Feykir - 19.03.2015, Side 6
6 11/2015
sem þá hafði nýlega látið af störfum sem
textílkennari við Varmahlíðarskóla, að sauma
hálsslaufur úr roði. Upphafið var það að
Lionsmenn fengu hana til að sauma slaufu í
sextugsafmælisgjöf handa Agnari oddvita á
Miklabæ í Blönduhlíð. Var hún gerð úr rauðu
hlýraroði og má segja að Agnar sé einskonar
„stílryðjandi“ (trendsetter). Síðan hafa mörg
vötn runnið til sjávar.
„Síðan vatt þetta upp á sig upp á sig. Mér fannst
þetta skemmtilegt verkefni og hélt bara áfram. Ég
gerði mest handa vinum og
vandamönnum til að byrja með en
svo fór ég bara að selja
slaufurnar og hef gert það
núna síðast liðin tvö ár
eða svo,“ segir Helga um
framhaldið.
Helga notar ein-
göngu roð í slauf-
urnar, einkum af laxi
og hlýra en einstaka
eru gerðar úr karfa-
roði. Þar sem roðin
eru náttúrulegt efni,
sem eru lituð hjá Loð-
skinn, eru þau fáanleg í
öllum regnbogans litum en
engin tvö þeirra eru
nákvæmlega eins.
Stærðirnar á
slaufunum
Agnar á Miklabæ
eins konar „stílryðjandi“
Hannar og saumar slaufur undir vörumerkinu HF Textíll
VIÐTAL
Kristín S. Einarsdóttir
Fyrir rúmum
tveimur árum
byrjaði Helga
Friðbjörnsdóttir,
geta líka verið aðeins mismunandi. Kaupendurnir
eru alveg frá fermingaraldri og uppúr. Helga segir
að slaufur hafi verið í tísku um nokkurt skeið, auk
þess sem sumir karlmenn séu einfaldlega slaufu-
menn og kjósi slaufurnar fram yfir hálsbindin.
Slaufurnar eru saumaðar bæði í vél og í
höndum. „Þetta er svolítið föndur,“ segir Helga
en handverk er aldeilis ekki nýtt fyrir henni þar
sem hún starfaði sem textílkennari í Varma-
hlíðarskóla um árabil. „Þegar ég hætti því fyrir
nokkrum árum sneri ég mér meira að ýmsu
svona. Ég hef líka verið að sauma púða, sem ég
nota roðið í og hör. Þeir eru vinsælir í
afmælisgjafir.“ Auk þess nýtir Helga sporðstykk-
in af roðunum til að sauma snyrtibuddur.
Helga fæst líka við annan saumaskap, prjónar
og þæfir og segist hafa nóg að gera
eftir að hún hætti að vinna en
það sé mikill kostur að geta
stjórnað tíma sínum
sjálfur.
Slaufurnar hennar Helgu
er að finna á
fésbókarsíðunni HF
Textíll auk þess sem
þær fást á ofangreind-
um stöðum.
Netfangið hennar er
helga.fridbjornsdottir@
gmail.com
( TÓN-LYSTIN ) oli@feykir.is
Ingunn Kristjánsdóttir / söngkona
„Mér fannst Jóhanna
Guðrún alveg æðisleg“
Ingunn Kristjánsdóttir, fædd
árið 1990, er Króksari í húð
og hár en foreldrar hennar eru
Sigríður Margrét Ingimarsdóttir
og Kristján Örn Kristjánsson.
Ingunn hefur stundað nám í
Bandaríkjunum síðustu árin
og útskrifaðist með bachelor
í sálfræði frá University of
Florida í maí 2014 og stundar
nú mastersnám í atferlisfræði
við University of the Pacific í
Stockon í Kaliforníu.
Hún spilar smá á gítar en segist
vera alveg „...pro á hristur en
annars er það bara röddin sem
er mitt aðal hljóðfæri.“ Hún
söng sitt fyrsta lag inn á plötu
árið sem hún fermdist. „En ætli
það standi ekki uppúr að hafa
verið í öðru sæti í Söngkeppni
framhaldsskólanna 2008 og svo
var ég auðvitað í hljómsveitinni
Batterý og SENSE – good times!“
Hvaða tónlist fær þig til að sperra
eyrun þessa dagana? -Það fer
algjörlega eftir því í hvernig skapi
ég er, hvaða tónlist fær mig til
að sperra eyrun en verð alltaf að
vera með einhverja tónlist í gangi
í kringum mig. Hlusta rosalega
mikið á Pandora á netinu þar sem
að maður getur valið hverskonar
tónlist maður vill hlusta á. Síðan
bý ég til lagalista með mismunandi
tónlistarmönnum og lögum.
Hvers konar tónlist var hlustað á
á þínu heimili? -Var alveg rosalega
heppin með það að það var hlustað
á allskonar tónlist á mínu heimili.
Mamma var að læra óperusöng
þegar ég var lítil svo að ég heyrði
oft klassíska tónlist, pabbi spilaði
á trommurnar sínar úti í skúr með
allskonar lögum. Ef að ég var með
Ingimar afa þá var það Pavarotti og
Dóra amma með Rás1 í gangi. Hjá
Sigurbjörgu ömmu og Kristjáni afa
þá var það auðvitað Elvis Presley.
Kannski er það þessvegna sem
að ég á mér engan uppáhalds
söngvara – get hlustað á allt.
Hver var fyrsta diskurinn sem þú
keyptir þér? -Ætli það hafi ekki
verið fyrsti Spice Girls diskurinn.
Hvaða græjur varstu þá með?
-Einhverja svakalega „græju“ sem
var með kasettuspilara og allt!
Hver var fyrsta platan sem þú
óskaðir þér í jólagjöf ? -Mér fannst
Jóhanna Guðrún alveg æðisleg
og minnir að það hafi verið fyrsti
diskurinn sem að ég fékk í jólagjöf.
Hvaða lag getur eyðilagt fyrir þér
daginn? -It’s Friday Friday, gotta get
down on Friday …ég er örugglega
búin að eyðileggja daginn fyrir ein-
hverjum núna!
Uppáhalds Júróvisjónlagið? -Never
Ever Gonna Let You Go með Rollo
& King.
Þú heldur dúndurpartí í kvöld,
hvað læturðu hljóma í græjunum
til að koma öllum í stuð? -Haha,
það fer eftir því hvort að það
væri partý heima á Íslandi eða í
Bandaríkjunum. Væri meira RnB,
Rapp og EDM ef að það væri í
Bandaríkjunum og meira popp og
hip hop heima. Myndi líka spila
mun fleiri íslensk lög í partýi heima.
Þú vaknar í rólegheitum á
sunnudagsmorgni, hvað viltu
helst heyra? -John Mayer, Jason
Mraz eða Michael Bublé.
Þú átt þess kost að fara hvert
sem er í heiminum og skella þér
á tónleika. Hvert færirðu, á hvaða
tónleika og hvern tækirðu með
þér? -Ég væri alveg til í að fara á
Adele eða Michael Bublé tónleika
með mömmu. Ég væri alveg til í að
fara bara hvert sem er, til í allt!
Hvaða tónlistarmaður hefur þig
dreymt um að vera? -Hvaða kona
væri ekki til í að vera Beyonce?!
Hver er að þínu mati besta plata
sem gefin hefur verið út? -Ég held
að ég eigi mér bara enga uppáhalds
plötu!