Feykir - 30.04.2015, Blaðsíða 2
2 16/2015
Líkt og gengur og gerist á maður ekki samleið með öllu
fólki og það getur jafnvel gerst að maður eigi enga samleið
með tækjum. Ég og fjölskyldubíllinn erum nærtækt dæmi.
Bíllinn á það til að bila, eða vera með einhverskonar vesen,
á óheppilegustu tímum og
eiginlega alltaf gerist það
þegar annað hvort ég eða
maðurinn minn bregðum
okkur út fyrir bæjarmörkin,
þá í sitthvoru lagi, og þá
eingöngu ef ég er á bílnum.
Fyrir nokkru fór karlinn til
Akureyrar, úti var gullfallegt
vorveður, blankalogn og sól.
Ég sótti börnin í leikskólann
og fór að Vesturós Héraðs-
vatnanna til að viðra hundinn í veðurblíðunni. Þar áttum við
fullkomna stund í um það bil tvær mínútur, eða þar til
syninum (4 ára) varð afskaplega mál og yngstu dótturinni (1
árs) tókst að rennbleyta sig. Smala þurfti liðinu aftur í bílinn.
Á heimleiðinni fékk ég þá frábæru hugmynd að við gætum
kannski komið við í lúgunni í Ábæ og keypt okkur ís svona í
sárabætur, sem við og gerðum. Þarna, á besta tíma með bert
og bleyjulaust barn vafið í teppi, annað í spreng og bráðnandi
ís í farþegasætinu, ákvað bölvaður bíllinn að fara ekki í gang
sama hvað ég reyndi. Ég byrjaði að bölva skrjóðnum og
syninum var alveg hætt að lítast á blikuna. Eftir drjúglanga
stund í viðureign við bílinn var lokaúrræðinu að síðustu beitt.
Það var að strjúka stýrinu undurblítt og biðja hann fallega um
að fara í gang – og viti menn, það virkaði, sjálfri mér til
ómældrar gleði og syninum til mikillar undrunar, sem hefur
síðan verið alveg sannfærður um mátt góðra mannasiða og
kurteisi.
Nú síðast ákvað bílskrattinn hins vegar að læsast þegar ég
fór út úr honum og skildi lykilinn eftir í svissinum. Ég reyndi
ítrekað að opna hverja hurð en ekkert gekk, hann var
harðlæstur. Karlinn var þá fjarri góðu gamni, þetta var seint
um nótt, en mér tókst að fá far heim. Næsta dag þegar hann
fór að vitja bílsins þá opnaðist ein hurðin – fyrir hann.
Átta ára dóttur minni fannst síðustu ófarir mínar í
viðureigninni við bílinn býsna hlægilegar og fannst mikið til
í þessu hjá mér. „Mamma, bíllinn elskar mig og pabba en
hatar þig og Matthías,“ sagði hún hlægjandi. Þá var hún
annars vegar að vísa til atviks þegar sonurinn lokaði á puttann
á sér og bílhurðin læstist svo hann sat fastur með puttann í
falsinu og hins vegar þegar bíllinn læstist einu sinni með
drenginn inni í honum þegar hann var tveggja ára. Kalla
þurfti til lögregluna og lásasmið og úr varð mikið fár.
Ég bað dótturina ekkert að vera að minnast á þetta við
bróður sinn, óvíst væri hvernig hann tæki í þessar stað-
hæfingar systur sinnar að fjölskyldubílnum væri í nöp við
hann og mömmu hans.
Eftir að hafa komið þessu á blað held ég að það sé kominn
tími á bílakaup.
Berglind Þorsteinsdóttir, ritstjóri
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Berglind Þorsteinsdóttir – berglind@feykir.is & 455 7176, 694 9199
Blaðamenn:
Kristín Sigurrós Einarsdóttir – kristin@feykir.is & 867 3164
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is Þóra Kristín Þórarinsdóttir – thora@nyprent.is
Áskriftarverð: 530 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 650 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
LEIÐARI
Duttlungar í dauðum hlutum Telja endalok sparisjóðakerfisins blasa við
Stofnfjáreigendur í Sparisjóði Skagafjarðar ósáttir með þróun mála
Stofnfjáreigendur í Afli
sparisjóði, sem varð til við
sameiningu Sparisjóðs
Siglufjarðar og Sparisjóðs
Skagafjarðar árið 2008, sátu
fund þann 17. apríl. Á honum
voru samþykktar breytingar á
samþykktum sjóðsins á þann
veg að atkvæðaréttur er nú í
hlutfalli við stofnfjár-eign.
Þýðir þetta m.a. að
sparisjóðurinn verður settur í
opið söluferli.
Þar með hefur Arionbanki,
sem í dag fer með stærstan hluta
stofnfjár í Afl sparisjóði, eða
rúm 99%, og fer með eignarhald
á hinum sameinaða sjóði
Sparisjóðs Siglufjarðar og
Sparisjóðs Skagafjarðar, náð
yfirráðum í sjóðnum og hefur
nú fimm fulltrúa í stjórn.
Gísli Árnason á Sauðárkróki
er einn af stofnfjáreigendum í
Afli. Hann sagði í samtali við
Feyki að í sínum huga þýddi
þetta að sparisjóðskerfið myndi
líða undir lok innan árs eða svo.
