Feykir - 18.02.2016, Síða 5
07/2016 5
Meistaradeild Norðurlands farin af stað
Sjö lið keppa í KS-Deildinni
KS-Deildin í hestaíþróttum hóf
göngu sína í Svaðastaða-
höllinni í gærkvöldi. Keppt var
í fjórgangi en úrslit kvöldsins
lágu ekki fyrir þegar blaðið fór
í prentun. Á síðustu vikum
hafa liðin sem taka þátt verið
kynnt til leiks, alls sjö talsins.
Þegar hefur verið sagt frá liði
Draupnis/Þúfna, Hofstorfunn-
ar/66°North og Hrímnis í blað-
inu. Liðin sem eftir eru voru
gerð kunn í vikunni. Þau eru:
• Íbess-Hleðsla. Liðstjóri er
Jóhann B. Magnússon og með
honum eru Magnús Bragi
Magnússon, Ísólfur Líndal
Þórisson og Anna Kristín
Friðriksdóttir. „Þetta lið hefur
misst Hönnu Rún Ingibergs-
dóttur sem stóð sig afar vel í
fyrra. Í stað Hönnu Rúnar kemur
Ísólfur Líndal. Það er ánægjulegt
að fá Ísólf aftur í KS-Deildina og
það er ljóst að þetta lið ætlar sér
langt,“ sagði í tilkynningu.
• Lífland. Liðstjóri er Agnar Þór
Magnússon. Með honum í liði
eru Birna Tryggvadóttir, Guð-
mundur Karl Tryggvason og Þór
Jónsteinsson. „Hér er á ferðinni
nýtt lið sem vann sér þátttöku-
rétt í gegnum úrtöku KS-
Feykiflottur
Liggurðu á frétt? Áttu skemmtilega
mynd sem gaman væri að birta í Feyki?
Hafðu samband > feykir@feykir.is
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR Fleiri íþróttafréttir á Feykir.isF
„30. sumarið í röð sem
Tindastóll heldur úti móti“
Tindastóll hlýtur Grasrótarverðlaun KSÍ
Grasrótarverðlaun KSÍ árið
2016 hlýtur Ungmenna-
félagið Tindastóll. Á
Facebook-síðu KSÍ segir að
Tindastóll hafi um áraraðir
haldið úti knattspyrnumóti
fyrir bæði stráka og stelpur
með miklum sóma, Lands-
bankamót Tindastóls fyrir
stúlkur í 6. og 7. flokki og
Króksmót Tindastóls fyrir
drengi í 5., 6. og 7. flokki.
„KSÍ getur seint þakkað
þeim félögum sem halda úti
knattspyrnumótum fyrir yngstu
iðkendur knattspyrnuhreyfing-
arinnar nægilega fyrir þeirra
ötula starf. Tindastóll er eitt af
frumkvöðlafélögum í þeim
efnum og sumarið 2016 verður
30. sumarið í röð sem Tindastóll
heldur úti móti. Það er því ekki
nokkur spurning að Tindastóll
er vel að Grasrótarverðlaunum
KSÍ komið,“ segir loks á síðunni.
/BÞ
Bjarni Jónasson og Randalín frá Efri-Rauðalæk. MYND: KS-DEILDIN Á FB
Deildar-innar núna í janúar. Það
verður gaman að fylgjast með
þessu nýja liði sem er skipað
miklum reynsluboltum. Þarna
eru á ferð frábærir knapar sem
eru þekktir fyrir að vera ætíð
með góð hross undir höndum.
Ekki skemmir fyrir að þessir
liðsmenn koma allir úr Eyjafirði
og bjóðum við þá sérstaklega
velkomna.“
• Mountain Horse. Liðstjóri er
Fanney Dögg Indriðadóttir og
með henni eru Elvar Logi Frið-
riksson, Hallfríður S. Óladóttir
og Hans Þór Hilmarsson. „Þarna
er athyglisvert lið á ferðinni. Þrír
knaparnir eru búsettir í
V-Húnavatnssýslu og þau hafa
fengið til liðs við sig hinn þekkta
knapa Hans Þór Hilmarsson.
V-Húnvetningar eru alltaf vel
ríðandi og þegar Hans Þór hefur
bæst í hópinn verður spennandi
að fylgjast með þessu liði í vetur.“
• Mustad. Liðstjóri er Sina
Scholz og með henni eru Hlynur
Guðmundsson, Bjarney Jóna
Unnsteinsdóttir og Flosi Ólafs-
son. „Hér er um nýtt lið að ræða
sem vann sér þátttökurétt í gegn-
um úrtöku og hefur engin af
þessum knöpum keppt áður í
KS-Deildinni. Þetta lið hefur
lægstan meðalaldur allra liða
deildarinnar en mun án efa láta
til sín taka,“ sagði í tilkynningu.
