Feykir - 18.02.2016, Qupperneq 1
BLS. 6–7
BLS. 10
Guðrún Lára í Miðfirði er ein
af hinum aðfluttu
Varð ástfangin og
sér ekki eftir einni
einustu mínútu
BLS. 4
Selma og Tómas standa
í stórræðum í hótel- og
veitingarekstri á Króknum
Við ákváðum
að finna okkur
eitthvað að gera
James Kennedy myndaði
þorrablótið á Skagaströnd
Frábær stemning
og fullt hús í
Fellsbæ
07
TBL
18. febrúar 2016
36. árgangur : Stofnað 1981
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
BÍLAVERKSTÆÐI
Hesteyri 2 550 Sauðárkrókur Sími 455 4570
Við þjónustum bílinn þinn!
Alhliða bílaviðgerðir fyrir fólksbíla,
vörubíla og dráttarvélar. Réttingar og sprautun.
Fundarmenn einróma um að stofnun félagsins sé framfaraskref
Nýtt hestamannafélag formlega stofnað
Stofnfundur fyrir Skagfirðing, nýtt
hestamannafélag í Skagafirði, fór
fram í Tjarnabæ sl. þriðjudagskvöld.
Að sögn Guðmundar Sveinssonar,
nýkjörins formanns, var þetta fjöl-
mennur og góður fundur og voru
viðstaddir á einu máli um að þetta
væri framfaraskref fyrir hestamenn í
firðinum.
Kosið var í stjórn félagsins en auk
Guðmundar skipa hana Ása Hregg-
viðsdóttir, Skapti Steinbjörnsson, Har-
aldur Þór Jóhannsson og Pétur Örn
Sveinsson. Varamenn eru Elvar
Einarsson og Ragnar Pálsson. Stjórn á
eftir að skipta með sér verkum. „Hin
félögin þrjú - Léttfeti, Stígandi og Svaði
- sem eru að sameinast þessu eina félagi
eiga eftir að halda sína aðalfundi. Það
verður gert á næstu dögum og þá verða
þau formlega lögð niður. Þá verður
þessi sameining til en eftir þann
gjörning ætlum við að hittast aftur og
leggja betur línurnar,“ sagði Guð-
mundur.
Á fundinum voru gerðar nýjar
samþykktir, rætt um nýtt lógó félagsins
og var stjórninni falið að vinna það mál
áfram. Einnig var rætt aðeins um
framtíðina og hvað menn sjá fyrir sér.
„Mér sýnist á öllu að kraftar þessarar
nýju stjórnar fari næstu vikurnar í að
koma þessu formlega á koppinn,“ sagði
hann að lokum. /BÞ
Það sem af er vetri hefur veturinn verið mjög góður til
skíðaiðkunar í Tindastóli. Viggó Jónsson staðarhaldari segir
að veðurfarslega hafi veturinn verið með eindæmum
hagfelldur - ekki mikið um umhleypingar, nóg af snjó í
fjallinu og mjög gott færi.
Þó nokkuð af gestum hefur verið að renna sér í fjallinu, meira
af fólki utan svæðisins en hann segist myndi vilja sá fleiri
Skagfirðinga og Húnvetninga í fjallinu. „Það hafa verið talsvert af
aðkomufólki og það er jákvætt en við auglýsum eftir bæði
Skagfirðingum og Húnvetningum, þeir mættu vera duglegri að
koma á skíði,“ segir hann. „Töfrateppið okkar hefur slegið í gegn
og eru margir krakkar sem eru að byrja að nota það. Það er
virkilega gaman að taka slíkt tæki í notkun þegar móttökurnar eru
svona góðar, við erum hæstánægð með það.“
Það er mikið um að vera í fjallinu á næstunni. Vetrarhátíð fer
fram dagana 26.–28. febrúar og svo er jafnan fjölmennt í fjallinu
yfir páskana sem nú eru í lok marsmánaðar.
Nánar er fjallað um Vetrarhátíð á bls. 9.
Auglýsa eftir fleiri Skagfirðingum
og Húnvetningum í fjallið
S K A G F I R Ð I N G A B R A U T 2 9 S A U Ð Á R K R Ó K I S Í M I 4 5 3 6 6 6 6
FÁÐU ÞÉR Í SVANGINN!
NÝJAR VÖRUR
Glæsilegt úrval
á pier.is
3.990 kr.
Það var frábært skíðafærið um síðustu helgi í Tindastólnum. Myndin er tekin í þann mund sem svæðinu var lokað sl. laugardag og þá fáir eftir í brekkunni.
MYND: ÓAB
Mikið um að vera á Skíðasvæði Tindastóls á næstunni
35 ára
Stjórn Skagfirðings. MYND: PF