Feykir - 08.01.2015, Page 8
8 1/2015
Maður ársins 2014 á Norðurlandi vestra :
Ingvar Óli Sigurðsson Hvammstanga
Tókst á við
erfiðar aðstæður
af ótrúlegri yfirvegun
Ingvar Óli Sigurðsson hefur
verið útnefndur Maður ársins
á Norðurlandi vestra af
lesendum Feykis. Í þeim
fjölmörgu tilnefningum sem
hinn 12 ára gamli Ingvar Óli
fékk var hann sagður hafa
brugðist hárrétt við þegar
móðir hans fékk
heilablæðingu á heimili
þeirra í júlí sl. Mæðginin voru
ein heima þegar atvikið átti
sér stað, ásamt yngsta bróður
Ingvars sem þá var 3 ára.
Blaðamaður Feykis heimsótti
fjölskylduna á Hvammstanga
í upphafi vikunnar til að færa
unga manninum blómvönd
af tilefninu og fékk að heyra
frásögn þeirra af þessum
afdrifaríka degi.
Ingvar Óli tekur þakklátur á
móti blómvendinum og viður-
kenningarskjalinu en hann er
augljóslega snortinn yfir út-
nefningunni og hann kemur
fyrir sjónir sem hógvær og
afskaplega vel gerður ungur
maður.
Ingvar Óli er sonur Hrefnu
Samúelsdóttur frá Hvammi á
Barðaströnd og Sigurðar Björns
Gunnlaugs-sonar frá Nípukoti í
Víðidal. Hann á tvo yngri
bræður, þá Einar Örn 8 ára og
Hafþór Inga 4 ára. Ingvar Óli er
í 7. bekk í Grunnskóla Húna-
þings vestra og hefur margvísleg
áhugamál sem hann sinnir af
miklum dug. Hann spilar á
trommur og leikur körfubolta
með UMF Kormáki og hefur
sýnt þar góða takta en hann fékk
m.a. viðurkenningu fyrir mestu
framfarirnar síðast liðið vor.
Hestamennska hefur einnig
verið Ingvari Óla hugleikin en
hann keppti á Landsmóti
hestamanna síðastliðið sumar
fyrir hönd Hestamannafélagsins
Þyts á merinni Væntingu frá
Fremri-Fitjum. Þegar Ingvar Óli
verður stór segist hann ætla að
verða bóndi eða vélvirki en
Ingvar Óli keppti á Landsmóti hestamanna sl. sumar. MYND: KOLBRÚN GRÉTARS.
hann hefur alltaf verið heillaður
af dráttavélum og ýmsum
öðrum vélum.
Tilefni þess að Ingvar Óli var
útnefndur maður ársins er atvik
sem átti sér stað um kl. 22 þann
22. júlí síðast liðinn. Hrefna,
Ingvar Óli og Hafþór Ingi voru
nýkomin inn eftir hafa verið að
skreyta húsið fyrir Unglista-
hátíðina Eldur í Húnaþingi sem
hófst degi síðar. En á Hvamms-
tanga, líkt og víða annarsstaðar,
tíðkast að skreyta hverfi bæjarins
eftir litum fyrir viðkomandi
bæjarhátíð. „Ég var að horfa á
sjónvarpið með Hafþóri litla
bróður mínum. Svo bað
mamma mig um að koma og þá
sá ég að hún lá á gólfinu. Ég
spurði hana hvað ég ætti að gera
og hún sagði mér að hringja í
112,“ rifjar Ingvar Óli upp er
hann hefur frásögn sína. Hann
segist hafa miðlað þeim upp-
lýsingum sem mamma hans
vildi koma áleiðis til neyðar-
varðarins hjá Neyðarlínunni og
lýst fyrir honum hvað var að
gerast. „Ég sagði allt sem
mamma sagði mér að segja, að
hún væri að svitna og svoleiðis.
Svo sagði hann mér að hringja í
einhvern sem gæti komið
fljótlega og að sjúkrabíllinn væri
á leiðinni,“ útskýrir Ingvar Óli
og segist þá hafa reynt að hringja
í pabba sinn en að hann hafi
ekki náð sambandi við hann, þá
hringdi hann í ömmu sína,
Sigrúnu Þórisdóttur, í Nípukoti.
Sjúkrabíllinn kom og sótti
Hrefnu en eftir beið Ingvar Óli
með litla bróður sínum.
Sigurður segir frá því
hvernig hann frétti af skyndi-
legum veikindum konu sinnar
en hann var á heimleið úr
hestaferð ásamt miðsyni þeirra
hjóna, Einari Erni, og var
staddur á sveitabæ skammt frá
Laugarbakka. „Ég heyri krakk-
ana kalla á mig að síminn minn
væri stöðugt að hringja. Þegar
ég athuga með hann sá ég ótal
„missed calls“ úr heimasím-
anum. Ég man að ég hugsaði
með mér að það væri skrítið þar
sem ég vissi að þau ættu von á
okkur heim fljótlega. Ég hringi
strax til baka og þá segir Ingvar
Óli mér að búið sé að flytja
mömmu hans burt í sjúkrabíl
og hann útskýrir stuttlega fyrir
mér hvað hafði komið fyrir.
Eftir það var ég keyrður í
hendingskasti á heilsugæslu-
stöðina,“ segir Sigurður.
Ingvar Óli segist ekki hafa
fundið fyrir hræðslu í fyrstu og
viðurkennir að hann hafi ekki
gert sér grein fyrir því hve
alvarleg veikindi mömmu hans
voru á þessari stundu. Hann
hélt að það hefði liðið yfir hana,
líkt og líkt og kom einu sinni
fyrir hann í skólanum þegar
hann rak vitlausa beinið í.
Sigurður fékk að hlusta á
upptöku af samtali sonar hans
við neyðarvörðinn og er
augljóslega afar stoltur af
honum, hann lýsir því hve
ótrúlega rólegur og yfirvegaður
hann hafi verið og að hann hafi
staðið sig ótrúlega vel. Ingvar
Óli bætir þá við frekar hógvær í
bragði: „Ég var ekkert að spá í
hvað væri að - ég hringdi bara.“
En segir svo að hann hafði orðið
hræddur þegar það fór að
skýrast hve alvarlega veik hún VIÐTAL
Berglind Þorsteinsdóttir
Ingvar Óli í faðmi fjölskyldunnar. Frá vinstri: Hrefna, Ingvar Óli, Hafþór Ingi, Sigurður Björn og Einar Örn. MYND: BÞ