Feykir - 08.01.2015, Qupperneq 7
1/2015 7
firðinganna Ómars Braga
Stefánssonar og Pálínu Óskar
Hraundal. Um 7-8000 gestir
voru á staðnum og fór mótið
vel fram.
400 ára ártíð
Hallgríms Péturssonar
Á árlegri Hólahátíð var þess
minnst að 400 ár voru liðin frá
fæðingu sálmaskáldsins Hall-
gríms Péturssonar, sem fæddist
að Gröf á Höfðaströnd og var
seinna búsettur á Hólum.
Meðal viðburða af þessu tilefni
var upplestur rithöfundarins
Steinunnar Jóhannesdóttur á
bókinni Heimanfylgju, en
Steinunn las á söguslóðum að
Gröf og í Auðunarstofu á
Hólum.
Viljayfirlýsing vegna
atvinnuuppbyggingar
í A-Hún
Unnið var að gerð viljayfir-
lýsingar um atvinnuuppbygg-
ingu í Austur-Húnavatnssýslu.
Yfirlýsingin byggir á þings-
ályktun frá því í október 2013
og snýr hún að eflingu
atvinnulífs og sköpunar nýrra
starfa með nýtingu raforku
sem framleidd er í Blöndu-
virkjun. Aðilar að henni eru
Ríkisstjórn Íslands og sveitar-
félögin í sýslunni. Viljayfir-
lýsingin var svo undirrituð í
október.
September
Sindrastaðir
formlega opnaðir
Sindrastaðir á Lækjarmóti í
Húnaþingi vestra voru opnaðir
í haust, en um er að ræða
aðstöðu upp á tæpa 3000
fermetra sem inniheldeur m.a.
20x60 metra reiðhöll, aðstöðu
til kennslu og 31 mjög rúm-
góðar safnstíur. Eigendur eru
Ísólfur Líndal og Vigdís Gunn-
arsdóttir.
Ræsing í Skagafirði
Verkefnið Ræsing í Skagafirði
er samstarf Nýsköpunarmið-
stöðar Íslands, Sveitarfélagsins
Skagafjarðar og Kaupfélags
Skagfirðinga. Alls sóttu 24
verkefni um þátttöku en þrjú
voru valin til áframahaldandi
þróunar og verður síðan valið
milli þeirra í febrúar.
Fjárlögin reiðarslag
Í fjárlagafrumvarpi ríkis-
stjórnarinnar fyrir núverandi
ár var gert ráð fyrir verulegri
fækkun nemendaígilda við
FNV. „Reiðarslag fyrir skólann“
sagði Ingileif Oddsdóttir skóla-
meistari í samtali við Feyki.
Október
Hrútunum gert
hátt undir höfði
Hrútadagar og hrútasýningar
voru áberandi í menningarlífi á
Norðurlandi vestra á þessum
árstíma. Halda menn þar í
gamlar hefðir og þykir það hin
besta skemmtun að koma
saman, skoða hrúta og gimbrar,
sem jafnan er höndlað með á
staðnum.
Snjólaug María
gerir það gott
Skotkonan Snjólaug María
Jónsdóttir á Blönduósi gerði
það gott í íþrótt sinni á árinu
sem er að líða. Var hún m.a.
valin í úrtakshóp STÍ fyrir
smáþjóðaleikana sem haldnir
verða í Reykjavík 1.-6. Júní.
Snjólaug keppti á sjö mótum í
sumar og vann fimm þeirra,
jafnaði Íslandsmet kvenna
þrisvar og bætti það einu sinni.
Náðarstund slær í gegn
Náðarstund, bók Hönnu Kent
um sögu Agnesar og Friðriks á
Illugastöðum í Húnaþingi
vestra sló í gegn, en hún kom
út á íslensku í haust. Hannah
dvaldi sem skiptinemi á
Sauðárkróki og heillaðist af
sögunni sem henni var sögð á
leið suður með „íslensku
fjölskyldunni“.
Nóvember
FNV fær viðurkenningu
fyrir Evrópuverkefni
Verkefni sem FNV stendur
fyrir, nám í plastiðnum, hlaut
viðurkenningu á árlegri ráð-
stefnu á vegum Evrópu-
sambandsins, sem kallast SME
Assembly og haldin var í
Napólí á Ítalíu. Meginmark-
mið verkefnisins er að koma á
fót námi í plastiðnum og
plástbátasmíði með sérstaka
áherslu á trefjaplast af ýmsu
tagi.
Ístað fannst eftir rúm 20 ár
Gangnamaður í Deildardal
fann ístað í mýri sem hafði
legið þar týnt í um 20 ár.
Eigandinn, Magnús Gunn-
laugur Jóhannesson frá
Brekkukoti í Óslandshlíð, hafði
fengið ístaðið, sem var með
fangamarki hans, í fermingar-
gjöf og var það smíðað af afa
hans og nafna. Hann týndi því
síðan í göngum og hafði svipast
um eftir því af og til allt þar til
hann lamaðist í slysi árið 2011.
