Feykir


Feykir - 30.04.2015, Blaðsíða 1

Feykir - 30.04.2015, Blaðsíða 1
 á BLS. 8-9 BLS. 5 Umfjöllun um Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga Í svipnum greini létta lund BLS. 3 Spjallað við Evu Dís og Tönju Rán um Kenýuferð Draumur okkar að fara út í sjálfboðastarf Dagbjört Dögg Karlsdóttir er íþróttagarpurinn Jón Arnór í uppáhaldi 16 TBL 30. apríl 2015 35. árgangur : Stofnað 1981 Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra BÍLAVERKSTÆÐI Hesteyri 2 550 Sauðárkrókur Sími 455 4570 Við þjónustum bílinn þinn! Alhliða bílaviðgerðir fyrir fólksbíla, vörubíla og dráttarvélar. Réttingar og sprautun. Fínir föstudagar hjá FISK Seafood Skemmtileg nýbreytni hjá starfsfólki í vinnslu Starfsfólk FISK Seafood á Sauðárkróki hefur tekið upp nýja og skemmtilega hefð sem þau vonast til að festist í sessi, þ.e. að mæta fín í vinnuna á föstudögum. „Við Hafrún Ósk Hallgrímsdóttir vorum að skoða saman myndir á netinu úr fiskvinnslum hér áður fyrr þegar konur klæddust pilsum og kjólum og þá kviknaði þessi hugmynd hjá okkur,“ segir Ásgerður Ósk Tryggvadóttir í samtali við Feyki. Samstarfsfólkið tók vel í hugmyndir Ásgerðar og Hafrúnar og hafa flestir mætt fínir til vinnu undanfarna tvo föstudaga. „Við skoruðum á karlana að koma í skyrtu og hafa nokkrir þeirra orðið við því. Þetta er bara föstudagur númer tvö en vonandi heldur þetta áfram,“ segir Ásgerður. Starfsfólkið sem blaðamaður Feykis ræddi við þegar hann leit við hjá þeim sl. föstudag segja andann vera allt annan í húsinu fyrir vikið, konurnar segja að gaman sé að skoða kjól hverrar annarrar og ef það kemur gott lag í útvarpinu þá kemur það fyrir að þær freistist til að sveifla pilsinu aðeins til og frá. /BÞ Einn á ferð Vöðuselskópur við Vesturós Héraðsvatna Þessi fallegi selskópur fannst einn og yfirgefinn í fjörunni í Skagafirði, skammt frá gömlu brúnni við Vesturós Héraðsvatnanna, á sumardaginn fyrsta. Það var Sveinn Einarsson sem rakst á kópinn þegar hann var á göngu í fjörunni ásamt hundi sínum og hafði samband við Feyki. Blaðamaður sendi Söndru M. Granquist, dýraatferlis- og vistfræðing hjá Selasetri Íslands á Hvammstanga, ljósmyndir af kópnum í von um að fá nánari upplýsingar. Út frá myndunum taldi Sandra að um vöðuselskóp væri að ræða en vöðuselir kæpa eðlilega ekki hér við land, heldur á ís. Urturnar kæpa yfirleitt í mars en fer líka eftir veðri. „Það getur því verið að móður og kóp hafi verið aðskilin á ís og kópur- inn hefur lent í fjörunni. Einnig gæti verið að urtan hafði kæpt þar, en að ómögulegt væri að segja til um það,“ sagði Sandra. „Það hjálpar okkur mikið SÖLUSTJÓRI NORÐURLANDI VESTRA Þröstur I. Jónsson hefur hafið störf hjá BYKO sem sölustjóri og þjónustar alla íbúa frá Skagafirði til Hólmavíkur. Þröstur verður staðsettur á Sauðárkróki en mun vinna út frá verslun okkar á Akureyri. Sími: 821 4059 • tj@byko.is G R Æ J U B Ú Ð I N Þ Í N Fermingargjafir Græjubúð Tengils er stútfull af frábærum fermingartilboðum Eldhressir starfsmenn og ef vel er að gáð má sjá glitta í pilsfalda og skyrtukraga. MYND: BÞ á Selasetrinu að fá upplýsingar eins og þessar til að skrá hjá okkur,“ sagði Sandra að lokum. /BÞ Kópurinn á Borgarsandi. MYND: BÞ

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.