Feykir - 11.06.2015, Page 2
2 22/2015
Mig langar aðeins að leggja orð í belg í umræðunni um
femínisma sem hefur farið af stað síðustu daga og einkennst
hefur af alhæfingum og sleggju-
dómum, líkt og svo oft áður. Er
Hildur Lilliendahl Viggósdóttir
talsmaður allra femínista? Svarið
við því er einfaldlega nei. Ekki
frekar en ég.
Ef um væri að ræða skipulögð
samtök væri skiljanlegra að taka orð
þeirra sem tala í nafni samtakanna
sem lýsandi fyrir hugmyndir þeirra
sem samtökunum tilheyra, en
femínismi er ekki flokkur, samtök
eða samband heldur hugmyndafræði
eða lífsskoðun og viðhorf til sam-
félagsins sem fólk tileinkar sér. Sumir hafa gengið svo langt síðustu
daga að sverja það opinberlega af sér að vera femínistar, líkt og Ólöf
Skaftadóttir gerði með aðsendri grein á Vísi.is. Ástæða þess var að
henni líkaði ekki (sjálfsagt ítrekuð) ummæli fyrrnefndrar Hildar
(og fleiri kynsystra sem kalla mætti róttæka femínista) við hin
ýmsu tilefni, nú síðast í garð sjómanna á hátíðardegi þeirra. En
eins fráleitt og það er að setja alla sjómenn undir sama
ofbeldishattinn þá er það jafn fráleitt að ætla að allir sem tileinka
sér femíniska hugsun séu hvatvísar bullukollur eins og Hildur
eiga það til að vera. Það að áætla að femínismi rísi og falli með
einni manneskju er fjarstæða. Femínismi er jafnréttishugsun,
hugsuð út frá konunni, og er hugmyndafræði sem nær langt út
fyrir stað og stund, á Íslandi í dag.
Þessi jafnréttishugsjón á sér raunar djúpar rætur hér á landi og
Íslendingar hafa á margan hátt verið í fararbroddi hvað varðar
réttindi kvenna, þátttöku í atvinnulífi og stjórnmálum og setu í
æðstu embættum ríkisins, þótt ýmislegt megi enn betur fara. En úr
því að ummæli Hildar sem hrintu þessari umræðu af stað snérust
um sjómenn þá er gaman að geta bent á nýopnaða sýningu í
Sjóminjasafninu í Reykjavík þar sem fjallað er um konur og
sjósjókn. Því konur hafa verið og eru líka sjómenn. Þekktust
íslenskra sjókvenna er líklega Þuríður formaður en þær voru og
eru mun fleiri sem sótt hafa sjóinn. Í umfjöllun um sýninguna
kemur m.a. fram að á 17. og 18. öld var um þriðjungur sjómanna
á Vestfjörðum konur og á 20. öld allt að 10% íslenska flotans. Um
viðhorf til starfa þeirra vitna m.a. lög frá síðari hluta 18. aldar þar
sem kveðið er á um að konur skuli hljóta jöfn laun á við karla
fyrir slátt, sjóróðra og önnur „karlmannsverk“. Lög af þessu tagi
eru án efa einsdæmi frá þessum tíma og hvað sem við viljum
kalla okkur, femínista eða jafnréttissinna, þá er þetta saga sem við
Íslendingar getum verið stolt af.
Berglind Þorsteinsdóttir, ritstjóri
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Berglind Þorsteinsdóttir – berglind@feykir.is & 455 7176, 694 9199
Blaðamenn:
Kristín Sigurrós Einarsdóttir – kristin@feykir.is & 867 3164
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is Þóra Kristín Þórarinsdóttir – thora@nyprent.is
Áskriftarverð: 530 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 650 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
LEIÐARI
Femínismi og sjómennska
Fögnuður við sundlaugina
Lagður af stað í Umhyggjugöngu
Engin útköll vegna stormsins
Suðvestanhvassviðri gekk yfir landið á mánudaginn
Suðvestan veður gekk yfir
landið á mánudaginn með
hörðum vindhnútum á
Norðurlandi vestra, einkum í
Skagafirði.
Einna verst var veðrið uppúr
kvöldmat og fór til að mynda í
26 metra á sekúndu á Bergs-
stöðum kl. 21 um kvöldið. Við
Stafá mældist vindhraði á sama
tíma 23 m/s en þar fóru vind-
kviður upp í 41 m/s. Þá mældist
vindhraði á Vatnsskarði 21 m/s
en 32 m/s í vindkviðum.
Samkvæmt upplýsingum frá
björgunarsveitum bárust þeim
ekki útköll vegna stormsins. /BÞ
Sameining
setra þjónar
ekki tilgangi
Blönduós
Verkefnisstjórn um könnun
á hagkvæmni og ávinningi
þess að sameina náttúru-
sýningar Hafíssetursins og
Laxasetursins í eitt húsnæði
hefur skilað af sér loka-
skýrslu. Niðurstaða
verkefnisstjórnarinnar er sú
að það þjóni ekki tilgangi
að sameina þessi tvö setur.
Skýrslan var lögð fram á
fundi byggðarráðs Blönduós-
bæjar í síðustu viku. Helstu
rök fyrir niðurstöðu verk-
efnastjórnarinnar eru eftir-
farandi: Sýning Hafísseturs-
ins er næstum öll á íslensku
og að mestu leyti lesmál á
spjöldum. Hönnun og stand-
setning hugsanlegs viðbótar-
húsnæðis er of kostnaðar-
söm. Endurnýjun sýningar
Hafísseturs frá grunni er
mjög kostnaðarsöm.
