Feykir - 20.08.2015, Qupperneq 11
31/2015 11
Hundakeppni og leitin að
stærsta rabbarabaraleggnum
SveitaSæla 2015 um helgina
Landbúnaðarsýningin
SveitaSæla verður haldin í
Skagafirði um næstu helgi.
Að sögn Steinunnar
Gunnsteinsdóttur, verk-
efnastjóra sem sér um
sýninguna í ár, er Sveita-
Sæla að vaxa og þróast og
alltaf eitthvað nýtt af
nálinni á hverju ári. Opið
verður í Reiðhöllinni
Svaðastöðum frá klukkan
10 til 17:30 á laugar-
daginn, en Sigurður Ingi
Jóhannsson, sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra,
mun setja SveitaSælu
formlega klukkan ellefu
um morguninn.
Steinunn er menntuð sem
ferðamálafræðingur frá Hólum,
þar sem viðburðastjórnun er
hluti af náminu. Hún segir
forsvarsmenn Flugu, sem rekur
UMFJÖLLUN
Kristín Sigurrós Einarsdóttir
Reiðhöllina Svaðastaði, hafa
vitað af sér og því fengið sig til að
sjá um SveitaSæluna þetta árið.
Hún segir verkefnið skemmtilegt
og undirbúning hafa gengið vel.
SveitaSæla er samstarfsverkefni
Búgreinafélagana í Skagafirði,
Búnaðarsambands Skagfirðinga,
Flugu hf. og sveitarfélagsins
Skagafjarðar. „Þetta er uppskeru-
hátíð bænda þar sem að allar
búgreinar koma saman. Við
fáum umboðsaðila með varning
tengdan landbúnaði til að kynna
og selja sínar vörur. Við leggjum
einnig áherslu á að fá sem flestar
greinar landbúnaðar til þess að
hafa varning sinn til sýnis. Allt
frá stórtækum vinnuvélum til
Landbúnaðarháskólans á
Hvanneyri og Gestastofu sútar-
ans,“ segir Steinunn.
„Einnig eru ýmsar sýningar
sem eru þarna upp á skemmt-
anagildið, til dæmis kálfasýn-
ingin þar sem börn koma með
kálfana sína og sýna þá. Í ár
ætlum við til dæmis að vera
með hundasýningu og kjósa
sveitasælurakka/sveitasælutík
2015. Jafnframt verður sam-
keppnin um stærsta rabbarbara-
legginn og ætla húsmæður í
Skagafirði að skunda á sýn-
inguna með rabbarbarann sinn,“
segir Steinunn.
Þá má nefna að á sýningunni
er handverksmarkaður, húsdýra-
garður og fleira. Aðgangur er
ókeypis og veitingasala er á
staðnum. Það eiga því allir að
geta fundið eitthvað við sitt hæfi
á sýningunni, hvort sem þeir
stunda landbúnað eða ekki. Á
sunnudaginn verða svo opin bú
víðs vegar um Skagafjörð þar
sem bændur í ýmsum búgrein-
um bjóða heim. Það er því
tilvalið að taka sunnudagsrúnt
og kíkja heim á sveitabæina.
Uppskeruhátíð
fyrir alla
Steinunn segir helstu nýjung-
arnar í ár vera hundasýninguna
og rabbarbarakeppnina, auk
þess sem fleiri aðilar hafi bæst
við sem sýningaraðilar. Þá verði
menntun í landbúnaði gerð
sérstök skil þetta árið og nú
verði Landbúnaðarháskólinn á
Hvanneyri með í fyrsta sinn.
„Það er ákveðinn grunnur sem
er alltaf með og nú hafa bæst við
nýir aðilar. Við reynum alltaf að
finna einhverjar nýjar hliðar.
Þetta er ákveðin veisla fyrir
sýningaraðilana líka,“ segir
Steinunn.
SveitaSæla hefur verið mjög
vel sótt til þessa. Steinunn á von á
því að í ár verði engin undan-
tekning þar á. „Við erum að
kynna þetta fyrir ferðaskrif-
stofunum og markaðsstofunum.
Þetta er tilvalið stopp fyrir hópa
og ferðafólk, að koma og kynna
sér íslenskan landbúnað,“ sagði
Steinunn að lokum.
„Samþykkjum
aldrei loftlínu“
Opinn fundur í Varmahlíð um Blöndulínu 3
Á opnum fundi um Blöndulínu 3, sem
haldinn var í Varmahlíð á sunnudag-
inn, kom skýrt fram að landeigendur
myndu aldrei samþykkja lagningu
loftlína um lönd sín. „Upplýsingar
sem fram komu á fundinum sýndu
fram á að Landsnet hefur ítrekað
beitt blekkingum í samskiptum
sínum við landeigendur og fjölmiðla,“
segir í fréttatilkynningu frá
fundinum.
