Feykir


Feykir - 30.04.2015, Blaðsíða 10

Feykir - 30.04.2015, Blaðsíða 10
10 16/2015 Heilir og sælir lesendur góðir. Kannski er við hæfi á þessum brunaköldu dögum nú um fyrstu sumarhelgi er þessi þáttur er í smíðum að reyna að storka norðanáttinni með þessum fallegu vorvísum. Höfundur er Ingólfur Ómar. Veitir yndi vorsól blíð vermir tind og hjalla. Gróa rindar grænkar hlíð glitra lindir fjalla. Foldin angar allt er hljótt út um nes og tanga. Sjávarbáran blítt og rótt blundar lygn við dranga. Vekur þrá og vermir brá vori dável unni. Sólin háa sindrar á sævarbláum grunni. Lífið iðar grasið grær glóbjart sviðið ljómar Lindin niðar lygn og tær lóukliður ómar. Hlýtur að bregða til betri tíðar þegar þessar vísur birtast. Það mun vera Vilhjálmur frá Skálholti sem er höfundur að þessari. Sértu göfga gæddur þeim að gleðja hrakta, smáða. Þú munt för í himin heim hafa rósum stráða. Frekar erfitt að trúa að Bjarni frá Gröf hafi meint mikið með því sem hann heldur fram í næstu vísu. Best er að vera bráður í raun og býta illt við marga. Véla af öðrum verkalaun og voluðum lítið bjarga. Man því miður ekki hver sá hagyrðingur var sem hlustaði á sér yngra fólk ráð um skáldskap. Þjóðin fílar fögur kvæði og fagnar stökum vísnaþáttar. Finnst þær raunar algjört æði og ógeðslega meiriháttar. Það er Anna Árnadóttir sem er höfundur að næstu vísu. Um hin merku aldahvörf ættu menn að doka við og huga að því sem helst er þörf til hagsbóta fyrir mannkynið. Önnur vísa kemur hér eftir Önnu. Hlustum á veröld vorsins óma vaxandi kveða sumarlag. Horfum á minnsta brumið blóma bjóða fagnandi góðan dag. Minnir endilega að þessi kunna vísa sé eftir Sveinbjörn áður allsherjargoða. Heimsins vegur hulinn er huga manns og vilja, Vísnaþáttur 640 enginn þarf að ætla sér örlög sín að skilja. Halldóra systir Sveinbjörns gerði svo vel eitt sinn að yrkja þessa kunnu vísu. Þegar örmum vetur vefur visna björk í skógarþröng, þrái ég vorsins þýðu óma þyt í laufi og fuglasöng. Þar sem nú stefnir í illskeyttar vinnudeilur og hörmuleg verkföll, er kannski við hæfi að rifja næst upp vísu sem tengist slíkum vettvangi. Það mun hafa verið á fundi hjá sáttasemjara sem fulltrúi rafiðnaðarsambandsins rauk á dyr og skellti hurðum svo harkalega að dyrabúnaðurinn brast í þá til nýlegu húsnæði sáttasemjara. Af því tilefni orti Hreiðar Karlsson, áður kaupfélagsstjóri á Húsavík, svo. Áheitalegur sem aldrei fyr atvinnurekendahrellir. Hvatlega gengur um gáttir og dyr, Guðmundur hurðaskellir. Einhverju sinni, eins og oft áður, var deilt um gagnagrunninn sem Kári Stefáns er að sýsla með. Kom fram á sjónarsviðið Valdimar mannkynsfrelsari og bauðst til að innheimta gjald fyrir upplýsingar hvers og eins. Eftir að hafa heyrt um þessi kostaboð orti Hreiðar. Upp er komið örðugt vandamál orðið brýnt að fá hið rétta svar. Hvort það muni betra að selja sál sína Kára eða Valdimar. Nú í vetur hafa verið uppi talsverðar umræður um að sala áfengis í búðum yrði gefin frjáls. Ekki er mjög langt síðan að svipuð umræða fór fram án þess að nokkur niðurstaða fengist. Um svipað leyti var næsta vísa ort en því miður man ég ekki hver er höfundur hennar. Við innganginn er áma stór, áfengt vínið bullar. Í kæliborði kaldur bjór og kassadömur fullar. Ágæt er þessi vísa eftir Stephan G. Víst er