Safnað fyrir speglunartæki
Kiwanisklúbburinn Drangey í
Skagafirði hefur staðið fyrir
umfangsmikilli söfnun fyrir
speplunartæki fyrir Heil-
brigðisstofnun Norðurlands á
Sauðárkróki. Hefur fé verið
safnað meðal fyrirtækja og
stofnana í Skagafirði. Tækið,
sem kostar um 18 milljónir
króna mun m.a. nýtast í
átaksverkefni varðandi skim-
um fyrir ristilkrabbameini. Í
nóvember sl. veitti Sveitar-
félagið Skagafjörður einni
milljón króna í söfnunina.
Á ferð á flugi með Búðina
Skagfirðingurinn Árni Gunn-
arsson var á ferð og flugi með
heimildamynd sína Búðina
sem fjallar um verslun Bjarna
Har. á Sauðárkróki. Fór hann
með myndina í fjórar
kvikmyndahátíðir í jafn-
mörgum löndum og hefur
verið óskað eftir henni víðar.
„Það er ljóst að svona búðir
hafa verið til víðar en hjá
okkur,“ sagði Árni í samtali við
Feyki í nóvember.
Desember
Sveitarfélagið
Skagaströnd 75 ára
Sveitarfélagið Skagaströnd
fagnaði 75 ára afmæli sínu 1.
desember og bauð til
hátíðarkaffis á fullveldisdaginn
af því tilefni. Þrátt fyrir risjótt
tíðarfar þennan dag, eins og
reyndar marga aðra daga í
desember, fjölmenntu íbúar til
að fagna tímamótunum.
Geirmundur með
jólagleði í Austurbæ
Tónlistarmaðurinn Geirmund-
ur Valtýsson, sem fagnaði 70
ára afmæli sínu á árinu, stóð
fyrir stórtónleikum í Austurbæ
á aðventunni. Þar kom hann
fram með einvala liði tón-
listarmanna og flutt voru
jólalög ásamt sveiflulögunum
góðu.
Kjörræðismaður
Rússlands
Sauðkrækingurinn Ágúst
Andrésson var skipaður kjör-
ræðissmaður Rússlands á
Íslandi. Hlutverk hans verður
að vinna áfram að því að byggja
upp samband þjóðanna, bæði í
viðskiptalegum og menningar-
legum tilgangi, auk þess sem
nafnbótin felur í sér heiðurs-
tilnefningu.
Feykir óskar lesendum til
sjávar og sveita gleðilegs nýs
árs og hlakkar til
samskiptanna á afmælisári
Feykis, sem fagna mun
35 ára útgáfuafmæli
í vor.
Hafstað í Útvík í Skagafirði
sem á og rekur staðinn. Um
svipað leyti opnaði nýr
veitingastaður, Drangey, sem
staðsettur er á sumarhóteli
Miklagarðs á heimavist FNV.
Það voru matreiðslumenn-
irnir Jón Daníel Jónsson, Eiður
Baldursson og Jóel Þór
Árnason sem sá um að elda
skagfirskan mat fyrir gesti
veitingahússins í sumar.
Júlí
Ferðalangar í vandræðum
Afleitt ferðaveður gerði um
hásumarið og lentu ferðalangar
víða í vandræðum. Í þrumu-
veðri sem m.a. varð vart við í
Skagafirði splundraðist felli-
hýsi og lenti utan vegar
skammt austan við bæinn
Lauftún í Skagafirði. Um
svipað leiti olli aurbleyta
vandræðum á tjaldsvæðum.
Flöskuskeyti á ferð
Göngugarpurinn Gunnar R.
Ágústsson var einu sinni sem
oftar á gangi um Borgarsand
við Sauðárkrók þegar hann
rakst á tvö flöskuskeyti í
fjörunni, með 10-15 metra
millibili. Annað hafði borist
samdægurs frá Blönduósi en
hitt var skrifað í Laxárdal í
Refasveit og hafði verið sjósett
um miðjan júní.
Fyrsta hofið í 1000 ár
Hof að heiðnum sið var vígt á
bænum Efra-Ási í Hjaltadal.
Um er að ræða 80 fermetra
byggingu sem er einkaframtak
ábúendanna og einkum ætlað
til að hýsa athafnir og blót og er
helgað hinum heiðnu norrænu
goðum, Ásunum.
Ágúst
Vel heppnað
Unglingalandsmót
Unglingalandsmót UMFÍ var
haldið á Sauðárkróki um versl-
unarmannahelgina. Mótið var
eitt hið stærsta og glæsilegasta
sem haldið hefur verið og var
verkefnastjórn í höndum Skag-
Frá fjölmennri opnun Sindrastaða á Lækjarmóti. MYND: ÚR EINKASAFNI
Ræðismaður Rússlands, Anton V. Vasiliev og Ágúst Andrésson kjörræðismaður.
MYND: RÚSSNESKA SENDIRÁÐIÐ
Krakkar á Unglingalandsmóti í strandblaki í brakandi blíðu. MYND: ÓAB