Feykir - 19.03.2015, Síða 2
2 11/2015
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Berglind Þorsteinsdóttir – berglind@feykir.is & 455 7176
Blaðamenn:
Kristín Sigurrós Einarsdóttir – kristin@feykir.is & 867 3164
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is
Þóra Kristín Þórarinsdóttir – thora@nyprent.is
Áskriftarverð: 530 kr. hvert tbl með vsk. Lausasöluverð: 650 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. & 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
LEIÐARI
Tertusneiðin fór til spillis
Fermingar eru tími mikillar eftirvæntingar. Sjálf er ég næst
yngst í sex systkina hópi og eyddi stórum hluta af minni
barnæsku í að stúdera hvenær röðin kæmi að mér varðandi
hina ýmsu hluti sem eldri systkini mín höfðu þegar fengið. Eitt
af því var fermingin, og ekki síst
fermingarveislan, enda hef ég ávallt
veisluglöð verið, ekki síst hvað varðar
mat eða kökur.
Ég man að ég valdi hefðbundið
bakkelsi eins og kleinur, pönnukökur
og fleira á veisluborðið, auk einnar
rjómatertu með rauðu hlaupi sem
ágætis kona í sveitinni bakaði fyrir
okkur. Þá voru kransakakan og
brauðterturnar á sínum stað en heitir
brauðréttir ekki komnir í tísku.
Fermingargjafirnar á þessum tíma voru gjarnan rúm með
tveimur rúmfataskúffum undir, skrifborðsstólar, lampar, skart-
gripir og leðurjakkar. Ég man að ansi mikið af því sem mér
hlotnaðist að gjöf þennan dag var í hvítum, bleikum og svörtum
litum og minnti herbergið mitt á þessum árum helst á sviðs-
myndina í þáttunum hjá Hemma Gunn, enda „eightís“ tískan í
algleymingi.
Þá eru minnisstæð handklæðasett, armbandsúr sem eflaust
hefur verið pantað úr Quelle-listanum og óskaplega tæknilegt
svart Philips kassettutæki, þeirrar gerðar að hægt var að smella
hátölurunum af! Það gerðist nú ekki mikið flottara, að ég tala
nú ekki um áletraða leðurveskið og vínrauða skartgripaskrínið,
en í þessum hirslum geymdi maður rúmlega 80 þúsund krónur
sem biðu þess að félli ferð í Borgarnes svo hægt væri að leggja
þær inn í Sparisjóðinn.
Við vorum tvær stelpurnar sem fermdar vorum í Lundar-
kirkju á páskadag, 3. apríl 1988, sem jafnframt var fjórtán ára
afmælisdagurinn minn. Að vísu vorum við fjölskyldan flutt í
næstu sveit, Bæjarsveitina, en ég hélt tryggð við mína gömlu
góðu kirkju, enda alin upp á Lundi til 10 ára aldurs. Sr. Agnes
Sigurðardóttir, núverandi biskup, fermdi mig. Hún var langt
gengin með barn þegar þarna var komið sögu og man ég að
mamma sagði mér að gömul og heiðvirð kona í sveitinni hefði
komið að máli við sig og spurt hana hvort hún ætlaði virkilega
að láta kasólétta konu ferma dóttur sína! Ekki virtist mamma
jafnhneyksluð á því fyrirkomulagi, enda hefði það komið úr
hörðustu átt frá konu sem hafði gengið með sex börn á fjórtán
árum! Þess má geta að Agnes var þriðji kvenpresturinn á
landinu og á þessum tíma var Vigdís forseti að byrja sitt þriðja
kjörtímabil.
Fermingin gekk nokkuð skammlaust fyrir sig, en mér er þó
minnisstætt að messuvínið var ákaflega bragðvont. Getur þar
hvort tveggja komið til að þetta hafi verið fyrsta áfengið sem ég
bragðaði um dagana eða að það hafi staldrað of lengi við í
altarisskápnum, enda einungis tvö til þrjú fermingarbörn á ári.