gott að vera hjá vinasveit og grönnum. Og kunna réttar áttir á allri byggð og mönnum. Kannski er í lokin á þessum þætti ástæða til að ítreka það sem var í upphafi sagt um sól og vor. Vonum að það verði að áhrínsorðum um sumarsælu að enda með þessari ágætu vísur Ingólfs Ómars. Veröld ljómar drungi dvín daga rómum langa. Söngvar ómar sólin skín sumarblómin anga. Verið þar með sæl að sinni. / Guðmundur Valtýsson Eiríksstöðum, 541 Blönduósi Sími 452 7154 ( GUÐMUNDUR VALTÝSSON ) kristin@feykir.is Matthildur Birgisdóttir hjúkrunarfræðinguar á HSN Blönduósi skrifar Heilsueflandi samfélag ÁSKORENDAPENNINN UMSJÓN kristin@feykir.is Þar sem að lífsgæða- kapphlaupið er svo mikið að það virðist vera farið að ógna heilsu okkar á einn eða annan hátt, ætla ég í framhaldi af skrifum Önnu Maríu, sem ég þakka þessa skemmtilegu áskorun, að stikla á stóru um heilsu og forvarnir. En þar sem ég á það til að vaða úr einu í annað er ekki ólíklegt að ég verði farin að tala um eitthvað allt annað í lokin. Öll þurfum við að huga að heilsu okkar á einn eða annan hátt. Það getur þó verið þrautinni þyngra að koma sér í það litla verk. Ég meina, hver man ekki eftir því að fara með bílinn sinn í skoðun? Nú, enginn. Fyrst fáum við senda viðvörun að nú sé kominn tími til að fara með djásnið í hina árlegu skoðun og ef ekki er okkur send væn rukkun inn um lúguna. Hvetjandi, ekki satt? Bíllinn að verða bensín- eða olíulaus. Hvað gerum við? Við komumst ekki langt á tómum tanknum. Hver hnippir í okkur þegar kemur að því að huga að eigin heilsu og líkama? Sendir rukkun þegar við erum farin að ganga á síðustu dropa tanksins. Enginn. Það er eitthvað sem að við þurfum að sjá um sjálf. Því tel ég að forvarnir og fræðsla séu eitthvað sem að þarf að efla í náinni framtíð. Þverfaglegur hópur fólks á Blönduósi tók sig saman um daginn og hélt heilsueflandi viku fyrir samfélgið. Meðal annars var frítt í alla tíma á vegum íþróttahússins, frítt í Metabolic og sund. Í lok vikunnar voru bæjarbúar hvattir til að koma í heilsufarsmælingar á borð við blóðþrýstingsmælingu, blóðsykursmælingu og blóðfitumælingu sér að kostnaðarlausu. Það var frábært að sjá hversu margir tóku þátt, hversu margir fóru með „djásnið“ í skoðun. Ég skora á fleiri bæjarfélög að gera slíkt hið sama. - - - - - Ég skora á Róbert Daníel Jónsson, forstöðumann Íþróttamiðstöðvar Blönduóss. Matthildur er til vinstri á myndinni. Góð skemmtun Frumsýning Barið í brestina Leikfélag Sauðárkróks frumsýndi gamanleik- inn Barið í brestina 26. apríl sl. eftir Guðmund Ólafsson. Sýning fór fram með glæsibrag, gestir skemmtu sér vel og mátti heyra hlátraskellina óma um salinn frá upphafi til enda. Mikil eftirvænting var í Bifröst, bæði á meðal leikenda baksviðs og sýningargesta í salnum þegar kom að stóru stundinni. Leikarar sýndu flotta takta á sviðinu. Kristján Örn Kristjánsson var einstaklega skemmtileg- ur í hlutverki Þangbrands kokks, Gísli Þór Ólafsson fór á kostum í hlutverki velferðarráðherra, Guð- brandur J. Guðbrandsson sem Guðgeir, Anna Rún Austmar sem Natasja læknir, svo maður nefni nokkra, en allir stóðu þeir sig með prýði. Góð skemmtun sem óhætt er að mæla með. Sýningarnar eru tíu talsins, fram að 10. maí. Miðasala er síma 849 9434. /BÞ

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.