbrún Ósk Hjaltadóttir / Knattspyrna / Karfa
Foreldrarnir helstu
fyrirmyndirnar
( GARPURINN ) berglind@feykir.is
UMSS og UMF Tindastóll
héldu samkomu í Húsi
frítímans á Sauðárkróki þann
27. desember, þar sem
kynntar voru niðurstöður úr
vali á Íþróttamanni
Skagafjarðar og Íþróttamanni
Tindastóls fyrir árið 2014.
Baldur Haraldsson rallýkappi
var valinn Íþróttamaður
Skagafjarðar og Jóhann Björn
Sigurbjörnsson spretthlaupari
hlaut titilinn Íþróttamaður
Tindastóls 2014.
Þess má geta að Baldur var fyrir
skömmu valinn „Aksturs-
íþróttamaður ársins“ af Akst-
ursíþróttasambandi Íslands. Í 2.
sæti í vali á Íþróttamanni
Skagafjarðar varð Jóhann Björn
Sigurbjörnsson og í 3. sæti
Arnar Geir Hjartarson. Þá var
Hlynur Þór Haraldsson golf-
þjálfari útnefndur Þjálfari ársins
2014, kvennasveit Golfklúbbs
Sauðárkróks var valin Lið ársins
2014, og einnig voru veittar
viðurkenningar til hóps efni-
legra unglinga.
Eftirfarandi voru tilnefndir til
Íþróttamanns Skagafjarðar
2014:
Arnar Geir Hjartarson (golf)
Baldur Haraldsson (akstursíþróttir)
Gísli Gíslason (hestamennska)
Helgi Rafn Viggósson
(körfuknattleikur)
Jóhann Björn Sigurbjörns. (frjálsar)
Jón Friðbjörnsson (akstursíþróttir)
Loftur Páll Eiríksson (knattspyrna)
Tilnefningar til Íþróttamanns
Tindastóls 2014:
Bríet Lilja Sigurðardóttir (karfa)
Guðrún Jenný Ágústsd. (knattsp)
Jóhann Björn Sigurbjörns. (frjálsar)
Loftur Páll Eiríksson (knattspyrna)
María Finnbogadóttir (skíði)
Pétur Rúnar Birgisson (karfa)
Rannveig Sigrún Stefánsd.(sund)
Þóranna Ósk Sigurjónsd. (frjálsar)
/BÞ
Helgi Rafn, Loftur Páll, Baldur, Jóhann Björn og Arnar Geir. MYND: UMFT
Lewis í úrvalsliðinu
Domino’s deildin í körfuknattleik
Úrvalslið karla og kvenna í
Domino´s deildunum var
kunngert sl. þriðjudag en þar
á meðal var hinn 38 ára
gamli leikmaður Tindastóls,
Darrel Lewis.
Í viðtali við Körfuna.is segist
Darrel Lewis bjartsýnn á gengi
liðsins í seinni hluta tímabilsins
sem nú er að hefjast. Allir
leikmenn liðsins séu til í slaginn
og ef þeir koma til með að leika
eins vel og þeir gerðu á fyrri
hluta tímabilsins þá ætti liðið að
vera í góðum málum. Þá segist
Lewis einnig njóta þess í botn að
leika með Tindastóli og talar vel
um liðsfélaga sína sem hann
segir alltaf gefa sig 100% í
leikinn.
Stórleikur í Síkinu
Tindastóll tekur á móti liði
Stjörnunnar í Síkinu á
Sauðárkróki í kvöld í fyrsta leik
ársins. Um er að ræða stórleik
liðanna sem eru í öðru og þriðja
sæti Dominos-deildarinnar,
Tindastólsmenn með 18 stig og
Stjarnan með 14 stig.
Leikurinn hefst kl. 19:15 og
nú er um að gera fyrir stuðn-
ingsmenn Stólanna að fjöl-
menna í Síkið og styðja strákana.
Áfram Tindastóll! /BÞ
Kvennakarfan
Nýr leik-
maður til liðs
við Stólana
Körfuknattleiksdeild
Tindastóls hefur náð
samkomulagi við
bandaríska leikmanninn
Tikeyiah Johnson um að
hún leiki með félaginu út
þetta tímabil. Að sögn
Stefáns Jónssonar
formanns körfuknatt-
leiksdeildarinnar er
Tikeyiah 23 ára bakvörður
sem lék með Robert Morris
University á síðasta
tímabili. Á tímabilinu
2012-2013 lék hún með
með Arkansans University.
Stefán segir Tikeyiah hafa
leikið um 37 mínútur að
meðaltali í leik með Robert
Morris og var að skora um 19
stig í leik. „Telur stjórn
körfuknattleiksdeildar að
Tikeyiah sé sá leikmaður
sem getur bætt lið Tindastóls
verulega og hjálpað til í
uppbyggingunni sem er í
gangi í Skagafirðinum,“ segir
Stefán í lokin. /BÞ
Íþróttamaður USAH 2014
Snjólaug valin
Ísólfur Líndal kjörinn
Íþróttamaður USVH 2014
Þann 27. desember sl. var
Ísólfur Líndal Þórisson
útnefndur íþróttamaður USVH
ársins 2014. Á árinu 2014
toppaði Ísólfur Líndal enn fyrri
árangur á keppnisvellinum. Ef
tekin er saman helsti árangur
á stærri mótum ársins þá
sigraði Ísólfur samanlagt
sterkustu mótaröð innanhús
norðan heiða.
Þá keppti hann í fyrsta sinn í
sterkustu inni mótaröð sunnan
lands og stóð sig mjög vel, komst
í nokkur úrslit og endaði í 6.-7.
sæti í samanlögðum árangri.
Sumarið 2014 fór fram
Landsmót á Hellu, þar keppti
Ísólfur í nokkrum greinum auk
þess að sýna kynbótahross. Þar
bar hæst árangur Ísólfs í tölti þar
sem hann var í A-úrslitum og
endaði í 5. sæti. En Ísólfur var
einnig í úrslitum í B-flokki
gæðinga og A-flokki gæðinga.
Að lokum tók Ísólfur þátt á
Íslandsmóti sem er sterkasta
íþróttamót ársins. Þar var hann í
úrslitum í öllum greinum sem
hann tók þátt í.
Í öðru sæti var Guðrún Gróa
Þorsteinsdóttir körfuboltakona,
var hún m.a. í lykilhlutverki í liði
Snæfells þegar liðið varð Íslands-
meistari í Dominos deildinn sl.
vor. Í þriðja sæti var Hannes Ingi
Másson körfuboltamaður hjá
Tindastól. Hann hefur staðið sig
geysivel í sterkum hóp ungra
drengja frá Tindastól en þeir
hafa verið að stela senunni í
deildinni í vetur. /KSE
Íþróttamaður ársins 2014
hjá Ungmennasambandi
Austur-Húnvetninga er
Snjólaug María Jónsdóttir,
skotíþróttakona og
formaður Skotfélagsins
Markviss. Þetta er annað
ári í röð sem hún hlýtur
þessa viðurkenningu. Húni.
is greinir frá þessu.
Tilkynnt var um valið í
Samkaupum á Blönduósi á
Þorláksmessu en í október
síðastliðnum var Snjólaug
María kosin skotmaður
Markviss árið 2014. Hún
hlaut þá viðurkenningu
einnig árið 2013. /BÞ