Feykir - 18.02.2016, Side 2
2 07/2016
Ég var svo hugmyndasnauð þegar kom að því að finna efni
í leiðara að þessu sinni að ég ákvað einfaldlega að lýsa broti
af deginum mínum eins og
hann hefur gengið fyrir sig í
dag. Þegar þetta er skrifað er
miðvikudagur. Miðvikudag-
arnir er útgáfudagur hjá okkur
hér á Feyki og þá er yfirleitt
nóg að gera. Tryggja þarf að
allt efni sé klárt og komið í
blaðið, lesa þarf yfir o.s.frv.
hlutirnir þurfa því að ganga
nokkuð smurt ef allt á að
klárast í tíma og það gerir það
reyndar yfirleitt.
Nýverið skráðum við hjónin
börnin okkar, tvö af þremur, í tónlistarskóla, sem er svo sem
ekki í frásögur færandi, en það vildi svo til að þau fengu bæði
tíma kl. 13:30 á miðvikudögum. Tónlistarskólinn er staðsett-
ur í sömu byggingu og Feykir þannig að það gat nú ekki verið
þægilegra. Gott og vel, tónlistartímar kl. 13:30 á miðvikudög-
um - við mössum það er það ekki…
Þar sem þau eru nýbyrjuð í tónlistarnáminu (annar tíminn
hjá dótturinni og sá þriðji hjá syninum) erum við enn pínulítið
að finna taktinn í þessu. Þegar ég var búin að sitja sveitt við
skrif allan daginn kemur eiginmaðurinn með drenginn úr
leikskólanum í trommutíma. Ég krossa fingurna og vona að
dóttirin muni eftir tímanum sínum og komi beint úr
skólanum, en ég hafði tekið fiðluna með mér í vinnuna um
morguninn. Tíminn líður og klukkan er orðin 13:30 – hvar er
stelpan? Kennarinn búinn að keyra alla leið frá Hvammstanga
til að taka á móti henni í fiðlutíma og hún hvergi sjáanleg. Ég
í stressinu er farin að tromma taktfast með fótunum undir
borði með símann í annarri að hringja heim til helstu
vinkvenna dótturinnar og reyna að skrifa fréttir með hinni.
Þegar sonurinn er farinn í trommutíma kemur eigin-
maðurinn og fær hjá mér fiðluna og fer út að rúnta um bæinn
í leit að dömunni. Eftir smá stund gengur stúlkan inn í mestu
rólegheitum og ég skúbba henni með hraði yfir í tónlistar-
skólann. „Hvar er fiðlan?“ spyr kennarinn þegar hún sér
okkur koma á hlaupum. Arrgh! Ég hringi í eiginmanninn,
sem var á góðri leið með að vera kominn aftur í vinnuna, og
spyr sömu spurningar. Hún var auðvitað hjá honum - í bílnum
– í hinum enda bæjarins. Svitn, arg! Pirr! Þá kom sér vel að
búa í litlum bæ. Já, svona er þetta stundum, það tekur smá
stund að stilla saman strengi sína.
Berglind Þorsteinsdóttir, ritstjóri
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Berglind Þorsteinsdóttir – berglind@feykir.is & 455 7176, 694 9199
Blaðamenn:
Kristín Sigurrós Einarsdóttir – kristin@feykir.is & 867 3164
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is
Áskriftarverð: 530 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 650 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
LEIÐARI
Múltitaskandi mamman
Sprungan orðin 2-3 metra breið á yfirborði
Sprungan í Ketubjörgum stækkar
Stór sprunga í Ketubjörgum á
Skaga hefur verið til umfjöll-
unar í fjölmiðlum síðan í
byrjun síðasta árs. Nú er svo
komið að sprungan er orðin
2-3 metrar á breidd á yfir-
borði. Svæðið var girt af með
lögregluborðum sl. sumar og
ferðamenn ítrekað varaðir við
hættum sem af sprungunum
stafa. Sprungan er í björg-
unum í Syðri-Bjargarvík en
Ketubjörgin eru vinsæll
útsýnis- og áningarstaður við
vestanverðan Skagafjörð.
