Feykir - 08.01.2015, Side 6
6 1/2015
um Skagabyggðar og Skaga-
strandar að þar væri lítill
sameiningaráhugi.
Tilnefning til orðsporsins
Leikskólinn Ásgarður á
Hvammstanga, með Guðrúnu
Láru Magnúsdóttur í forsvari,
fékk tilnefningu til Orðsporsins
fyrir framúrskrandi árangur
við þróunarverefnið „Leikur er
barna yndi“ og innleiðingu
flæðis í skólastarfi.
Umræður um yfirtöku HS
Miklar umræður urðu um
yfirtöku Sveitarfélagsins Skaga-
fjarðar á rekstri Heilbrigðis-
stofnunarinnar á Sauðárkróki,
í kjölfar fréttar af sameiningu
Heilbrigðisstofnana á Norður-
landi. Ekki varð þó af því en
sameiningin tók gildi 1. okt. sl.
Ásgeir Trausti samdi
við útgáfurisa
Húnvetningurinn Ásgeir
Trausti gerði samning við
útgáfurisann Columbia Rec-
ords. Hljóðaði samningurinn
upp á þrjár plötur og kom sú
fyrsta þeirra, In the Silence, út
4. mars í Bandaríkjunum.
Mars
Stakk sér eftir barni
Stúlkubarn var hætt komið í
sundlauginni á Hofsósi þegar
sundlaugarvörðurinn Ævar
Jóhannsson sá til barnsins og
stakk sér eftir því. Ævar hlaut
tilnefningu sem maður ársins á
Norðurlandi vestra, enda þótti
hann sýna mikið snarræði
þegar þetta atvik varð.
Stólarnir unnu 1. deildina
Meistaraflokkur Tindastóls í
körfuknattleik hlaut bikar-
meistaratitilinn í fyrstu deild-
inni. Höfðu Stólarnir þegar
tryggt sér sigur þegar síðasti
leikurinn, gegn Hetti, fór fram
í Síkinu um miðjan mars. Um
áramót voru Stólarnir í 2. sæti í
Dominosdeildinni, þegar
keppnin þar var hálfnuð.
Fljótamenn bregða undir
sig skíðum á ný
Á skírdag stóðu Fljótamenn og
velunnarar sveitarinnnar fyrir
geysiskemmtilegu og fjöl-
mennu skíðagöngumóti í
Fljótum. Þar með var gömul
hefð endurvakin enda Fljóta-
menn þekktir skíðagöngu-
garpar og var fyrsta skíða-
göngumót landsins haldið þar
árið 1905.
Apríl
Hjallastefnan tekin
upp á Skagaströnd
Undirrituð var viljayfirlýsing
um samstarf sveitarstjórnar
Skagastrandar við Hjalla-
stefnuna. Hjallastefnan hefur
nú verið tekin upp í
leikskólanum Barnabóli og
ráðinn var nýr leikskólastjóri
þar síðasta haust.
Skólahald í Húnaþingi
vestra endurskipulagt
Í framhaldi af skýrslu sem
Janúar
Síðasta veiðiferð
Örvars SK
Togarinn Örvar SK, sem
gerður var út frá Sauðárkróki
hélt í sína síðustu veiðiferð í
upphafi ársins, en hann var
seldur úr landi og 30 manna
áhöfn sagt upp. Fisk Seafood
hefur dregið úr bolfiskvinnslu
á sjó en eflir þess í stað vinnslu
í landi, líkt og aðrar vinnslur
kringum landið.
Áætlunarflug á
Sauðárkrók lagt niður
Áætlunarflug til Sauðárkróks
var lagt niður um síðustu
áramót, eftir að því hafði verið
komið á aftur í upphafi árs
2012 og Sveitarfélagið Skaga-
fjörður lagði þá fram auka-
fjármagn til að halda því
gangandi. Ekki náðust aftur
samningar um ríkisstyrkt flug
og lá það því niðri allt síðasta ár
og gerir enn.
Ungt par lést af völdum
umferðarslyss
Þann 12. janúar lést sextán ára
stúlka frá Sauðárkróki, Anna
Jóna Sigurbjörnsdóttir, í
umferðarslysi í Norðurárdal í
Borgarfirði. Þann 28. janúar
lést unnusti hennar, Skarp-
héðinn Andri Einarsson vegna
áverka af völdum slyssins.
Ungmennanna var minnst
með fallegum athöfnum á
Sauðárkróki og hefur verið
ákveðið að eftirleiðis verði 12.
janúar ljósadagur í Skagafirði,
þar sem íbúar kveikja á friðar-
kertum og minnast látinna
ástvina.