/BÞ
Sterkur lokasprettur Stólanna
Dominos-deildin í körfubolta: Tindastóll - Njarðvík 88–79
Sprækir Njarðvíkingar mættu í
Síkið sl. fimmtudagskvöld og
spiluðu hörkuleik við lið
Tindastóls. Gestirnir voru
lengstum skrefinu á undan
með Loga Gunnars í stuði og
Atkinson ólseigan en Stólarnir
reyndust þó seigari á loka-
metrunum, náðu forystunni
þegar mestu skipti og gest-
irnir fóru á taugum. Lokatölur
88-79 fyrir Tindastól.
Það var fín mæting í Síkið og
stuðningsmenn Stólanna æstir í
að sjá nýju mennina, Gurley og
Dempsey, leika listir sínar.
Gurley hóf leik ásamt Lewis,
Pétri, Viðari og Helga Viggós.
Njarðvíkingar komust í 9-0 og
höfðu frumkvæðið allan fyrri
hálfleik þó aldrei tækist þeim að
ná meira en tíu stiga forystu. Í
hálfleik var staðan 41-44 fyrir
gestina.
Tindastólsmenn héldu betur
í við Njarðvíkinga og komust yfir
í smástund í þriðja leikhluta en
það voru þó gestirnir sem leiddu
með einu stigi, 60-61, fyrir
lokafjórðunginn. Enn fóru
Njarðvíkingar betur af stað,
Tindastólsmenn reyna að verjast Atkinson í liði Njarðvíkur. MYND: ÓAB
komust í 65-70, en þá hertu
heimamenn taktinn í vörninni,
stigu upp í sókninni og gerðu tíu
stig í röð. Gestirnir klóruðu í
bakkann en frábærar körfur frá
Pétri skiluðu fimm stigum í hús
og staðan orðin 80-72 fyrir
Tindastól. Þá fóru gestirnir á
taugum og Tindastólsmenn
fögnuðu sætum sigri.
Lewis var stigahæstur í liði
Tindastóls með 22 stig og fjögur
fráköst. Anthony Gurley gerði
21 stig og tók sömuleiðis fjögur
fráköst og síðan var Dempsey
með 16 stig og fimm fráköst.
Pétur átti ágæta spretti og
körfurnar hans í lokin voru gulls
í gildi. Darrel Flake kom ekki við
sögu í leiknum en hann er
meiddur.
Næsti leikur er hér heima í
kvöld þegar Snæfell kemur í
heimsókn. Það er annar leikur
sem verður að vinnast. /ÓAB
Stig Tindastóls: Lewis 22, Gurley 21,
Dempsey 16, Helgi Viggós 10, Pétur 7,
Svabbi 5, Viðar 4 og Ingvi 3.
Sólrún Tinna Grímsdóttir
býr á Reykjum í Austur-
Húnavatnssýslu. Hún er á
sextánda ári, er í 10. bekk
Húnavallaskóla og hefur
stundað hestamennsku frá því
hún man eftir sér. Sólrún Tinna
var efst í unglingaflokki á fyrsta
mótinu í mótaröð Neista, þar
sem keppt var í T7. Blaðamaður
Feykis hafði samband við
Sólrúnu Tinnu og fékk að heyra
aðeins um hestamennskuna.
Hvenær byrjaði þú í hesta-
mennsku? -Ég hef verið á hestbaki
síðan ég man eftir mér.
Hvað heitir uppáhaldshesturinn
þinn og ertu búin að eiga hann
lengi? -Það eru tvær merar sem
eru í miklu uppáhaldi. Önnur heitir
Hespa frá Reykjum og hún er tíu
vetra. Foreldrar mínir eiga hana og
þau eru búinn að eiga hana síðan
hún var folald. Hin heitir Perla,
einnig frá Reykjum, og hún er
sextán vetra. Foreldrar mínar hafa
líka átt hana síðan hún var folald.
Hefurðu áður tekið þátt í
mótaröð Neista? -Já, ég hef oft
keppt í mótaröð Neista.
Áttu þér einhverja fyrirmynd í
hestamennskunni? -Já, bara
foreldra mína.
Á hvað stefnirðu í framtíðinni?
-Ég stefni á að halda áfram að
keppa og temja og vinna allskonar
vinnu í kringum hesta.
Hvernig myndirðu lýsa drauma-
hestinum?-Draumahesturinn væri
rauð eða brúnskjótt meri sem væri
viljug, samvinnufús, hlýðin og létt
í beisli. Með rúmt og hreint tölt,
flugvökur og hágeng.
Hver heldurðu að sigri opna
flokkinn í mótaröðinni? -Ég held
að Jakob Víðir vinni opna flokkinn.
Hvert er þitt helsta afrek í
hestamennskunni? -Ég hef unnið
tölt á Unglingalandsmóti og er
búin með knapamerki 1, 2 og 3.
Sólrún Tinna Grímsdóttir
Hefur verið á hestbaki
síðan hún man eftir sér
( HESTAR ) kristin@feykir.is
Sólrún Tinna. MYND: ÚR EINKASAFNI