Feykir - 18.02.2016, Page 6
6 07/2016
vinnandi. Ég tel líka að börnin
hafi notið góðs af því, það er
góð fjárfesting,“ segir hún og
gerir ekki mikið úr því að það
hafi verið annasamt starf að
vera með svo mörg börn á sama
aldri. „Vonandi verðum við svo
þeirrar gæfu aðnjótandi að
eignast barnabörn í framtíð-
inni,“ bætir Tómas við en börn-
in eru nú öll að mennta sig, í
þremur mismunandi löndum.
Elstur barna þeirra er
Ragnar Páll, fæddur 1989.
Hann stundar meistaranám í
tölvunarfræði í Háskólanum í
Reykjavík. Næstur er Kristinn
Björgvin, fæddur 1990, sem er
við meistaranám í tölvunarfræði
í Háskólanum í Amsterdam og
hefur jafnframt lokið BS námi í
eðlisfræði frá Uppsala Univers-
itet. Hannes Geir er fæddur
1992. Hann er rafeindavirki og
stundar nám í viðskiptafræði
við Háskólann í Reykjavík.
Yngst er Marta Laufey, sem er
fædd 1995. Hún er stúdent frá
Fjölbrautaskólanum í Garðabæ
og hóf nýlega nám leikhús- og
kvikmyndaförðun í LA Collage
of Creative Arts í Dublin á
Írlandi.
Fyrir átti Tómas soninn
Rúnar Inga sem búsettur er
ásamt unnustu sinni á Akureyri
og vinnur hann hjá Finni
Aðalbjörnssyni. Hann er bif-
vélavirki og með ódrepandi
áhuga á öllum vélum og ekki
síst á dráttarvélum og finnst
föður hans ekki leiðinlegt að
vita af sveitagenunum í honum.
Áttu engin tengsl á
Krókinn nema nokkra
kunningja og vini
Það var í apríl árið 1996
fjölskyldan tók sig upp og flutti
á Sauðárkrók. Tómas hafði þá
fengið starf sem yfirverkstjóri
hjá Fiskiðjunni (nú FISK
Seafood) og starfaði þar fram í
ársbyrjun 2013. „Okkur leist
líka vel á að hérna var betra
þjónustustig en á Grundarfirði
á þeim tíma, fjölbrautaskóli og
einnig góð heilbrigðisþjónusta.
Einnig var þetta nær mínum
heimahaga og ekkert lengra til
Selmu heimahaga en verið
hafði,“ segir Tómas. Aðspurð
segjast þau enga tengingu hafa
haft við Sauðárkrók og lítið hafa
komið á staðinn áður en þau
ákváðu að flytja en áttu þó
nokkra kunningja og vini hér.
Þegar Selma fór aftur út á
vinnumarkaðinn, eftir að hafa
verið heimavinnandi um tíma,
réði hún sig fyrst í þrif hjá
Fiskiðjunni. „Ég fór að vinna
þegar hann kom heim úr
vinnunni og sá hann þá um
„Við ákváðum að finna
okkur eitthvað að gera“
Selma Hjörvarsdóttir og Tómas Árdal standa í stórræðum
í veitinga- og gistihúsarekstri á Sauðárkróki
Fyrirtækin sem um ræðir eru
annars vegar Spíra ehf. sem
rekur Arctic Hotels, en undir
því eru gististaðirnir hótel
Miklagarður, gistiheimilið
Mikligarður og Hótel Tindastól.
Hins vegar Stá ehf., sem rekur
veitingastaðina Ólafshús, Kaffi
Krók og skemmtistaðinn Mæli-
fell, en þær eignir og rekstur
keyptu þau um síðustu áramót
af þeim Kristínu Magnúsdóttur
og Sigurpáli Aðalsteinssyni.
Tómas er fæddur og
uppalinn á Akureyri. „Ég var
mikið í sveit sem krakki og ólst
upp við sveitastörf, fyrst sem
stráklingur og svo sem kaupa-
maður. Ég var meðal annars sjö
sumur hjá Sverri Guðmundssyni
á Lómatjörn í Höfðahverfi og
einnig var ég kaupamaður á
öðrum bæjum í nokkur sumur.