Hitt var þó verra að vínið fór illa í maga þessarar grönnu og
slánalegu unglingsstúlku sem ég, ótrúlegt en satt, var á þessum
árum. Vildi ekki betur til en svo að ég hafði enga matarlyst og
missti því af fyrstu stórveislunni sem hafði sérstaklega verið
gerð fyrir mig. Fyrsta tertusneiðin var því einkum upp á punt,
hún rann ekki jafn ljúft niður og til stóð. Ég hef þó bætt mér það
upp í seinni tíma veislum.
Kristín Sigurrós Einarsdóttir, blaðamaður
CANON EOS 1200D
m/ 18-55mm IS linsu
Fangaðu augnablikið með DSLR myndavél
sem er auðveld í notkun og skilar
ljósmyndum og vídeó sem þú elskar.
• Bókin Stafræn ljósmyndun á Canon EOS fylgir.
• 18 megapixla ljósmyndir þar sem þú sérð öll smáatriði.
• Myndskeið (vídeó) með atvinnumanna-útliti og líta
vel út í HD sjónvarpinu.
• Þegar birtan minnkar þá eykur 1200D ljósnæmið þannig að myndirnar eru
enn skarpar.
• Taktu mynd með réttu stillingunni með Scene Intelligent Auto (SCN).
VERÐ KR.
89.900
Bluetooth
hátalar
Stórkostlegt úrval af
bluetooth hátalörum frá
Bose, House of Marley,
Sony, JBL o.fl.
G R Æ J U B Ú Ð I N Þ Í N
n
ýp
re
n
t
0
3
/2
0
1
5
VERÐ KR.
45.990
VERÐ KR.
189.900*
VERÐ KR.
58.900
HESTEYRI 2 SAUÐÁRKRÓKI SÍMI 455 9200 afgreidsla@tengillehf.is
• SCN greinir aðstæður út af birtu, lit,
hreyfingu o.fl. og hjálpar þér að taka
betri mynd.
• Feature Guide vélarinnar og smáforrit
(app) hjálpa þér aðlæra betur á EOS.
• Frábær og notendavæn hönnun o.fl.
LENOVO
B50-30 fartölva
Skemmtileg fartölva á
einstaklega hagstæðu verði.
Hentug í almenna netnotkun.
• Örgjörvi: Intel Celeron N2840 2,16-2,58GHz
dual core 1MB
• Minni: 4GB 1333MHz DDR3L (8GB mest, 1
rauf )
• Skjár: 15,6" HD m. myndavél
• Upplausn: 1366x768 punkta
• Diskur: 500GB 5400sn. 2,5" 9,5mm SATA
• Skjákort: Intel HD
• Drif: DVD-RW
• Rafhlaða: Innb. LiIon 4 sellu, allt að 4 klst
hleðsla
• Netkort: þráðlaust b/g/n og Bluetooth 4.0
Græjaðu
fermingargjöfina hjá okkur!
Græjubúð Tengils e
r stútfull af frábærum ferming
artilboðum
LENOVO
IdeaTab Yoga 10.1"
Spjaldtölva frá Lenovo.
Spræk og skemmtileg 10“
spjaldtölva sem fer einkar vel
í hendi. Hentar vel í alla
afspilun og leiki og hefur
ótrúlega rafhlöðuendingu.
• Örgjörvi: Cortex-A7 1.6GHz Quad-Core
• Minni: 2GB 800 MHz LP-DDR2
• Gagnapláss: 16GB (stækkanlegt um allt að 64GB með microSDHC korti)
• Skjár: 10.1" 1920x1200 IPS LCD með LED baklýsingu (149 PPI)
• Myndavél: 8 MP bakvísandi og 1.6 MP HD framvísandi
• Net: 802.11b/g/n þráðlaust net og Bluetooth 4.0
• A-GPS staðsetningartækni
• Hátalarar: stereo
• Hljóðnemi: Innbyggður (eyðir umhverfishljóði)
• Stýrikerfi: Android 4.4.2 (KitKat) m. Google Play
• Breidd 18 sm x Hæð 26.1 cm x Dýpt 0.3-2.15 sm
• Þyngd: 600 g.