Sýningar Hafísseturs og
Laxaseturs hafa báðar skýra
náttúrutengingu en eiga að
öðru leyti ekki margt sam-
eiginlegt. Í verkefnastjórn-
inni voru Arnar Þór Sævars-
son, fyrir hönd Blönduós-
bæjar, Jón A. Snæbjörnsson,
fyrir hönd Laxasetursins,
Katharina Schneider, fyrir
hönd Þekkingarsetursins og
Ingibergur Guðmundsson.
Verkefnið fékk styrk frá
Vaxtarsamningi síðastliðinn
vetur. /KSE
Breytingar á
aðalskipulagi
2009 – 2021
Svf. Skagafjörður
Tvær tillögur að breytingu á
Aðalskipulagi Sveitarfélags-
ins Skagafjarðar 2009-2021
voru samþykktar á fundi
sveitastjórnar þann 13. maí
síðastliðin. Það eru
Gönguskarðsárvirkjun,
aðrennslisgöng og nýtt
stöðvarhús og Deplar í
Austur-Fljótum, landbúnað-
arsvæði verður verslunar- og
þjónustusvæði. Þetta kemur
fram á heimasíðu
sveitarfélagsins.
Ef óskað er eftir frekari
upplýsingum er fólki bent á
að hafa samband við Jón Örn
Berndsen byggingarfulltrúa
sveitarfélagsins. /KSE
Styrkur til Söguseturs
íslenska hestsins
Sveitarfélagið Skagafjörður
Á fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar
sveitarfélagsins Skagafjarðar sl. þriðjudag var samþykkt að
styrkja starfsemi Söguseturs íslenska hestsins um sem nemur
áætlaðri hlutdeild í launakostnaði frá 1. júní til ágústloka, eða
um 800.000 kr.
Nefndin harmaði jafnframt
að ekki hefði fengist styrkur til
starfsemi Sögusetursins hestsins
frá mennta- og menningarmála-
ráðuneytinu undanfarin tvö ár
og leggur til að ný stjórn setursins
taki upp viðræður við ráðuneytið
að nýju um þau mál.
Á sama fundi var tekið fyrir
erindi frá Sigríði Sigurðardóttir
þar sem hún baðst lausnar sem
fulltrúi Sveitarfélagsins Skaga-
fjarðar í stjórn Söguseturs
íslenska hestsins ses. Samþykkt
var að leggja til að Gunnsteinn
Björnsson taki sæti aðalmanns í
stjórn setursins og Sólborg Una
Pálsdóttir sæti varamanns. /KSE
Sigvaldi Arnar Lárusson,
lögreglumaður á Suður-
nesjum, lagði af stað í
Umhyggjugöngu sl. föstudag
frá Keflavík. Ef áætlanir
ganga eftir er hann væntan-
legur til Sauðárkróks á
morgun, föstudagskvöld og
endar gangan á Hofsósi
laugardaginn 13. júní, þar
sem vel verður tekið á móti
honum.
Kveikjan að Umhyggjugöng-
unni var þegar Sigvaldi gerðist
kokhraustur og spáði því að
Gylfi Sigurðsson yrði kjörinn
íþróttamaður ársins 2014. „Hafi
ég rangt fyrir mér skal ég hlaupa/
ganga til Hofsós næsta sumar,“
sagði Sigvaldi á fésbókinni
skömmu fyrir kjörið og stendur
hann nú við stóru orðin. Allur
ágóðinn rennur óskiptur til
Umhyggju, félags til stuðnings
langveikum börnum.
„Við ætlum að vera við
sundlaugina, grilla pylsur og
vonandi skella okkur í sund,“
segir Sveinn Einarsson, einn
forsprakki móttökunnar, en
Björgunarsveitin Grettir og
Ungmennafélagið Neisti hafa
tekið framkvæmdina upp á sína
arma. „Við vonumst til þess að
sem flestir komi og taki vel á
móti honum með okkur og geri
sér glaðan dag,“ sagði Sveinn í
samtali við Feyki. Hægt er að
fylgjast með Sigvalda á Um-
hyggjugöngunni á Facebook. /BÞ
Skrifum á sögu Kvenna-
skólans miðar vel áfram
Aðalfundur Vina Kvennaskólans
Vinir Kvennaskólans á
Blönduósi héldu aðalfund
sinn þann 4. júní. Kynnt var
skýrsla stjórnar, fjallað um
skrif á sögu skólans og fjallað
um ýmsa þætti sem snúa að
menntun, heimilum, umhverfi
og næringu, en sagt er frá
fundinum á fésbókarsíðu
samtakanna.
Aðalbjörg Ingvarsdóttir for-
maður kynnti skýrslu stjórnar,
en þar var farið yfir það helsta í
starfi samtakanna. Meðal þess
sem hún nefndi var að nokkuð
miðar áfram við skrif á sögu
Kvennaskólans á Blönduósi og
var á fundinum ákveðið að
úthluta 500.000 krónum til að
halda því góða verki áfram.
Rekstur samtakanna gengur vel
enda njóta þau velvildar fyrrum
nemenda við skólann auk ann-
arra stuðningsaðila.
Kristín Sigfúsdóttir, sem er
kennari að mennt, var gestur
fundarins og fjallaði hún á
lifandi hátt um ýmsa þætti sem
snúa að menntun, heimilum,
umhverfi okkar og næringu.
Náði hún að fanga athygli þeirra
rúmlega 20 fundargesta sem á
hana hlýddu. Allir þeir sem
áhuga hafa á að gerast Vinir
Kvennaskólans geta haft sam-
band við Aðalbjörgu formann til
að skrá sig. /KSE
Sigvaldi og fjölskyldan. MYND: FB