Feykir - 19.03.2015, Blaðsíða 13
11/2015 13
[einnig bloggari Herratrends]
fékk í miðjum forritunartíma í
Tækniskólanum. Hann fékk
verkefni þar sem hann átti að
koma með hugmynd að
vefsíðu og búa hana síðan til,“
segir Einar Logi um hvernig
hugmyndin að síðunni
kviknaði. „Ég persónulega
þekkti ekki neinn af þessum
strákum. Alex vildi hafa
Einar Logi er 19 ára gamall,
sonur Kristínar Snorradóttur
og Þorvalds E. Þorvaldssonar.
Hann er nýútskrifaður stúdent
úr Fjölbrautaskólanum í
Garðabæ og starfar nú sem
þjónn á Vegamótum og einnig
í tískuvöruversluninni Zöru í
Smáralind.
„Herratrend.is hófst með
hugmynd sem Alex M. Green
VIÐTAL
Berglind Þorsteinsdóttir
hópinn á síðunni sinni sem
fjölbreyttastan svo allir gætu
höfðað til sem flestra á
síðunni. Ég og Alex vissum af
hvorum öðrum því við vorum
báðir að vinna í Smáralind, en
þekktumst ekkert. Svo hafði
Alex samband við mig og bauð
mér að vera með í þessu stóra
verkefni.“
Vefsíðan fjallar aðallega um
tísku fyrir herra en Einar Logi
segir ætlunina jafnframt að
fjalla um ýmislegt annað, eins
og tónlist, næturlífið, tattoo,
fólk, bíómyndir og tölvuleiki.
„Við erum allir mjög ólíkir,
hver og einn mun fjalla um
mismunandi hluti með
mismunandi áherslum, hvort
sem það er tónlist, tíska eða
eitthvað annað.“
Herratrend.is hefur vakið
mikla athygli og fengið mjög
góðar viðtökur, að sögn Einars
Loga. „Það hafa allir tekið vel í
það sem við erum að gera og
flestir segja að það hafi verið
mikil þörf á svona vefsíðu,“
segir hann og bætir við að
margir sem hann hittir á
förnum vegi kannist við hann
og spyrji hann út í síðuna.
„Um daginn labbaði rapparinn
Gísli Pálmi upp að mér og
Einar Logi var módel á úskriftarsýningu fatahönnunar Fjölbrautaskólans í
Garðabæ. Sýningin var á Kjarvalsstöðum. MYND: GUNNAR GUNNARSSON
„Mikil þörf
á svona vefsíðu“
Tískubloggarinn Einar Logi skrifar á Herratrend.is
Einar Logi Þorvaldsson frá Sauðarkróki
stofnaði nýverið vefmiðilinn Herratrend.
is, ásamt sex félögum sínum. „Við erum
góður, fjölbreyttur hópur og þar af leiðandi
verður umfjöllunarefnið skemmtilegt og
öðruvísi,“ sagði Einar Logi þegar Feykir sló
á þráðinn til hans rétt undir helgina. Einar
Logi var önnum kafinn í undirbúningi fyrir
Reykjavik Fashion Festval en gaf sér þó
tíma fyrir stutt spjall.
spurði mig hvort ég væri ekki
Einar Logi hjá Herratrend, það
var mjög skemmtilegt,“ segir
hann og hlær.
Kynnist fullt af fólki
og myndar góð tengsl
Sem fyrr segir var Einar Logi
að vinna við Reykjavík
Fashion Festival þegar
blaðamaður náði tali af honum
en hátíðin fór fram dagana 12.
– 16. mars. „Ég er í
sjálfboðastarfi í ýmsum verkum,
ég hef t.d. verið að búa til
kynningarmyndband fyrir
heimasíðu RFF, sendast eftir
ýmsum hlutum og undirbúa fyrir
lokahóf hátíðarinnar - bara í öllu.
Það er mjög gaman að vinna í
þessu umhverfi - þar kynnist ég
fullt af fólki og mynda góð
tengsl,“ segir Einar að lokum.
/
MYND: DAVÍÐ MÁR