Fermingar
TILBOÐ
LENOVO IDP Y50
15"F i7 4710HQ 16/1TB GTX W81
Alvöru leikjaskrímsli!
Y50 er með Haswell i7 örgjörva
sem gefur hreint ótrúleg afköst
fyrir leiki og skemmtun.
• Örgjörvi: Intel Core i7 4710HQ 2,5-3,5GHz
quad core 64bit
• Minni: 2 x 8GB 1600MHz DDR3 minni (16GB
mest, 2 raufar)
• Skjár: 15,6" FHD LED VibrantView m.
innbyggðri myndavél
• Upplausn: 1920x1080 punkta
• Skjákort: Optimus tækni: NVIDIA® GeForce®
GT860M (4GB) og Intel 4600
• Diskur: 1TB HDD, 5400sn. 2,5"
• Netkort: 10/1000 Ethernetkort o.fl.
FermingarTILBOÐ
Ferminga
r
TILBO
Ð
FermingarTILBOÐ
OPIÐ
ALLA VIRKA DA
GA
FRÁ KL. 8:00 -17
:00
– KOMDU OG K
ÍKTU
Á ÚRVALIÐ!
VERÐ FRÁ KR.
9.900
Gott úrval af
heyrnartólum
Allt að 20% fermingar-
afsláttur af heyrnartólum
House Of Marley, Bose,
Sony, Skull Candy o.fl.
VERÐ FRÁ KR.
2.990
* Tímabundið tilboð
„Þetta er búinn að vera erfiður dagur“
Það var í nógu að snúast hjá
björgunarsveitum á
Norðurlandi vestra vegna
óveðursins sem geysaði um
landið síðasta laugardag.
Björgunarsveitin Grettir á
Hofsósi fóru í sautján útköll
þar sem aðgerðir stóðu yfir í
samtals tíu tíma.
„Þetta er búinn að vera
erfiður dagur,“ segir Ingvar
Daði Jóhannsson, ritari Björg-
unarsveitarinnar Grettis þegar
Feykir hafði samband við hann
seinnipartinn á laugardaginn.
„Við höfum sinnt sautján verk-
efnum sem skráð voru í dag,
auk margra smærri verka sem
gengið var í áður en útköll
bárust,“ sagði Ingvar Daði enn-
fremur. Veðurofsinn var gríðar-
legur og til marks um það fuku
27 heyrúllur af hlaðinu á
Hólkoti í Unadal og enduðu út í
á. Er talið að vindhraðinn þar
hafi farið upp í 60-70 m/sek
þegar verst lét. Þá fauk þak í
hálfu lagi af íbúðarhúsi á Grund
2, járn, pappi og einangrun með
þeim afleiðingum að þakið
opnaðist.
Alls fóru Björgunarsveitin
Grettir, Skagfirðingasveit og
Flugbjörgunarsveitin í Varma-
hlíð í 24 verkefni og voru 29
Í nógu að snúast hjá björgunarsveitum á Norðurlandi vestra
Æfingatímabilið tvískipt að þessu sinni
„Barið í brestina“ frumsýnt í Sæluviku
Það er árviss viðburður að Leikfélag
Sauðárkróks frumsýni leikrit í Sæluviku. Að
þessu sinni varð fyrir valinu verkið Barið í
brestina eftir Ólafsfirðinginn Guðmund
Ólafsson, sem er gamanleikur með tónlist, í
leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar.
Að sögn Sigurlaugar Dóru Ingimundardóttur,
formanns leikfélagsins, er æfingatímabilið
tvískipt að þessu sinni, þar sem leikstjórinn er
einnig ráðinn til verkefna annars staðar. Fyrra
tímabilinu, sem stendur í fjórar vikur, er senn að
ljúka. Eftir þriggja vikna hlé verður síðan tekin
tveggja vikna törn fyrir frumsýningu.
