Feykir - 30.04.2015, Blaðsíða 12
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
16
TBL
30. apríl 2015 35. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
Hvað ertu með á prjónunum?
Guðbjörg Hraundal Pálsdóttir á Sauðárkróki
Þarf að prufa allar hugdettur
HVAÐ ERTU MEÐ
Á PRJÓNUNUM?
UMSJÓN berglind@feykir.is
- Ég var um sjö ára
þegar ég lærði að
prjóna og hekla og
enginn mátti kenna
mér það nema pabbi og það tókst mér sitjandi á
baðkersbrúninni heima.
Ég hef gert allskonar hannyrðir síðan þá og geri
það flesta daga, get ekki sleppt því að vera með eitthvað
í höndunum. Ég hef gaman að öllu handverki, hvort
sem það er að sauma, smíða, hekla, prjóna, gimba,
leira, glerbrennslu og tyffaní en núna er ég mest í að
smíða úr silfri og timbri. Ég tek kannski silfursmíðina
fram yfir flest annað.
Flest handverk er ég að selja í Alþýðulist í
Varmahlíð en það er til nóg af hugmyndum hér á
þessum bæ og ég þarf að prufa allar hugdettur. Sem
krakki sagaði ég mikið út úr krossvið, svo sem hillur
og kertastjaka og myndir, því að engar tölvur eða
sjónvörp voru að trufla mann.
Guðbjörg skorar á Ástu Búadóttur að deila með
lesendum hvað henni finnst skemmtilegast að vinna í
höndunum.
KS-Deildin 2015
Þórarinn sigurvegari
Lokakeppni KS-Deildar-
innar fór fram í Svaða-
staðahöllinni sl. miðviku-
dagskvöld. Það var
Þórarinn Eymundsson, í liði
Hrímnis, sem stóð uppi
sem sigurvegari en þetta
er annað árið í röð sem
Þórarinn vinnur deildina.
Keppt var í slaktaumatölti og skeiði á lokamótinu.
Það var Fanney Dögg Indriðadóttir sem sigraði keppni í
slaktaumatölti á hryssunni Brúney frá Grafarkoti. Þær
áttu frábærar sýningar bæði í forkeppni og úrslitum.
Elvar Einarsson og Segull frá Halldórsstöðum sigruðu
skeiðið. Sigurvegari B-úrslita var Bjarni Jónasson og
Roði frá Garði. /BÞ
Efstu þrír. MYND: KS-DEILDIN
Elín Ósk úr Höfðaskóla sigraði
Stærðfræðikeppnina 2015
Stærðfræðikeppnin 2015
Elín Ósk Björnsdóttir, í Höfðaskóla á
Skagaströnd, varð í fyrsta sæti í
Stærðfræðikeppni Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra og Menntaskólans
á Tröllaskaga fyrir 9. bekki
grunnskóla á Norðurlandi vestra, í
Fjallabyggð og Dalvíkurbyggð þann
17. apríl sl.
Í öðru sæti var Úlfar Hörður Sveinsson í
Árskóla á Sauðárkróki og þriðja sætinu
deildu þau Ágústa Eyjólfsdóttir, Árskóla
og Aron Ingi Ingþórsson, Húnavalla-
skóla.
Stærðfræðikeppnin er samstarfs-
verkefni Fjölbrautarskóla Norðurlands
vestra og Menntaskólans á Tröllaskaga.
Undankeppnin fór fram í mars sl. og
tóku nemendur í 9. bekk af Norðurlandi
vestra, úr Fjallabyggð og Dalvíkurskóla
þátt í henni. Að þessu sinni komust 15
nemendur í úrslit.
„Það var glæsilegur hópur sem mætti
einbeittur til leiks í morgun [17. apríl].
Keppendur stóðu sig allir með afbrigð-
um vel og voru snöggir að svara
prófinu,“ segir í frétt á vef MTR. /BÞ
Elín Ósk Björnsdóttir hreppti fyrsta sætið í Stærð-
fræðikeppninnar 2015. Úlfar Hörður Sveinsson
var í 2. sæti. Þriðja sætinu deildu þau Ágústa
Eyjólfsdóttir og Aron Ingi Ingþórsson.
MYND: MTR.IS
Vísur og kveðskapur
rifjaðar upp á stofnfundi
Stofnun Kvæðamannafélagsins Gná í Skagafirði
Stofnfundur Kvæðamannafélagsins
Gnáar fór fram í Jarlsstofu á Hótel
Tindastóli þann 16. apríl sl. Að sögn
Hilmu Eiðsdóttur Bakken, eins
stofnenda félagsins og nýkjörins
formanns, var notaleg og góð stemn-
ing á fundinum. Þar var kveðið, rifjað-
ar upp ýmsar vísur og kveðskapur.
Á fundinum var kosið í stjórn, þrír í
aðalstjórn og tveir varamenn. Alls
mættu átta manns á fundinn og hafa
fleiri sent boð um þátttöku í félaginu.
Enn eru allir boðnir velkomnir í félagið
geta áhugasamir geta haft samband við
Björgu í síma 864 3693 eða Hilmu í síma
865 3614. Næsti fundur verður haldinn
19. maí nk. kl. 20, staðsetning verður
auglýst þegar nær dregur. Síðan er stefnt
að því að taka sumarfrí og byrja aftur af
krafti í september. Hægt er að fylgjast
með á facebook-síðu félagsins. /BÞ
Frá stofnfundinum. MYND: HILMA