Feykir - 19.03.2015, Síða 31
11/2015 31
Matgæðingurinn Elínborg frá Hóli mælir með
Svínakjötspottrétt og
Marsipan- eplaköku
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
Verðlaun Sá sem fyrstur leysir þrautirnar gæti dundað sér við
að skoða veðurspána fyrir páskana.... nú eða bara sleppt því!
Tilvitnun vikunnar
Það er skaði hversu stutt er milli þess að vera
allt of ungur og allt of gamall.
- Montesquieu
Sudoku
Vissir þú að...
ÓTRÚLEGT – EN KANNSKI SATT
... plánetan Mars virðist rauð því hún er þakin ryði?
... summa gagnstæðra hliða á teningi er alltaf 7?
... Hawaii-eyjar voru upprunalega kallaðar Samlokueyjar?
... það eru fleiri pýramídar í Perú en í Egyptalandi?
... á móti hverri mannveru eru 200 milljón pöddur?
„Þessar uppskriftir urðu fyrir
valinu hjá mér. Báðar eru í
uppáhaldi og mikið notaðar,
sérstaklega pottrétturinn. Í
honum er magnið af hverju
hráefni alls ekki heilagt,
heldur er um að gera að
breyta og bæta eftir því sem
smekkur manna býður,“ segir
Elínborg Ásgeirsdóttir á Hóli
í Skagafirði.
Elínborg skorar á frænku
sína, Ingibjörgu Skarphéðins-
dóttur og Svein Brynjar Frið-
riksson mann hennar í
Varmahlíð, að koma með næstu
uppskriftir.
AÐALRÉTTUR
Svínakjötspottréttur
5-600 gr svínagúllas
olía
engifer, 3 sm bútur
½ blaðlaukur
1 paprika
2 stórar gulrætur
4 msk sojasósa
3 msk teriyaki sósa
3-4 msk hunang
2-3 msk hlynsíróp
MATGÆÐINGAR VIKUNNAR
UMSJÓN berglind@feykir.is
1 dós baby maís
1 dós bambus
Maizena mjöl
Aðferð: Engifer saxað smátt,
blaðlaukur, gulrót og paprika skorin
í strimla. Kjötið brúnað í olíu,
engiferi bætt útí og síðan ferska
grænmetinu. Steikt í nokkrar
mínútur og síðan er sojasósu,
teriyaki sósu, hunangi, sírópi, baby
maís og bambus bætt útí. Látið
malla þar til kjötið er tilbúið. Þykkt
með Maizena. Gott að bera fram
FEYKIFÍN AFÞREYING oli@feykir.is
Hahaha...
BRANDARI VIKUNNAR
Síðan það byrjaði að snjóa þá hefur konan ekki gert annað en glápa í
gegnum gluggann. Ef veðrið versnar meira þá endar með því að ég verð
að hleypa henni inn.
með núðlum, hrísgrjónum og/eða
hvítlauksbrauði.
EFTIRRÉTTUR
Marsipan- eplakaka
Deig:
200 gr smjör, lint
150 gr sykur
3 egg
1 tsk vanilludropar
½ tsk rommdropar
1 tsk lyftiduft
120 gr hveiti
30 gr maizenamjöl
100 gr hakkaðar möndlur
Fylling:
200 gr marsipan(rå)
2 dl rjómi
4 græn epli
3 msk sítrónusafi
50 gr möndluflögur
Aðferð: Smjöri og sykri hrært
saman, eggjum bætt útí einu í einu,
síðan dropunum og loks þurrefn-
unum. Jafnað í stórt vel smurt
eldfast mót.
Marsipan og rjómi brætt saman
á lágum hita og jafnað yfir deigið.
Eplin skorin í skífur og lögð ofaná.
Sítrónusafa ýrt yfir og möndlu-
flögum dreift þar yfir. Einnig er gott
að setja smá kanilsykur yfir eplin.
Bakað við 180°C í um 40 mín.
Verði ykkur að góðu!
Krossgáta
EGILL RÚNAR
HALLDÓRSSON,
MOLASTÖÐUM:
-Blár.
JAMES ROBERT
ROBINSON,
HLÍÐARENDA:
-Bleikur.
Feykir spyr...
[NEMENDUR Á
ÞEMADÖGUM Í
GRUNNSKÓLANUM
AUSTAN VATNA]
Hver er
uppáhalds-
liturinn þinn?
UMSJÓN kristin@feykir.is
ÓLAFUR ÍSAR
JÓHANNESSON,
BRÚNASTÖÐUM:
- Grænn.
ERLINGUR ÞÓRIR
ERLINGSSON,
HOFSÓSI:
-Blár.