VIÐTAL
Kristín Sigurrós Einarsdóttir
Ég fór einn vetur til Sviss sem
skiptinemi og fór þar í land-
búnaðarháskóla og dvaldi á
sveitabæ,“ rifjar hann upp.
Selma laumar því inn í samtalið
að það sé afar grunnt á bónd-
anum í honum og Tómas tekur
undir það. Að loknu náminu í
Sviss hélt hann í Fiskvinnslu-
skólann í Hafnarfirði og þar
lágu leiðir þeirra saman.
Selma er Reykvíkingur en
rekur ættir sínar vestur á firði.
„Mamma er fædd og uppalin í
Fljótavík á Hornströndum. Ég á
mikið af skyldfólki á Ísafjarðar-
svæðinu og ég var mörg sumur
þar sem barn og unglingur og
átti heima þar um tíma sem
smábarn. Ég er þó að mestu
leyti alin upp í Árbænum,“ segir
hún. Hennar leið lá í Fjöl-
brautaskólann í Breiðholti og
þaðan í Fiskvinnsluskólann þar
sem þau Tómas voru bekkjar-
félagar og felldu síðan hugi
saman í skólaferðalagi í
Portúgal. Þau hófu svo sinn
búskap saman árið 1982.
Að námi loknu lá svo leiðin
út á land. „Það var tiltölulega
nýtilkomið að fólk væri mennt-
að í þessi stjórnunarstörf í
fiskiðnaði og mikil vöntun á
menntuðu fólki í verkstjórastörf.
Ég var nítján ára þegar ég var
fyrst verkstjóri í fiskvinnslu,“
segir Selma. Á Bíldudal bjuggu
þau í tíu ár en voru einnig
nokkur ár á Grundarfirði og
austur á fjörðum. Selma vann
þá á Fáskrúðsfirði en Tómas á
Breiðdalsvík og Stöðvarfirði.
Þar segjast þau hafa unnið á sitt
hvorum staðnum þar sem yfir-
leitt voru ekki stjórnunarstörf í
fiskvinnslu að fá fyrir fleiri en
einn á sama stað. „Ég vildi
sanna fyrir sjálfri mér að ég gæti
þetta,“ segir Selma. „En Tómas
var miklu betri í þessu en ég,“
segir hún og hlær. „Okkur var
treyst þó við værum bara
krakkar og vorum sett yfir fólk
sem var búið að vinna í hús-
unum í áratugi. Maður þurfti að
hafa bein í nefinu og virkilega
mikinn áhuga á öllu vinnslu-
ferlinu til að standa í slíku,“
segir Selma.
Móðurhlutverkið
besta starfið
Eftir að hafa starfað nokkur ár
við fiskvinnslu og ýmis störf
segist Selma hafa helgað sig
besta starfi sínu, móðurhlut-
verkinu. „Við eigum fjögur börn
á sex árum, sá elsti var ekki
orðinn sex ára þegar sú yngsta
fæddist. „Uppeldi þeirra er það
skemmtilegasta og yndislegasta
starf sem ég hef unnið og það
sem ég hef haft mesta ánægju af
í lífinu,“ segir Selma. „Ég tel það
mikil forréttindi að hafa fengið
tækifæri til þess að vera heima-
Hjónin Selma Hjörvarsdóttir og Tómas Árdal hafa búið á Sauðárkróki síðan 1996, en þau áttu engin
tengsl við staðinn áður en þau fluttu þangað ásamt fjórum börnum sínum fyrir utan nokkra
kunningja og vini. Í dag eiga þau og reka tvö fyrirtæki sem eru umsvifamikil í veitinga- og
gistihúsageiranum á Sauðárkróki. Blaðamaður Feykis tók Selmu og Tómas tali á dögunum og fékk
að heyra um bakgrunn þeirra, fyrri störf og þann viðamikla rekstur sem þau hafa ráðist í.
Selma og Tommi fyrir utan Hótel Tindastól. MYND: KSE