Fimmtán hlutverk eru í verkinu, sem öll
krefjast mikillar viðveru leikara. Annar eins fjöldi
starfar svo að hinum ýmsu verkefnum bakvið
tjöld-in. Sigurlaug Dóra segir að vel hafi gengið
að manna hlutverk á sviði sem og baksviðs. Þeir
sem taka þátt séu nýliðar, mikilir reynsluboltar og
allt þar á milli. Að minnsta kosti tíu sýningar eru
áformaðar og verður sýnt í Bifröst á Sauðárkróki.
/KSE
björgunarsveitarmenn að störf-
um þennan dag. Algengast var
að þakplötur væru að fjúka.
Góðu heilli hafa ekki borist
fréttir af manntjóni en eignatjón
mun vera umtalsvert. Sund-
laugin á Hofsósi er lokuð um
óákveðinn tíma meðan viðgerð
stendur yfir.
Talsvert eignatjón
Svipaða sögu er að segja úr
Húnavatnssýslum. Björgunar-
sveitin Húnar fór í mörg útköll
vítt og breitt um Húnaþing
vestra. Aðstoðarbeiðnir fóru að
berast um leið og veðrið skall á
undir hádegið og voru menn að
störfum þar til síðdegis. Björg-
unarfélagið Blanda í Austur-
Húnavatnssýslu fór í að minnsta
kosti tuttugu útköll vegna
óveðursins en flest þeirra voru á
milli kl. 10:30 og 14:30 á laugar-
daginn.
Vindhraðinn á Blönduósi og
nágrenni var yfir 40 m/sek um
morguninn en fóru niður í 30
m/sek um hádegi. Rúður voru
að brotna, þakplötur að losna og
fjúka ásamt öðru lauslegu. Voru
útköllin bæði á Blönduósi og í
sveitunum í kring, að sögn for-
svarsmanna Björgunarsveitar-
innar. /KSE
Mikið var um fjúkandi þakplötur í óveðrinu sem geisaði á laugardaginn og var fjöldi
björgunarsveitamanna. MYND: SKAGFIRÐINGASVEIT
Fjölmiðlaveisla í Fjallinu
Þann 11. mars sl. bauð
Skíðadeild Tindastóls, í
samvinnu við önnur skíða-
svæði á Norðurlandi, og
Markaðsstofu Norðurlands,
um 50 manns frá ferða-
skrifstofum og fjölmiðlum, í
ferð um Norðurland með
viðkomu á skíðasvæði
Tindastóls. Var þetta liður í
markaðssetningarátaki sem
nefnist Ski Iceland.
Að sögn Viggós Jónssonar er
þetta í annað sinn sem boðið er
í slíka ferð í tengslum við verk-
efnið, fyrst í mars í fyrra, og gaf
það mjög góða raun en í kjölfar-
ið var Ski Iceland í fyrsta sinn
boðið að vera með í kynningar-
básum Icelandair á kaupstefnu
erlendis.
Yngstu börnunum
boðið á Töfrateppið
Föstudaginn 27. eða laugar-
daginn 28. mars verður tekið í
notkun lítið færiband, svokallað
Töfrateppi. Það er hugsað fyrir
minnstu börnin, allt niður í
þriggja ára, en þá líða þau upp
brekkuna og geta rennt sér
niður. „Þá höfðum við hugsað
okkur að bjóða litlu krökkunum
á skíði, við lánum þeim skíði og
leyfum þeim að prófa,“ sagði
Viggó í samtali við Feyki. „Það
er hugur í skíðadeildinni á
Króknum að gera þetta skíða-
svæði enn betra en það er. Þetta
svæði hefur mjög mikið upp á
að bjóða og það er mjög fjöl-
skylduvænt.“ /BÞ
Hugur í Skíðadeild Tindastóls