Bjargsneiðin sem losnað
hefur frá er um átta metrar á
Eldur í bíl og vélsleða
Brunar á Blönduósi og í Skagafirði
Slökkviliðið á Blönduósi var
kallað út rétt fyrir klukkan
fjögur sl. föstudag vegna elds
sem hafði kviknað í bíl er
staðsettur var í bragga við
gömlu mjólkurstöðina á
Blönduósi. Þegar slökkviliðið
bar að hafði eldur einnig læst
sig í útveggi braggans.
Greint var frá þessu á
vefnum huni.is og þar kom
fram að greiðlega hafi gengið að
slökkva eldinn en slökkvistarfi
lauk á um tveimur tímum. Þrír
aðrir bílar voru í bragganum og
eru þeir taldir ónýtir. /KSE
Þá kviknaði í vélsleða á
Sauðárkróksbraut sunnan við
Sauðárkrók, skammt hjá Félags-
heimilinu Ljósheima, þann 10.
febrúar. Samkvæmt upplýsing-
um frá Brunavörnum Skaga-
fjarðar urðu engin slys á fólki,
slökkvistarf gekk greiðlega en
vélsleðinn er ónýtur. /KSE & BÞ
Sögusetur
íslenska
hestsins
fær styrk
Skagafjörður
Atvinnu-, menningar- og
kynningarnefnd Svf.
Skagafjarðar samþykkti að
styrkja Sögusetur íslenska
hestsins til þátttöku á LM
2016 í Skagafirði á fundi
sínum þann 12. febrúar
síðastliðinn. Styrkurinn
nemur kr. 1.000.000,-
„Tekið fyrir erindi frá
Sveini Ragnarssyni, formanni
stjórnar Söguseturs íslenska
hestsins, þar sem óskað er eftir
styrk vegna þátttöku Sögu-
seturs íslenska hestsins, á
Landsmóti hestamanna sem
haldið verður á Hólum í
Hjaltadal í sumar. Atvinnu-,
menningar- og kynningar-
nefnd þakkar fyrir erindið og
samþykkir að styrkja Sögu-
setrið um kr. 1.000.000,“ segir
í fundargerð. /BÞ
Vikuna 7. - 13. febrúar var tæpum 35 tonnum landað á Skagaströnd. Þá var landað rétt rúmum
5 tonnum á Hofsósi, rúmum 252 tonnum á Sauðárkróki og 246 kg á Hvammstanga. Alls gera
þetta rúm 252 tonn á Norðurlandi vestra. /BÞ
Aflatölur 17.–23. febrúar á Norðurlandi vestra
Aldan með tæp 16 tonn
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
HVAMMSTANGI
Harpa HU 4 Dragnót 246
Alls á Hvammstanga 246
SKAGASTRÖND
Alda HU 112 Landb. lína 15.520
Bogga í Vík HU 6 Landb. lína 1.730
Dagrún HU 121 Þorskanet 3.842
Guðmundur á Hópi Landb. lína 5.107
Ólafur Magnússon Þorskanet 617
Sæfari HU 200 Landb. lína 4.347
Stella GK 23 Landb. lína 3.396
Alls á Skagaströnd 34.559
HOFSÓS
Ásmundur SK 123 Landb. lína 5.022
Alls á Hofsósi 5.022
SAUÐÁRKRÓKUR
Klakkur SK 5 Botnvarpa 109.102
Málmey SK 1 Botnvarpa 143.194
Alls á Sauðárkróki 252.296
Slökkviliðið að störfum á Blönduósi. MYND: RÓBERT DANÍEL
breidd og 50-60 metrar á hæð
og samkvæmt upplýsingum frá
Kristjáni Erni Kristjánssyni
sem sendi Feyki meðfylgjandi
samanburðarmyndir nýlega.
/KSE
Myndin lengst til vinstri er tekin í mars 2015, sú í miðjunni í júlí 2015 og myndin
lengst til hægri í þessum mánuði. MYND: KRISTJÁN ÖRN KRISTJÁNSSON
Aldrei fleiri umsóknir
Umsóknarfrestur til Uppbyggingasjóðs liðinn
Umsóknarfrestur um styrki til menningarstarfs, atvinnuþróunar og
nýsköpunar til Uppbyggingasjóðs Norðurlands vestra rann út sl.
mánudag.
Að sögn Ingibergs Guðmundssonar hjá SSNV atvinnuþróun
hafa aldrei fleiri umsóknir borist. Framundan er úrvinnsla
umsókna. /BÞ