Feykir - 19.03.2015, Page 14
14 11/2015
Fermingarpeningarnir
á Framtíðarreikning
Ef 30.000 kr. eru lagðar inn á
Framtíðarreikning bætum við
5.000 kr. við.*
Framtíðarreikningurinn ber ávallt
hæstu vexti verðtryggðra spari-
reikninga og er laus við 18 ára aldur.
Nánari upplýsingar
á arionbanki.is/ferming
*Eitt mótframlag fyrir hvert fermingarbarn
Það þarf að huga að
ýmsu þegar kemur
að fermingaveislunni
og mörg atriði þurfa
að smella fyrir vel
lukkaða veislu. Feykir
leitaði ráða hjá Binný í
Blóma- og gjafabúðinni
á Sauðárkróki en hún er
hafsjór af fróðleik þegar
það kemur að slíku.
Binný mælir með því að hefja
fermingarundirbúninginn
tímanlega, jafnvel ári fyrir
áætlaðan fermingardag. Þá er
gott að byrja að ræða við
fermingarbarnið um hvers það
óskar og hvað það sér fyrir sér í
veislunni. Gott er að hefja
innkaup snemma til að gera
Heilræði fyrir
fermingar-
veisluna
Binný í Blóma- og gjafabúðinni
UMFJÖLLUN
Berglind Þorsteinsdóttir
í rauðvínsglös á hvolfi með
kerti ofan á. Hún sorteraði
mörg kíló af Skittlesi, sem er
rosaleg vinna, en það væri t.d.
hægt að byrja á því mörgum
mánuðum fyrr og flokka það í
poka,“ útskýrði Binný. Svo gátu
borðgestir nartað í Skittlesið í
veislunni. Foreldrar og
fermingarbarn þurfa að sitja
þar sem góð yfirsýn er yfir
inngang salarins svo að þau sjái
þegar gestirnir koma í hús.
Binný segir mikið atriði að
raða rétt á borðið þannig að
röðin gangi smurt fyrir sig.
„Það er mjög mikilvægt að það
sé nóg pláss á borðinu þannig
að fólk geti lagt diskinn frá sér.
Fallegra er að hafa borðið
frekar látlaust en ef það er
raðað of þétt þá getur myndast
öngþveiti - þá gengur röðin
mun hægar,“ segir Binný.
Hugsa þarf fyrir því hvar röðin
við borðið myndast og ef boðið
er upp á forrétt, aðalrétt og
góð kaup og dreifa kostnaði, t.d.
er hægt að gera góð kaup á kjöti
og kartöflum á Bændadögum
að hausti en svo er allaf hægt að
viða að sér ýmsu smotterí svo
ekki þurfi að kaupa allt viku
fyrir veislu. Einnig segir Binný
sniðugt að byrja að útbúa
borðskraut með góðum
fyrirvara, þá vinni það sig svo
létt. Vinsælt er að klippa út
skraut eða útbúa blóm til að
raða á borðið en sömu söguna
er að segja með fermingar-
kertið ef barnið vill gera það
sjálft.
Binný nefnir sem dæmi
veislu frænku sinnar sem
fermdist í fyrra og Binný var
þar til aðstoðar. „Fermingar-
barnið fékk þá hugmynd að
skreyta borðið með Skittlesi og
ákvað að hafa alla liti - það kom
rosalega vel út. Hún raðaði því
á borðið eftir litum og
krumpaði bréf í sama lit og setti