Um 40 til 50 manns, landeigendur og
íbúar á svæðinu, sóttu fundinn, að sögn
Helgu Rósar Indriðadóttur, eins af
skipuleggjendum hans. Hún segir
fundinn hafa verið mjög upplýsandi, en
á honum fór Hrafnhildur Brynjólfsdóttir
skipulagsfræðingur yfir ferlið; hvernig
skipulagsmálin gengju fyrir sig og hvað
væri hægt að gera eins og málin standa.
Einnig flutti Karl Ingólfsson erindi um
rafmagnsnotkun og hvernig flutnings-
kerfið virkaði, ekki síst hvers vegna
leggja á þessa nýju línu sem er eingöngu
er stóriðjulína.
Helga Rós sagði tilgang fundarins
einkum að reyna að upplýsa fólk um hið
rétta. „Þeir berja höfðinu við steininn hjá
Landsneti. Þeir eru vissulega að vinna
eftir lögum, að gera þetta sem hagkvæm-
ast, en þeir hafa aldrei viljað bera þetta
saman við þann möguleika að leggja
línuna jörð, eins og verið er að gera víða
í löndunum í kringum okkur. Kostn-
aðarmunurinn er ekki eins mikill og þeir
hafa haldið fram,“ sagði Helga Rós.
Samkvæmt nýrri kerfisáætlun Lands-
nets stendur til að fara svokallaða
Efribyggðarleið með Blöndulínu 3. „Það
voru tveir valkostir í stöðunni þegar
áform um línuna voru fyrst kynnt og
fram til 2014 en sveitarfélagið hafði ekki
tekið afstöðu til þeirra,“ segir Helga Rós.
„En núna hefur skipulagsvaldið verið
afnumið af sveitarfélögunum með
nýjum raforkulögum frá í maí og
Landsnet skellir þessu inn.“ Línan myndi
samkvæmt kerfisáætluninni liggja frá
Kirkjuhóli við Vatnskarð, fyrir ofan
bæina á Efribyggð, þvert fyrir Mæli-
fellshnjúk og síðan neðan við
Hamraheiði rétt hjá bænum á Starra-
stöðum, áfram austur yfir eggjarnar og
yfir í Flatatungu og þar áfram inn í
Öxnadalsheiðina, samhliða gömlu
Rangárvallalínunni.
Fundarmenn voru sammála um að
næsta skref væri að óska eftir fundi með
sveitarstjórn til að fara yfir málið. Þá vilja
aðstandendur fundarins benda á að
frestur til að skila athugasemdum við
tillöguna sé til 1. september og vilja
hvetja fólk til að nýta sér hann. Helga Rós
segir slíkar athugasemdir ekki þurfa að
vera mjög formlegar eða flóknar en það
sé um að gera að sem flestir láti í sér
heyra. „Við hvetjum alla til að kynna sér
þetta og láta í sér heyra,“ sagði hún að
lokum. /KSE
Inn á fundinn barst eftirfarandi ályktun frá hópi landeigenda á Blöndulínu 3:
„Samþykkjum aldrei loftlínu!
Landeigendur á línuleið Blöndulínu 3 ítreka enn og aftur að þeir munu aldrei samþykkja
lagningu loftlínu um lönd sín.
Við hvetjum landsmenn til að mótmæla tillögu að kerfisáætlun Landsnets sem gerir ráð
fyrir stóriðjulínum frá Blönduvirkjun í vestri um Akureyri til Fljótsdals sem og yfir Sprengisand,
þvert á langtímahagsmuni ferðaþjónustu og matvælaframleiðenda.
Í byrjun júní samþykkti Alþingi að breyta raforkulögum þannig að skipulagsvald var tekið
af sveitarfélögum. Landeigendur skora á alþingsmenn að leiðrétta mistök sín svo að
sveitarfélögin endurheimti skipulagsvaldið frá Landsneti sem nú vinnur, sem aldrei fyrr,
að undirbúningi stóriðjulína. Frá 2008 hefur ríkisfyrirtækið Landsnet ítrekað verið staðið að
ósannindum. Fyrirtækið heldur uppi áróðri, með aðstoð almannatengla, þar sem kostnaður
við lagningu jarðstrengja er ýktur, um leið og því er haldið fram að sjónræn áhrif loftlína
minnki með því einu að færa þær frá vegum landsins. Lausnin er lagning jarðstrengja.“
Frá opnum fundi um Blöndulínu 3 sem haldinn var á Hótel Varmahlíð síðastliðinn sunnudag.
MYND: BERGLIND INDRIÐADÓTTIR
Steinunn Gunnsteinsdóttir er verkefnastjóri SveitaSælunnar í ár.
MYND: ÚR EINKASAFNI