Febrúar
Sameiningarhugur í
Blönduósingum
Bæjarstjórn Blönduósbæjar fól
bæjarstjóra að kanna hug for-
svarsmanna annarra sveitar-
félaga í Austur-Húnavatnssýslu
til sameiningar. Skömmu síðar
var haft eftir forsvarsmönn-
Fréttaannáll 2014
Árið 2014 var um margt viðburðaríkt og minnisvert á Norðurlandi vestra. Risjótt tíðarfar
setti svip sinn á sumarið og olli m.a. töfum á heyskap. Ráðist var í ýmsar framkvæmdir, kosið
til sveitarstjórna og að vanda voru haldnir fjölbreyttir menningarviðburðir vítt og breitt um
svæðið. Yfirlitið hér á eftir gefur sýnishorn af því sem dró til tíðinda á síðasta ári, þó það sé
hvergi nærri tæmandi.
uppsögn stjórnar LH var þingi
frestað og ný stjórn kjörin. Er
nú stefnt að landsmóti á
Hólum sumarið 2016.
B-réttindi í snjóflóðaleit
Elísabet Ýrr Steinarsdóttir og
hundurinn Þoka luku B-prófi í
snjóflóðaleit í vor. Elísabet
hefur starfað með Skagfirð-
ingasveit frá 14 ára aldri og á
ekki langt að sækja áhugann á
þjálfun leitarhunda því faðir
hennar, Steinar Gunnarsson,
var einn af stofnendum Leitar-
hunda. Elísabet sér, ásamt
unnusta sínum Elvari Bjarka
Gíslasyni, um unglingadeild-
ina Trölla.
Skipað í Norðvesturnefnd
Á vordögum samþykkti ríkis-
stjórnin skipun sérstakrar
landshlutnefndar fyrir Norð-
urland vestra. Er nefndinni
ætlað að efla byggðaþróun,
fjölga atvinnutækifærum og
efla fjárfestingu. Jafnframt er
nefndinni ætlað að horfa til
þeirra tækifæra sem liggja í því
hvernig efla megi opinbera
þjónustu á svæðinu, en hún
hefur dregist umtalsvert
saman á undanförnum árum.
Formaður nefndarinnar er
Stefán Vagn Stefánsson.
Júní
Kosið til sveitarstjórna
Sveitarstjórnarkosningar fóru
fram um mánaðarmótin maí-
júní. Óhlutbundnar kosningar
fóru fram í Akrahreppi og
Skagabyggð. Í Húnaþingi
vestra, Blönduósbæ, Sveitar-
félaginu Skagafirði og Húna-
vatnshreppi var kosið á milli
tveggja lista í hverju sveitar-
félagi. Í Sveitarfélaginu Skaga-
firði var kosið á milli fjögurra
lista. Þar náði Framsóknar-
flokkurinn hreinum meiri-
hluta og fékk fimm menn
kjörna.
Fyrsti MA neminn braut-
skráður frá ferðamálabraut
Í byrjun júní voru 68 nem-
endur brautskráðir frá Háskól-
anum á Hólum, við athöfn
sem fram fór í Menningar-
húsinu Miðgarði. Þeirra á
meðal var fyrsti nemandinn
sem brautskráðist frá skól-
anum með MA í ferða-
málafræði, Guðrún Brynleifs-
dóttir frá Dalsmynni í
Hjaltadal.
Nýr bar
og nýr veitingastaður
Snemmsumars var opnaður
nýr bar á Sauðárkróki,
Microbar and bed. Það er Árni
Hvað gerðist á árinu 2014?
SAMANTEKT
Kristín Sigurrós Einarsdóttir
Haraldur L. Haraldsson hag-
fræðingur vann fyrir Húna-
þing vestra var skólahald í
Húnaþingi vestra endurskipu-
lagt. Í skýrslunni kom fram að
hagkvæmast væri að allt
skólahald færi fram undir einu
þaki, á Hvammstanga. Skrefið
var þó ekki stigið til fulls þar
sem ennþá er kennsla á
Borðeyri auk Hvammstanga.
Húsnæði Laugarbakkaskóla
hefur hins vegar verið selt.
Nældu sér í sjö
gullverðlaun
Kjötiðnaðarmenn SAH-
Afurða nældu sér í sjö
gullverðlaun í fagkeppni
Meistarafélags kjötiðnaðar-
manna 2014. Alls voru um 140
innsendar vörur í keppninni
svo úrvalið var mikið. Var
þetta í fyrsta sinn sem
fyrirtækið tók þátt í keppninni.
Maí
Viljayfirlýsing um
Landsmót hestamanna
Í maíbyrjun undirrituðu full-
trúar frá Landssambandi
hestamannafélaga, Gullhyl,
Sveitarfélaginu Skagafirði og
Akrahreppi viljayfirlýsingu
um að halda glæsilegt og
skemmtilegt landsmót hesta-
manna á Vindheimamelum
sumarið 2016. Skömmu fyrir
þing LH sl. haust var hins
vegar horfið frá þessu og eftir
Fulltrúar Landssambands hestamannafélaga, Akrahrepps og Sveitarfélagsins Skagafjarðar
undirrita viljayfirlýsingu í maíbyrjun 2014. MYND: SKAGAFJÖRÐUR.IS
Bergþór Pálsson vann til gullverðlauna í
keppninni, auk sérstakra verðlauna í flokki
grafinna og reyktra laxfiska.
MYND: SAH AFURÐIR