Feykir - 20.08.2015, Page 14
14 31/2015
Skagfirðingurinn María
Eymundsdóttir hefur komið
sér upp heldur óhefðbundn-
um búskap, allavega á Íslandi,
en hún stundar býflugna-
búskap. Áhugann á
búskapnum segir hún hafa
blundað hjá henni um
nokkurt skeið en í ár ákvað
hún að sigrast á óttanum við
þær röndóttu og koma sér upp
búi. Blaðamaður Feykis ræddi
við Maríu á meðan hún
hugaði að flugunum sínum.
María segist alltaf hafa
haft áhuga á hverskonar
heimaframleiðslu. Hún og
eiginmaður hennar, Pálmi
Jónsson, deila því áhugamáli
og segir hún framleiðsluna fara
vaxandi með hverju árinu sem
líður. Pálmi stundar bæði fisk-
og skotveiðar og eru hjónin
með hænur í garðinum sínum
á Sauðárkróki og rækta þar
jafnframt ýmiskonar grænmeti
og eru með gróðurhús. Þau fara
einnig í slátur- og bjúgnagerð
og útbúa gjarnan ost og
harðfisk. Pálmi hefur einnig
bruggað bjór eftir að María
gaf honum bjórnámskeið
í afmælisgjöf. „Við værum
rosa fín svona um 1900 – við
gerum þetta bara sjálf,“ segir
María og hlær. Þau fjárfestu
nýlega í landskika í Hellulandi
í Hegranesi, sem þau nefna
Hulduland. Þar geymir María
býflugurnar. „Þær fengu
aðsetur þar, fjarri byggð og
þar sem fólk þarf ekki að hafa
miklar áhyggjur af þeim,“ segir
María og brosir.
En hvernig kom það til að þú
ákvaðst að fara í býflugna-
búskap? „Mér hefur þótt þetta
spennandi sl. í fjögur ár en ég
hef alltaf verið ógurlega hrædd
við þær. Ég hef verið ein af
þeim sem eru hrædd við allt
röndótt, hvort sem það stingur
eða ekki. Og þegar ég hef séð
þær íslensku þá hef ég frosið
og hugsað með mér: „Fljúgðu
framhjá, fljúgðu framhjá,“ segir
hún og hlær. María bætir við að
hún hafi þó aldrei verið stungin
heldur hljóti sú hugsun, að
þetta séu stórhættuleg dýr, að
vera í undirmeðvitundinni.
„En mér fannst þetta spenn-
andi og hugsaði með mér: „Af
hverju ekki bara að láta slag
standa?“ Maður hefur kannski
gott af því að horfast í augu við
óttann. Síðan hafa strákarnir
mínir þrír allir verið stungnir
í gegnum tíðina og virtust ekki
finna mikið fyrir því – það
komu allavega engin tár. Þá
hugsaði ég með mér: „Jæja,
það er ekki heimsendir þótt ég
verði stungin.“ Við það urðu
smá þáttaskil.“
Til að geta keypt flugur
af Íslenska býflugnafélaginu
þurfti María að sækja námskeið
á vegum félagsins sem hófst
í janúar. Það var eina helgi í
mánuði, í fimm mánuði, og var
bók- og verklegt í bland og loks
tekið próf. „Námskeiðið var
mjög lærdómsríkt og er eitt af
kröfunum til að geta keypt af
þeim flugur. Til dæmis var sagt
frá því að þar sem býflugnabú
eru sést mikill munur á því
hvernig gróður eykst og allt
verður blómlegra. Einnig er
það áhyggjuefni hve býflugum
fer sífellt fækkandi í heiminum
en þær eru ótrúlega mikilvægar
í vistkerfinu. Ef það eru engar
býflugur þá eru engin blóm og
matjurtir,“ segir María.
