Feykir - 08.01.2015, Side 11
1/2015 11
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
Verðlaun Sá sem fyrstur leysir þrautirnar
getur farið að plana sumarfríið!
Spakmæli vikunnar
Það er aldrei of seint að verða sá sem þú gætir hafa orðið.
– George Eliot
Sudoku
Vissirðu að...
ÓTRÚLEGT – EN KANNSKI SATT
... allir fellibylir myndast yfir hafi?
... það eru yfir 225 þúsund tré í Central Park í New York?
... það var einu sinni bannað að skella bílhurðum í Sviss?
... risaeðlur lifðu á jörðinni í 165 milljón ár áður en þær urðu útdauðar?
... við fæðingu eru kengúrungar aðeins 2,5 sm á hæð?
... Stonehange í Englandi er yfir 5000 ára gamalt?
FEYKIFÍN AFÞREYING oli@feykir.is
Hahahahaha...
Frú Jóna var að láta mála hjá sér. Einn morguninn sagði hún við málar-
ana: Þið verðið að fara sérstaklega varlega í dag, því mig dreymdi í nótt
að þið duttuð úr stiganum.
-Kæra frú sagði einn þeirra. Takið ekki of mikið mark á draumum. Mig er
búið að dreyma þrjár nætur í röð að þér gæfuð okkur kaffisopa!
Krossgáta
SVEINN BENÓNÝSSON
-Nei, í rauninni ekki. Nema bara að
verða betri maður.
UNNUR VALBORG
HILMARSDÓTTIR
-Nei, ekki þetta árið.
GUÐMUNDUR HÓLMAR
JÓNSSON
-Nei.
Mexíkóskt
lasagne og Toblerone
súkkulaðimús
AÐALRÉTTUR
Mexíkóskt lasagne
Fyrir 7-8 manns
4 kjúklingabringur
olía
salt
svartur pipar
1 bréf tacokrydd
2 rauðar paprikur
2 laukar
3 hvítlauksrif
600 ml matreiðslurjómi
2 krukkur salsasósa
8 meðalstórar tortillakökur
400 g rifinn ostur
1 dós sýrður rjómi
1 poki Doritos
Aðferð: Skerið kjúklingabringur
í litla bita og steikið á pönnu með
smá olíu. Kryddið með salti,
svörtum pipar og tacokryddi.
Þegar kjúklingabitarnir eru
gegnsteiktir, setjið þá í stóran
pott. Skerið papriku, lauk og
hvítlauk í litla bita og steikið í
stutta stund þar til grænmetið fer
að mýkjast. Blandið því svo
saman við kjúklingabitana í
pottinum ásamt matreiðslurjóma
og salsasósu. Hitið að suðu og
látið krauma við vægan hita í 10
mínútur.
Ausið 1/3 af kjúklingasósu í
botninn á stóru eldföstu móti og
setjið 4 tortillakökur ofan á. Til
að þær passi í mótið og nái að
MATGÆÐINGAR VIKUNNAR
UMSJÓN berglind@feykir.is
Jóhanna Huld Höskuldsdóttir
á Sauðárkróki er sælkeri
Feykis þessa vikuna. Hún tók
við keflinu af Rakel Rögnvaldsdóttur, mágkonu sinni, og skorar
á Heiðrúnu Ósk Jakobínudóttur að koma með uppskriftir í
blaðið.
Jóhanna Huld býður lesendum upp á girnilega uppskrift af
mexíkósku lasagne í aðalrétt og Toblerone súkkulaðimús í eftir-
rétt.
þekja kjúklinginn þarf að skera
þær til. Setjið aftur 1/3 af
kjúklingasósu jafnt yfir
tortillakökurnar og leggið aðrar
4 kökur yfir. Því næst er
afganginum af sósunni ausið yfir
tortillakökurnar og rifnum osti
að lokum sáldrað yfir.
Bakið í ofni við 200°C í 20-25
mínútur eða þar til osturinn
bráðnar og verður svolítið
stökkur.
EFTIRRÉTTUR
Toblerone
súkkulaðimús
Fyrir 4
200 gr Toblerone
50-100 gr suðusúkkulaði
2 egg
300 ml stífþeyttur rjómi
Aðferð: Bræðið Toblerone,
súkkulaði og smjör yfir vatnsbaði
og tekin af hitanum. Eggjum er
bætt við.
Súkkulaðiblöndunni er hrært
mjög varlega saman við rjómann.
Blöndunni er svo skammtað í
skálar og kælt í a.m.k þrjár
klukkustundir.
Borið fram með þeyttum
rjóma og jafnvel jarðaberjum.
Verði ykkur að góðu!
ÓLÍNA AUSTFJÖRÐ
-Nei, ég myndi örugglega pottþétt
ekki standa við það.
Feykir spyr...
[SPURT Í KVH Á
HVAMMSTANGA]
Strengdir
þú
áramótaheit?
Jóhanna Huld matreiðir
Jóhanna Huld Höskuldsdóttir
UMSJÓN berglind@feykir.is