Feykir - 30.04.2015, Blaðsíða 11
16/2015 11
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
Verðlaun Sá sem fyrstur leysir þrautirnar
getur hvílt sig.
Spakmæli vikunnar
Það er mikilvægasta skilyrði hamingjunnar að maður sé tilbúinn að
vera það sem hann er. – Desiderius Erasmus
Sudoku
Vissirðu að...
ÓTRÚLEGT – EN KANNSKI SATT
... meðal manneskja kyngir 295 sinnum á meðan á máltíð stendur?
... yfir 500 loftsteinar falla á Jörðina á hverju ári?
... hljóð ferðast 15 sinnum hraðar í gegnum stál en loft?
... 85% kvenna nota ranga stærð af brjóstahöldum?
... Frakkar borða hlutfallslega mest af osti?
... súkkulaðiframleiðendur nota 40% af möndluframleiðslu heimsins?
FEYKIFÍN AFÞREYING oli@feykir.is
Hahahahaha...
„Þú færð 2.000 krónur á tímann, en eftir þrjá mánuði hækka launin upp í
3.000 krónur á tímann,“ sagði forstjórinn við umsækjandann.
„Hvenær viltu svo byrja að vinna?“
„Mér líst vel á að byrja eftir 3 mánuði.“
Krossgáta
FJÓLA DÖGG BJÖRNSDÓTTIR
SAUÐÁRKRÓKI:
-Auðvitað spái ég Tindastól sigri.
AGNES BÁRA ARADÓTTIR
VARMAHLÍÐ:
-Að sjálfsögðu hef ég fulla trú á
mínum mönnum, Tindastól!!
Feykigott
á grillið
Teriyaki
kryddlögur
1 dl olía
3 msk sesamolía
2/3 dl sojasósa
2 tsk kummin
2 tsk koríanderduft (eða
handfylli af fersku söxuðu
koríander)
3 hvítlauksrif, pressuð
1 msk fersk engiferrót, söxuð
1 msk púðursykur
(eða 2 msk hunang)
Kínverskur kryddlögur
2 msk olía
1 sítróna (safinn)
1½ tsk lauksalt
2 ½ hvítlauksrif, pressuð
1 tsk engifer
1 tsk bearnaise essence
2 ½ tsk salt
½ tsk sinnep
1 msk tómatsósa
3 msk sykur
¼ tsk pipar
1½ tsk sojasósa
1 tsk tabasco
Apríkósugljái
4 msk apríkósusulta
4 msk barbicue sósa
4 msk olía
3 tsk milt karrí
salt og nýmalaður pipar
Verði ykkur að góðu!
MATGÆÐINGAR VIKUNNAR
UMSJÓN berglind@feykir.is
Sumardagurinn fyrsti er
genginn í garð og góða veðrið
rétt handan við hornið. Þá er
rétt að bjóða upp á þrjár uppskriftir á óviðjafnanlegum
kryddlögum sem óhætt er að mæla með en það jafnast ekkert á
við góðan grillmat til að gæða sér á á fallegu sumarkvöldi.
Kryddlegirnir og gljáinn henta vel með allskonar kjöti, lamba-
nauta- eða folaldakjöti. Teryaki og kínverski er sérlega góður með
lambakjöti og sá kínverski er bestur á fremur feitu kjöti, t.d.
framparta- og hryggsneiðum. Þumalputtareglan varðandi magn á
kjöti í teriyaki- og kínverska leginum er að ef þú telur þig vera með
yfirdrifið magn, þá að margfalda það með tveimur. Þeir eru sérlega
ávanabindandi og líka mjög gott að að narta í kjötið kalt næstu daga,
þ.e.a.s. ef það klárast ekki. Gott er að setja kjötið í teriyaki- og
kínversku legina kvöldið áður en grillað er en einnig dugar að gera
það um hádegi samdægurs. Apríkósugljáinn þarf ekkert að liggja á,
bara að smyrja hann á og svo beint á grillið.
Mælt er með því að reiða fram með kartöflum, kaldri
hvítlaukssósu frá Nonna (ómissandi), góðu salati og svo að sjálf-
sögðu rauðvíni eða ísköldum bjór.
Feykir spyr...
Hverjum spáir
þú sigri, KR eða
Tindastóli?
Feykir mælir með...
Lambafille í Teriyaki bíður þess að fara á grillið.
MYND: BÞ
UMSJÓN berglind@feykir.is
ODDUR KÁRASON
VARMAHLÍÐ:
-Er þetta spurning?! Auðvitað rífa
Stólar þá svarthvítu í sig!
ELFAR MÁR VIGGÓSSON
SAUÐÁRKRÓKI:
-Það er að sjálfsögðu Tindastóll,
hef trú á mínum mönnum.
ARNAR SKÚLI ATLASON
SAUÐÁRKRÓKI:
-Tindastól auðvitað.
Frumsýning Barið í brestina