Beitilyngshunangið
bragðgott
María fékk flugurnar til sín
í sumarbyrjun en býflugna-
pakkinn telur um 1,5 kg af
flugum, eða um 15 þúsund
stykki, og voru þær fluttar
inn frá Álandseyjum. María
hugar að flugunum einu sinni
í viku en á meðan búin eru
lítil er mikilvægt að gefa þeim
sykurvatn. „Þær eru ekki mikið
að fara út núna eins og sumarið
er búið að vera, þ.e. rigningar,
kalt og hvasst. Þá geta þær náð
sér í næringu í matardall með
sykurlegi. Síðan þarf að gefa
þeim frjódeig en án þess verpir
drottningin ekki,“ útskýrir
María. Aðspurð um hvernig
hún undirbúi sig fyrir að sinna
flugunum segir hún að sér þyki
betra að vera í búning þar sem
hún er ekki algerlega komin
yfir óttann að vera stungin.
„Það þarf að ósa sem felst í því
að setja reyk inn til þeirra. Þá
halda þær að það sé kominn
skógareldur og halda ró sinni
og hefja undirbúning fyrir það
að færa búið. En þær eru í raun
ótrúlega rólegar. Fyrst þegar
ég setti flugurnar í búið þá
enduðu tvær flugur inn á mér
sem var hræðileg tilhugsun.
Ég fékk nett panik inn í mér en
hélt samt ró minni útá við. En
þær stungu mig ekki, þær voru
bara á vappi í kósí göngutúr til
að ná sér í hita.“
María segir að meðalbúið
framleiði um tíu kíló af ósykur-
skagFIRÐINGAR!
til hamingju með sveitasælu 2015
Gylfaflöt 32 112 Reykjavík Sími 580 8200 www.velfang.is
Aðalgata 22 550 Sauðárkrókur
Sími 453 5136
www.olis.is
Skagfirðingabraut 21
550 Sauðárkrókur Sími 455 6000
www.skagafjordur.is
VIÐTAL
Berglind Þorsteinsddóttir
mettuðu hunangi. „Byrja
þarf að taka rammana sem er
búið að loka fyrir hunangið
en flugurnar gera það sjálfar.
Þær vinna það aðeins og láta
það þorna. Ákjósanlegt er að
gera þetta við 35°C hita, þá
er hunangið seigfljótandi og í
besta formi til þess að losa það
úr. Síðan þarf að nota sérstakan
gaffal til að pikka upp lokuðu
hólfin. Þegar það er búið er
hunangið sett í slengivél og
það slengt. Ef flugurnar eru í
landi þar sem er beitilyng, líkt
og mínar flugur, þá þarf að
nota gaddarúllu og rúlla yfir
til að losa um hunangið en
beitilyngs hunang er fastara
en annað hunang, en það er
mjög bragðgott. Þegar búið
er að slengja hunangið úr
römmunum er hægt að nota
rammana aftur næsta sumar.
Síðan þarf að sigta hunangið og
hræra í því einu sinni til tvisvar
á dag svo kristallamyndunin sé
sem jöfnust. Loks er hægt að
setja það í krukkur og fá sér
en strákunum mínum finnst
rosa gott að fá sér hunang út
á ís, pönnukökur eða jafnvel
eintómt.“
María segir flugurnar ekki
leggjast í dvala í vetur heldur
fara þær í svokallaðan klasa, þá
eru þær vakandi en með skerta
líkamsstarfsemi. Þá hópa þær
sig saman í bolta til að ná
upp sem mestum hita en með
þessari aðferð lifa þær veturinn
af. „Það er svo gaman að geta
gert þetta sjálf - það er bara
eitthvað við heimaframleiðslu.
Mér líður betur með að vita
hvað er í því sem við borðum.
Svo fæ ég líka hálfgert kikk út
úr því að geta farið út í garð og
náð mér í kál, kirsuber eða egg.
Ég fæ meira útúr því en að fara
bara út í búð og kippa í körfu,“
segir María að lokum.
Býflugnabúskapur í Skagafirði
Hunang í
heimaframleiðsluna