Undanfarin ár hefði ekki verið
pólitískur vilji til að verja þetta
kerfi. Gísli mætti ásamt nokkr-
um einstaklingum í Skagafirði
sem eiga stofnfé í sjóðnum á
fundinn á Siglufirði. „Við vissum
svo sem að við áttum enga
möguleika, það var búið að
ganga þannig frá málum,“ sagði
hann.
Verið að keyra
sjóðinn í þrot
Gísli nefnir einkum að þannig
hafi verið búið um hnútana að
afskriftir sjóðsins væru hærri en
árið á undan. „Það er verið að
keyra sjóðinn í þrot og undirbúa
yfirtöku Arionbanka á honum,
það hugnast okkur ekki, enda
teljum við okkar hagsmuni
algjörlega borna fyrir borð,“
segir Gísli og mælir þar fyrir
munn áðurnefndra einstaklinga
sem eiga stofnfé í sjóðnum. Gísli
bætir því við að umræddir
stofnfjáreigendur, sem með
þessari breytingu fari með innan
við eitt prósent í sjóðnum, hafi
lagt fram bókanir á fundinum
og efist raunar um lögmæti
fundarins. Fundargerðin var
ekki aðgengileg þegar Feykir
ræddi við Gísla, en hún mun
berast blaðinu þegar þar að
kemur.
Niðurstaða rekstrarreikn-
ings árið 2014 sýndi tap að
fjárhæð 189 milljónir króna.
Munar þar mestu um aukna
virðisrýrnum útlána sem
fjórfaldast rúmlega frá árinu
áður og er metin á 454 milljónir
króna í árslok 2014 á móti 104
milljónum í árslok 2013. Þetta
telur Gísli óraunhæft í ljósi þess
að ekkert í rekstri sjóðsins,
útlánum eða skuldbindingum
hans var með öðrum hætti en
fyrra ár. /KSE
Dagana 19. - 25. apríl var 51 tonni landað á Skagaströnd, 12 tonnum á Hofsósi og tæpum 275
tonnum á Sauðárkróki. Alls gera þetta ríflega 330 tonn á Norðurlandi vestra. Engu var landað
á Hvammstanga. Þegar Feykir hafði samband við Skagafjarðarhafnir sl. mánudag voru öll skip
í landi og „skítabræla,“ eins og hafnarvörður komst að orði. /KSE
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
Hofsós
Skáley SK 32 Grásleppunet 6.389
Sæborg EA 125 Grásleppunet 2.279
Þorgrímur SK 27 Grásleppunet 3.598
Alls á Hofsósi 12.266
Sauðárkrókur
Bryndís SK 8 Grásleppunet 1.570
Fannar SK 11 Grásleppunet 3.102
Farsæll SH 30 Rækjuvarpa 136.488
Gammur II SK 12 Gráslepputnet 1.650
Gammur SK 12 Grásleppunet 934
Hafborg SK 54 Grásleppunet 1089
Hafey SK 10 Grásleppunet 2.283
Heiðrún SH 198 Grásleppunet 4.182
Klakkur Sk 5 Botnvarpa 78.559
Málmey SK 1 Botnvarpa 136.488
Már SK 90 Grásleppunet 3.439
Nona SK 141 Grásleppunet 2.764
Röst SK 17 Rækjuvarpa 12.475
Steini G SK 14 Grásleppunet 851
Vinur SK 22 Grásleppunet 1.254
Þytur SK 18 Grásleppunet 1.702
Alls á Sauðárkróki 274.819
Skagaströnd
Addi afi GK 97 Grásleppunet 2.480
Auður SH 94 Grásleppunet 1.680
Bergur Sterki HU 17 Grásleppunet 3.602
Bogga í Vik HU 6 Grásleppunet 379
Daðey GK 777 Grásleppunet 6.274
Dagrún HU 121 Grásleppunet 4.529
Diddi GK 56 Grásleppunet 641
Hjördís HU 16 Grásleppunet 1.078
Húni Hu 62 Grásleppunet 239
Signý HU 13 Grásleppunet 803
Sæfari HU 200 Gráskeppunet 2.304
Sæunn HU 30 Handfæri 330
Vestri BA 63 Rækjuvarpa 26.974
Alls á Skagaströnd 51.313
Aflatölur vikuna 19.–25. apríl
Öll skip í landi og skítabræla á mánudaginn var
Ferð um fallega og blómlega sveit
Þann 12. apríl lögðum við í
Félagi sauðfjárbænda í
Skagafirði í ferðalag og
heimsóttum starfsbræður
okkar í Vestur-Húnavatnssýslu.
Ferðinni var seinkað um einn
dag vegna veðurs.
Ragnheiður í Brautarholti fræddi
okkur um sínar æskuslóðir. Við
komum við á fjórum fjárbúum:
Mýrum II, Urriðaá, Sauðadalsá
og Böðvarshólum. Allstaðar
fyrirmyndar bú, þar sem gaman
var að fræðast og skoða. Einnig
var gaman og fræðandi að koma
við á Súluvöllum og sjá smala-
hunda þeirra hjóna vinna. Í lok
dagsins var snæddur afbragðs
góður matur á Dæli í Víðidal.
Indriði frá Álfgeirsvöllum keyrði
okkur þennan bjarta vetradag
um fallega og blómlega sveit, þar
sem fólk býr greinilega af krafti.
Við þökkum kærlega fyrir okkur.
Merete Rabølle
formaður Félags sauðfjárbænda
í Skagafirði
AÐSENT MERETE RABØLLE SKRIFAR